Yfirlitsskýrslur um rekstur Lestrafélags Óslandshlíðar 1949-1955, 7 skýrslur. Bleik og gul eyðublöð en útfylling handskrifuð nokkuð heilleg og nokkur rifinn blöð.
Handskrifað sendibréf á þrjú línustrikuð blöð til Sigurjóns, dags. 13.október 1947 um stofnun Ungmennafélagsins Fram. Bréfið er vel varðveitt og læsilegt.
Harðspjalda handskrifuð fundargerðabók í góðu ástandi. Blaðsíður eru númeraðar og skrifað á 59 blaðsíður. Fremst kemur frá að félagið hafi verið stofnað 1938
Færslubók. Fundargerðabók Búnaðarfélagsins. Fylgigögn. Skrár yfir hrúta 1992 - 1993. Markaskrá. Lítil harðaspjalda bók um Landsmót hesta á Hólum 1966. Rit um landbúnað í framför. Þrjár félagsgjaldabækur 1992 - 2002 Bækur í misjöfnu ástandi en hreinsaðar og kápur heillegar og gögn vel læsileg. Pappírsgögn í misjöfnu ástandi handskrifuð og prentuð og einstaka ritað á pappa.
Ýmis námsgögn, próf 1968-1976 o.fl varðandi starf skólans. Stundarskrár 1968-1974 og 1977. Nemendaskrár 1944-1967. Viðtöl við Ingibjörgu Jóhannsdóttur, skólastjóra og Hólmfríði Pétursdóttur, síðar skólastjóra. Einnig ýmsar upplýsingar um skólann. Reglugerð fyrir húsmæðraskóla.
Í þessu safni eru gögn sem voru í safni Skátafélagsins Andvarar en tengjast kvenskátafélaginu Asynjum á Sauðárkróki. Um er að ræða fundagerðabók og erindi frá Brynju Hlíðar á Akureyri. Safnið er í góðu ásigkomulagi, plastfilma var utan um fundagerðabókina sem var fjarlægt og bréf í umslagi sem vélritað var á Kvenskátafélagið Ásynjur, Sauðárkróki og handskrifað með blýanti nafn sr. Helga Konráðssonar. Búið var að fjarlægja frímerki sem var á umslaginu.
Stór harðspjalda handskrifuð skýrslubók um búfé og fóðurforða í Skefilstaðarhreppi. Bókin var hreinsuð en í nokkuð góðu ástandi. Bók er rétt hálf skrifuð og krot er á nokkrum óskrifuðum blaðsíðum. Persónugreinanleg bók með nöfnum eigenda búfjár, býlum, upplýsingar um iðgjöld og afurðir.