Í safninu eru bókhaldsgögn og fylgigögn bókhalds í mismunandi ástandi, elsta innbundna bókin er t.d.í mjög slæmu ásigkomulagi. Elstu gögnin sem ýmist eru forprentuð, vélrituð eða handskrifuð á fínum smjörpappír einnig öðrum pappírsgerðum.
blöðin gulnuð og ryðblettir eftir hefti og bréfaklemmur. Elsta safnið inniheldur að mestu fylgigögn bókhalds og í því eru einnig innbundnar sjóðs- og höfuðbækur einnig nokkrar frumbækur og sjóðsbækur sem bundnar eru með heftum og ákveðið var að leyfa að haldast óbreyttum. Í elsta safninu eru bókhaldsgögn frá Alþýðuflokksfélagi Sauðárkróks, Jafnaðarmannafélagi Sauðárkróks og frá Verkamannafélaginu Fram.
Búið var að flokka safnið niður í litlar einingar, því skipulagi var haldið þannig. Í safninu eru fylgigögn bókhalds, sjóðsbók, höfuðbók, frumbækur einnig efnahags- og rekstrarreikningar.
Eftir því sem safnið yngist verða gögnin meira forprentuð og betur unnin, þau eru flest með stimplum (logo) þeirra stofnanna og fyrirtækja sem þau koma frá og eru vel læsileg. Yngra safnið inniheldur að mestu útprentuð gögn, ársskýrslur, ársreikninga og yfirlit, elstu skýrslurnar eru bundnar með heftum þar sem límborði er límdur yfir, þær yngri eru innbundnar með annaðhvort með plast- eða járngormum og tvær þeirra eru með plasti fremst.
Safnið er látið halda sér eins og það birtist í safni í ártalaröð og nánast í upprunalegum örkum en skráning leiðrétt og í sumum tilvikum voru arkirnar sniðnar í rétta stærð í samræmi við stærð gagna. Ársskýrsla frá árinu 1978 var til í tveimur eintökum, báðar voru í góðu ásigkomulagi og var ákveðið að halda aðeins öðru eintakinu eftir. Í gegnum safnið eru persónugreinanlegar, þær nýjustu voru settar efst í öskju til að hægt sé að taka þau úr safni áður en safn er skoðað.