- IS HSk N00308-A-1
- Item
- 1961
Part of Haganeshreppur: Skjalasafn
Bókin er heftuð og kjallímd. Hún inniheldur númeruð eyðublöð sem á eru skráð vörugjöld skipa og báta sem komu að bryggju í Haganesvík árið 1961.
Haganeshreppur
38685 results with digital objects Show results with digital objects
Part of Haganeshreppur: Skjalasafn
Bókin er heftuð og kjallímd. Hún inniheldur númeruð eyðublöð sem á eru skráð vörugjöld skipa og báta sem komu að bryggju í Haganesvík árið 1961.
Haganeshreppur
Part of Haganeshreppur: Skjalasafn
Vörugjaldsbækur Hafnarsjóðs Haganeshrepps.
Haganeshreppur
Part of Haraldur Hermannsson: Skjalasafn
Part of Haraldur Hermannsson: Skjalasafn
Bókin er innbundin. Í henni eru upplýsingar um vörukaup félagsins á árunum 1919-1924.
Kaupfélag Fellshrepps (1919-1939)
Vörubirgðir vélaverkstæði 1962
Vörubirgðir trésmíðaverkstæði 1952
Vörubirgðir bifreiða-og vélaverkstæði 1965
Part of Akrahreppur: Skjalasafn
Hefti með vöruávísunum.
Kaupfélag Skagfirðinga
Part of Akrahreppur: Skjalasafn
Hefti sem búið er að rífa úr vöruávísanir frá Kaupfélagi Skagfirðinga. Heftið er merkt Sigurjóni Helgasyni á Nautabúi og er frá árinu 1939.
Kaupfélag Skagfirðinga
Part of Akrahreppur: Skjalasafn
Hefti sem búið er að rífa úr vöruávísanir frá Kaupfélagi Skagfirðinga. Heftið er merkt Sigurjóni Helgasyni á Nautabúi og er frá árinu 1939.
Kaupfélag Skagfirðinga
Vöru- og verðlistar frá ýmsum fyrirtækjum 1940-1946
Vorsöngur til lóunnar - Helgi Konráðsson
Part of Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn
Part of Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn
Vorprófseinkunnir í Barnaskóla Sauðárkróks vorið 1968. TRÚNAÐARGÖGN!
Part of Kristján C. Magnússon og Sigrún M. Jónsdóttir: Skjalasafn
Prófið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk í A4 stærð, alls 4 síður.
Ástand skjalsins er gott.
Part of Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn
Vornámskeið í íþróttum vorið 1942.
Vormorgun! Erindi eftir Elínu. Ódagsett
Part of Flugumýrarskjöl: Skjalasafn
Part of Jón Björnsson: Skjalasafn
Nótur við ljóðið Vorið kemur. Höfundur ljóðs Anna G. Bjarnadóttir. Höfundur lags Jón Björnsson (1979).
Hluti upplýsinganna er límdur inn á blaðið með límbandi.
Ástand skjalsins er gott.
Jón Björnsson (1903-1987)
Vor í Skagafirði - Tryggvi Kvaran
Part of Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn
Vor í Skagafirði - tileinkað félaginu í "Varmahlíð"
Vor í Skagafirði (tileinkað félaginu „Varmahlíð“)
Nú er vor yfir jörð.
Yfir fjall, yfir fjörð
Hellast fossar af skínandi, blikandi ljóma.
Hér er unaður nýr,
Þegar árdagsblær hlýr
Leysir allt, sem að lifir úr kveljandi dróma.
Hið „ónýta“ og visna að hauðrinu hnígur,
Til himinsins ilmur frá jörðinni stígur.
Yfir bjartsýna þjóð,
Með sín blíðustu ljóð,
Vorsins brosandi herskari ástfanginn, syngjandi flýgur.
Nú ber Mælihnjúk hátt.
Upp í heiðloftið blátt
yfir héraðið rís hann í konungstign sinni.
Eins og vörður í kring
raðar hamranna hring.
Hvílík tign, hvílík dýrð yfir sveitinni minni.
Um Kaldbak og Tindastól tíbráin glitrar.
Niður tignfríða Blönduhlíð berglindin sitrar.
Út við eyjar og sund
sefu8r Ægir sinn blund.
Yfir öll´ eru ríkjandi blessaðar listdísir virtar.
Ó, þú sólvermda land;
Ó, þú sagnauðga land;
Þú ert sólarbros Guðs, á hans albesta degi.
Þú ert allt, sem er hlýtt,
sem er fagurt og frítt,
sem er framsækið, ljósþyrst, á betrunarvegi.
Þú er máttugt, sem Hólastóll goðborins siðar.
Yfir Skaga og Fljót,
yfir fald þinn og fót,
breiðist friðarblær vorsins, sem skjókróna allaufgaðs viðar.
Hér þarf frjálshuga þjóð.
Hér þarf framsækna þjóð.
Hér skal forystumenning frá grundvelli rísa.
Hér þarf listelska lund,
Þó að lúin sé mund.
Hér skal ljóssækin æska á brautina vísa.
Í ljóselskar sálir skal guðtraustið grafið,
sem glampandi breiður á sólarþyrst hafið.
Hér þarf raunsterka sál.
Hér þarf rammíslenskt mál.
Þá er ramminn og myndin í samræmdri einingu vafið.
Tryggvi Guttormur Hjörleifsson Kvaran (1892-1940)
Part of Ingrid Hansen: Skjalasafn
Ingrid á heimleið
Vögguvísa Höllu, úr Fjalla Eyvindi.
Vögguvísa Höllu úr Fjalla Eyvindi, eftir Björgvin Guðmundsson.
Part of Jón Björnsson: Skjalasafn
Nótur við ljóðið Vögguvísa. Höfundur ljóðs Stefán frá Hvítadal. Höfundur lags Jón Björnsson (1930).
Hluti upplýsinganna er límdur inn á blaðið með límbandi.
Ástand skjalsins er gott.
Jón Björnsson (1903-1987)
Part of Jón Björnsson: Skjalasafn
Nótur við ljóðið Vögguljóð. Höfundur ljóðs Anna G. Bjarnadóttir. Höfundur lags Jón Björnsson (1973).
Hluti upplýsinganna er límdur inn á blaðið með límbandi.
Einnig nótur við ljóðið Hátið. Höfundur ljóðs Davíð Stefánsson. Höfundur lags Jóns Björnsson (1973).
Ástand skjalsins er gott.
Jón Björnsson (1903-1987)
Vöggukvæði, eftir Emil Thoroddsen
Vöggukvæði úr sjónleiknum "Piltur og stúlka" eftir Emil Thoroddsen
Stefán Guðmundsson Íslandi (1907-1994)
Vöggukvæði, eftir Emil Thoroddsen
Söngvasafn Kaldalóns 6. hefti
Stefán Guðmundsson Íslandi (1907-1994)
Part of Sparisjóður Hólahrepps
Frumrit skuldabréfa persónugreinanleg með innborgunum handskrifuðum á baksíðu skuldabréfa 1992 - 1997. Víxileyðublöð útfyllt og persónugreinanleg þar sem óskað er eftir ða sparisjóður kaupi víxil 1981 - 2000.
Sparisjóður Hólahrepps
Víxlar.
4 stk.
Ástand skjalanna er gott.
Tónlistarskóli Skagafjarðar (1999-)
Part of Sparisjóður Hólahrepps
Handskrifuð harðspjalda Víxlabók í góðu ásigkomulagi. Bókin var hreinsuð og vel læsileg. Bókin er persónugreinanleg með nöfnum útgefanda og samþykkjenda, núme og hvenær keyptir víxlar og lausnadagur. Trúnaðarupplýsingar
Sparisjóður Hólahrepps
Víxill í Sparisjóði Sauðárkróks
Part of Guðmundur Davíðsson: Skjalasafn
Seðill sem inniheldur sundurliðaðar greiðslur til sveitarstjóðs Holtshrepps.
Holtshreppur (1898-1988)
Bréfið er ritað á pappírsörk í A4 stærð. Það er vitnisburður bréfritara um störf hans við refaveiðar.
Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu (1874-1988)
Vitnisburður um landamerki Reykja í Tungusveit
Part of Arngrímur Jónsson: Skjalasafn
Vitnisburður Arngríms Jónssonar um landamerki Reykja í Tungusveit sem ritað er 1651. Skjalið vottað 1657 af Magnúsi Jónssyni og Þórólfi Jónssyni.
Innihald bréfsins hljóðar svo (fært í samræmda nútímastafsetningu af Einari G. Péturssyni): "Meðkenni eg Arngrímur Jónsson og votta það í fullum sannleika, að öll þau ár sem eg fyrir innan og framan minn tvítugs aldur (sem reiknast vel sextán ár) var að fistum á Reykjum í Tungusveit, hjá Jóni heitnum Egilssyni, og hans syni Þorvaldi, Reykjagarðs eigendum, þá vissa eg hvorugan þessara nefndra feðga eigna sér lengra upp í Mælifellsdal, né lögfesta, en úr Körtugili og fram í Fremri Hnjúká sem er fram frá Reykjareit. Og þessum mínum vitnisburði til sannenda staðfestu má eg eið vinna, ef þörf gjörist, hvör útgefinn var að Mælifelli Tungusveit 17. dag martíi anno 1651. Þennan fyrir ofan skrifaðan vitnisburð heyrðum við undirskrifaðir Arngrím Jónsson meðkenna á Mælifelli þann 6. dag maí 1657
Magnús Jónsson með eigin hendi
Þórólfur Jónsson með eigin hendi"
Vitnisburður um landamerki á Hryggja og Tungu
Part of Skarðshreppur: Skjalasafn
Vitnisburður um landamerki milli Hryggja og Tungu. Undirritað af Pálma Guðmundssyni, 1879.
Vitnisburður Sigvalda Guðmundssonar, Glaumbæ í Langadal, um landamerki Þverár
Vitnisburður Sigvalda Guðmundssonar, Glaumbæ í Langadal, um landamerki Þverár. Dagsett 7. ágúst 1880.
Vitnisburður Sigurðar Finnbogasonar um landamerki Þverár
Vitnisburður Sigurðar Finnbogasonar (bónda á Þverá 1853-1864) um landamerki Þverár í Hallárdal. Dagsett 2. ágúst 1880.
Vitnisburður Sigurðar Benjamínssonar, Kjalarlandi, um landamerki Þverár
Vitnisburður Sigurðar Benjamínssonar, Kjalarlandi, um landamerki Þverár í Hallárdal. Dagsett 2. ágúst 1880.
Vitnisburður Bjarna Jónssonar blinda um landamerki Þverár
Vitnisburður Bjarna Jónssonar blinda, vinnumanni á Þverá, um örnefni landamerkja Þverár í Hallárdal. Dags. 27. apríl 1825.
Vitnisburður um árangur nemenda barnaskólans á Sauðárkróki á tímabilinu 1888-1889 og 1892-1894.
Vitnisburður um árangur nemenda barnaskólans á Sauðárkróki á tímabilinu 1882-1889. Í bókinni er einnig haldið utan um mætingu og hegðun barnanna.
Vitnisburður Sigmundar Baldvinssonar frá vorprófi barna á Hofsósi í maí 1910.
Gögn varðandi vitabyggingu í Málmey, frá sýslufundi 1932.
Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu (1874-1988)
Gögn sýslunefndar frá árinu 1931, varðandi vitabyggingu.
Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu (1874-1988)
Part of Ungmennafélagið Tindastóll
Handskrifað blað með þremur stökum, höfundur ókunnugur. Blaðið hefur varðveist vel og er ódagsett, og fannst á meðal annara gagna frá U.M.F.T.
Ungmennafélagið Tindastóll (1907- )
Ýmsar vísna, ljóða og rímna bækur frá heimilisfólkinu á Litlu-Gröf.
Part of Samband skagfirskra kvenna
Forprentuð, vélrituð og handskrifuð kvæði, ljóð og stökur eftir konur en í safninu er einnig eitt ljóð er eftir Jón Trausta og lítill pappírsbútur með æðruleysisbæninni. Í safninu er kvæði sem var ort árið 1910 og er tileinkað Kvenfélagi Staðarhrepps. kvæðið er eftir Guðrúnu Ólafsdóttur frá Páfastöðum. Kvæðið Draumsýn eftir Áslaugu S. Jensdóttur, Núpi. Þrjú afmælisljóð til S.S.K. eftir Emmu Hansen í tilefni af afmæli sambandsins 1983. Söngur Sambands Norðlenskra Kvenna, eftir Laufeyju Sigurðardóttur frá Torfufelli. Ljósrit af textum með nokkrum vísum og stökum, neðst á blaðinu stendur: Rúvak í Árgarði 10/2 1984 - Fjöldasöngur. Ljóðabréf til Oddfríðar Skúladóttur eftir Guðrúnu Jónsdóttur, dagsett. Rvk. 14.des 1913. Staka eftir Áslaugu Jensdóttur, á hlið bréfsins er handskrifað með penna Snorri Ingimarsson. Vort land, kvæði eftir Emmu Hansen sem ort var í tilefni 70 ára afmælis S.N.K. 1984 (á tveimur bls.).
Handskrifaðar vísur eftir Diddu. önnur vísan heitir; Til Margrétar á Löngumýri 60 ára. Vísur eftir Hólmfríði Jónasdóttur þar sem hún þakkar stjórn Sambands Skagfirskra Kvenna fyrir boð til handa öldruðum Skagfirðingum 27. júní 1987. Handskrifaðar vísur eftir Kristbjörgu Bjarnadóttur frá Litlu-Brekku. Önnur vísan er með titlinum Stiklað á stóru (eða gaman og alvara) og var flutt í Miðgarði 24.okt. 1986. Hin vísan eða textinn við laginu "Komdu og skoðaðu í kistuna mína" var vélrituð og ljósrituð og heitir Minningabókin. Textinn er einnig að finna í hefti sem S.S.K. lét gera í tilefni afmælishátíðar sambandsins 1983. í safninu er einnig forprentaður texti með baráttusöng Kvennafrídagsins og kallast Hvers vegna kvennafrí, textinn er eftir Valborgu Bentsdóttur, lag; "Frjálst er í fjallasal".
Part of Kristrún Skúladóttir: Skjalasafn
Fundarboð, vísur á lausablöðum og Héraðsmót skagfirskar hestamanna.
Kristrún Skúladóttir (1902-1979)
Vísur ortar á búnaðarnámskeiði á Hólum 1925
Part of Sigurður Jónsson: Skjalasafn
Vísur sem ortar voru á búnaðarnámskeiði á Hólum árið 1925. Ekki kemur fram hver er höfundurinn.
Sigurður Jónsson (1882-1965)
Skagstrendingur e. Lúðvík Kemp
Stefán Guðmundsson Íslandi (1907-1994)
Til óperusöngvarans, Stefán Íslandi.
Stefán Guðmundsson Íslandi (1907-1994)
Drangeyjarljóð
Stefán Guðmundsson Íslandi (1907-1994)
Part of Sölvi Helgason: Skjalasafn
Afmælisvísur 11. september 1964
Stefán Guðmundsson Íslandi (1907-1994)
Lausavísur án þess að höfundar sé getið. Efnistök; Þorrablót, veður og lífið.
Stefán Guðmundsson Íslandi (1907-1994)
Afmælisvísur, kvæði, vísur og ljóð
Stefán Guðmundsson Íslandi (1907-1994)
Part of Haraldur Sigurðsson: Skjalasafn
Part of Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn
Vísur Gamla mannsins má finna í bókinni Aringlæður sem gefin var út árið 1963.
Vísur eftir Stefán Stefánsson frá Móskógum
Part of Magnús Kr. Gíslason: Skjalasafn
Vísur eftir Stefán Stefánsson frá Móskógum á Bökkum, Skagafirði.
Part of Hrólfur Þorsteinsson: Skjalasafn
Vísurnar eru skráðar á línustrikaða pappírsörk. Nokkuð er um útstrikanir og leiðréttingar.
Hallgrímur Jónasson (1894-1991)
Part of Einar Jakobsson: Skjalasafn
Part of Kristrún Skúladóttir: Skjalasafn
Handskrifaðar vísur, eftir Guðmund Inga, Mig langar uppí sveit. Vísa þar sem ekki er getið höfundar sem byrjar svona Jólasveinar fara um fjöll. Blað þar sem Sigurjón Jónasson er tilgreindur höfundur á 3 blaðinu en þar eru 2 vísur: Haustvísur og Spóinn
Kristrún Skúladóttir (1902-1979)
Vísur á lausum blöðum (reikningum, umbúðapappír og hverju einu) sumpart tekið úr prentuðum ritum. Nafngreindir höfundar eru þessir helst:
Andrés Björnsson, Andrés Jónsson rakari, Anna Svavarsdóttir, Árni Björnsson Sauðárkróki, Benedikt Guðmundsson Fljótum, Bjarni Björnsson á Vatnshorni, Erlendur Gottskálksson í Garði í Kelduhverfi, Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum (ehdr), Guðmundur Davíðsson á Hraunum (ehdr), Hannes Hafstein, Ísleifur Gíslason Sauðárkróki, Jóhann Magnússon á Mælifellsá, Jón Ásgeirsson á Þingeyrum, Jón S. Bergmann, Jón Bjarnson gamli, Jón Jónsson Skagfirðingur, Jón Pétursson Eyhildarholti, (ehdr.) Jón Runólfsson, Jón Sigurðsson sýslumaður, Jónas Jónsson í Hróarsdal (ehdr), Júlíana Jónsdóttir, K.N, (Kristján Níels Júlíusson), Ólafur Briem timburmaður á Grund, Ólafur Stefánsson Víðimýrarseli, Ólína Jónasdóttir, Pálmi Pétursson, Pétur Hannesson ljósmyndari, Pétur Jónsson, Sigurbjörn Jóhannsson Fótaskinni, Sigurlaug Árnadóttir Sólheimum, Sigvaldi Jónsson Skagfirðingur, Stefán Stefánsson frá Móskógum, Stefán Vagnsson Hjaltastöðum, Sveinn Hannesson Elivogum, sr. Tryggvi H. Kvaran Mælifelli, Vatnsenda Rósa , Þorsteinn Magnússon frá Gilhaga.
Hér eru ekki tíndar til vísur sem voru prentaðar.
Part of Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn
Lausavísur á auglýsingatöflu bæjarstjórnarskrifstofunnar á Sauðárkróki 1974.
Ráðalausir labba um storð
leggjast svo til náða.
Loksins fundu lausnarorð
látum Bakkus ráða.
Bakkusarvinur svarar:
Hver yrkir þannig? Álasar kóngsins megt,
sem ævinlega bætir þegnanna hag.
Allavega finnst mér forkastanlegt
að fárast yfir því, sem kippt er í lag.
Sífellt fremja ofaníát
ótta og hrolli slegin.
Virðast ætla að verða mát
veslings komma greyin.
Part of Pétur Jónasson: Skjalasafn
Ellefu blöð í ýmsum stærðum.
Á þau eru ritaðar vísur eftir ýmsa höfunda, flest með rithönd Péturs.
Ástand skjalanna er gott.
Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)
Part of Sigurður Jónsson: Skjalasafn
Vísur, ljóð úr ýmsum áttum.
Vísur eftir Ingimar Magnússon frá Ytri-Hofdölum.
Vísurnar eru handskrifaðar á 4 pappírsarkir í A5 stærð, með rithönd Marteins Steinssonar.
Ástand skjalsins er gott.
Marteinn Bergmann Steinsson (1909-2004)
Part of Gunnar Valdimarsson: Skjalasafn
4 pappírsarkir með lausavísum. Á sumum þeirra er einnig búið að rissa upp teikningar eða einhvers konar útreikninga. Flestar vísnanna eru án höfundar.
Gunnar Valdimarsson (1907-1975)
Part of Björn Jónsson: Skjalasafn
27 ljósritaðar blaðsíður af vísum, ýmsir höfundar. Flestar eftir Lúðvík Kemp.
Part of Rætur bs: Skjalasafn
Gögn er varða Vistheimilið.
Rætur bs
Vísnaþáttur eftir Erlend Hansen
Part of Erlendur Hansen: Skjalasafn
Vísnaþáttur eftir Erlend Hansen sem hann flutti í samkvæmi á Hótel Mælifelli (óvíst um ártal).
Vísur og kvæði á lausum blöðum. Eftir ýmsa höfunda, meðal annars Erling Örn Pétursson, annað ónafngreint.
Part of Árni Blöndal: skjalasafn
Vísur úr safni Árna og nokkrar sem hann samdi sjálfur, einnig er handskrifuð frásögn og á blaðinu er límdur miði - líklega athugasemd frá Árna sjálfum. Skjölin eru án dagsetningar og ártals nema tölvupóstsamskipti Árna við aðra hagyrðinga.
Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)
Part of Magnús Kr. Gíslason: Skjalasafn
Vísnakver eftir Rósberg G. Snædal. Akureyri, 1956.
Innbundin stílabók sem inniheldur handskrifaðar vísur og kvæði eftir ýmsa höfunda, m.a. marga Skagfirðinga.
Sigmundur Baldvinsson (1900-1983)
Vísnabálkur eftir Ólínu Jónasdóttur
Part of Magnús Gunnarsson: Skjalasafn
Vísnabálkurinn er eftir Ólínu Jónasdóttur, 7 erindi. Einnig tvær vísur um Egil Jónasson, Húsavík og ein kveðja til skáldkonunnar.
Part of Magnús Gunnarsson: Skjalasafn
Part of Erlendur Hansen: Skjalasafn