Þunn innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blöðum. Bókin er 300 blaðsíðna og í hana eru skrifaðar fundagerðir aðalfunda S.S.K. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist mjög vel. Límborði er á kili bókarinnar.
Pappírshefti, heftað saman á langhlið með ágripi af sögu Sambands Skagfirskra Kvenna frá stofun sambandsins í tilefni 40 ára afmælis sambandsins sem var 1983. Forsíðan og bakhlið heftsins er í gulum lit, hvít blöð þar á milli. Forsíðan er myndskreytt með merki S.S.K og ártalinu 1943 en ekki dagsett, bakhliðin er án skreytingar og texta. Ágripið um sögu S.S.K. er eftir Pálu Pálsdóttur einnig er í heftinu afmælisljóð og vísur eftir Emmu Hansen, Guðfinnu Gísladóttur og Hólmfríði Jónasdóttur, einnig er texti eftir Kristbjörgu S. Bjarnadóttur frá Litlu-Brekku sem heitir "Minningabókin" og er um starfsemi S.S.K. Heftið í góðu ásigkomulagi .
Á meðal gagna eru handskrifuð og vélrituð blöð með sögu kvenfélaganna í Skagafirði, stofnár þeirra og starfsemi og fjölritað hefti með forsíðu þar sem stendur "Samtök Skagfirzkra Kvenna 100 ára, 7.júlí 1869-7.júlí 1969. Í safninu er einnig vélritað bréf, dagsett 17.11.1968 frá Kristmundi Bjarnasyni til Pálu Pálsdóttur um kvennaskólamál í Skagafirði. Einnig eru handskrifaðar athugasemdir, líklega Kristmundar og listi með heimildum. Vélrituð skjöl með ágrip sögu hins Skagfirzka Kvenfélags (ódagsett og án ártals). Vélritað ágrip af sögu Kvenfélags Sauðárkróks, dags.9.5.1969. Öll skjölin hafa varðveist mjög vel.
Skjalið er handskrifað með rithönd Árna Blöndal. Meðfylgjandi er minnismiði um að ávarpið hafi verið flutt við afhjúpun á minnismerki um Frúarstíg á Freyjugötu.
Tölvuútprentuð pappírsgögn með upplýsingum um eignahlut kvenfélaganna og aðkomu félaganna að félagsheimilum í Skagafirði, s.s. skemmtanir, fundir, ofl. Skjöl eru ódagsett og án ártals og eru frá Félagsheimilinu Ketilási - Fljótum, Félagsheimilinu Höfðaborg - Hofsósi, Félagsheimilinu Árgarði - Lýtingsstaðahreppi, Félagsheimilinu Melsgil - Staðarhreppi, Félagsheimili Rípurhrepps, Félagsheimilinu Skagaseli - Skefilstaðahreppi, Félagsheimilinu Ljósheimum- Skarðshreppi. Skjölin hafa varðveist mjög vel.
vinnuvaka Kvenfélagasambands Skagafjarðar á Löngumýri í mars 1996. Frá vinstri: Jónína Pálmarsdóttir, Auður Ketilsdóttir, Lambanesi, Margrét Stefánsdóttir, Brennigerði, María Guðfinnsdóttir, Ökrum, Ingibjörg Jóhannesdóttir, Miðgrund og Sigríður Eiríksdóttir, Dýrfinnustöðum.
Þunn innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blöðum. Í bókinni eru skráðar fréttir af störfum kvenfélaga eða frásagnir kvenfélagskvenna, einnig eru í bókinni nokkrar pappírskópíur sem límdar eru á blaðsíðurnar sem tengjast frásögnunum. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist mjög vel. Límborði er á kili bókarinnar.
Fyrsta stofnfundargerðabók sem er harðspjalda handskrifuð fundagerðabók í nýrri kápu en blaðsíður eru gulnaðar og nokkuð rifnar svo bókin er í lélegu ástandi. Aftast í bók er skráning frá 1915 Leikrit og munir sem Hið skagfirska félag á og svo upptalning á því. Hefur verið ritað síðar.
Harðspjalda handskrifuð fundargerðabók í lélegu ástandi. Kápa er laus frá en er með límborða sem heldur bók saman. Bókin er bundin saman með bandi og los á blaðsíðum og nokkrar alveg lausar.
Harðspjalda handskrifuð fundagerðabók í nokkuð góðu ástandi. Bókin er bundin með bandi og fremstu tvær blaðsíður hafa verið klipptar en blaðsíður nokkuð krassaðar. Aftari bókakápa með broti í horni.
Harðspjalda handskrifuð fundageraðbók í góðu astandi en lítillegt los á fremstu blaðsíðum. Bókin segir frá síðustu árum félagsins sem vitað er af í þessum gögnum.
Framan á bókinni stendur Kvenfélag Holtshrepps og að það sem sé í bókinni hafi verið fært í aðra bók með útskýringum. (Þessi bók var því ekki ljósmynduð). Bókin er í ágætu ásigkomulagi.
Harðspjalda handskrifuð fundagerðabók í þokkalegu ástandi en nokkuð er um ryð frá heftum við kjöl og blettóttar blaðsíður. Bókin hefur verið límd innanvert á bókakápu.
Þunn innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blöðum. Bókin inniheldur fundgerðir stjórnar S.S.K. og aðalfunda, einnig fyrstu lög sambandsins. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist mjög vel. Límborði er á kili bókarinnar.
Í safninu eru vélrituð og fjölfölduð/ ljósrituð/ tölvuútprentuð pappírsgögn sem innihalda fundargerðir Sambandi Norðlenskra Kvenna (S.N.K.). Fundagerðirnar eru frá 1968, 1973 - 1980, 1982 - 1986 og 1995 - 1996. Hver fundargerð er heftuð saman í nokkurs konar hefti með forsíðum og baksíðum á lituðum pappír, og jafnvel með þykkri pappír. Öll gögnin hafa varðveist ágætlega og eru vel læsileg.
Í safninu eru vérituð og fjölfölduð pappírsgögn sem innihalda fundargerðir S.S.K. frá 1974 - 1988 og 2003 sem er yngsta fundagerðin. Hver fundargerð er heftuð saman, tvær þeirra eru með límborða yfir heftin. Nokkrar fundagerðir voru til í tveimur eintökum og voru þau sem litu verr út grisjuð úr safninu, annað var látið halda sér. Búið var að rífa pappírsræmu á horni á forsíðublaði elstu fundagerðarinnar annars eru öll gögnin í góðu ásigkomulagi og vel læsileg. Flest heftin eru með forsíðu og bakhlið á lituðum pappír í gulum, bláum og gráum lit. Yngst fundagerðin var í plastmöppu og blöðin voru tekin úr.
Þunn innbundin handskrifuð bók með línustrikuðum blöðum. Bókin geymir fundagerðir stjórnar S.S.K. og formannafunda sambandsins frá 1955 - 1982 og eru fundagerðir vel læsilegar. Bókin hefur varðveist mjög vel. Límborði er á kili bókarinnar.
Ljósritað hefti eða pappírsgögn með fundargerð formannafunds S.S.K. árið 2003. Eintakið var bundið í glært spjald og þykkan pappír, heft saman og límborði þar yfir það var fjarlægt. Blöðin rifnuðu hjá skjalaverði þegar efra heftið var fjarlægt, að öðru leyti hafa gögnin varðveist ágætlega og eru vel læsileg.
Harðspjalda handskrifuð bók í lélegu ástandi. Blaðsíður lausar, blettóttar og rifnar en bókin er föst við kjöl sem er með límborða á. Bókin er vel læsileg og gott væri að myndar hana til að varðveita heimildina.
Raddir heiðursfélaga Kvenfélags Sauðárkróks, upptaka gerð 2. febrúar að Ásvallagötu 9, Rvk. af Hannesi Péturssyni. Heiðursfélagar kvenfélagsins eru: Elínborg Jónsdóttir, Jórunn Hannesdóttir og Sigríður Sigtryggsdóttir
Sjö harðspjalda handskrifaðar fundabækur í misgóðu ástandi en allar nema ein eru með límmiða á kili. Stofnun félagsins og starfsemi er rituð hér og gaman að lesa.
Harðspjalda handskrifuð bók með grænni kápu og er í lélegu ástandi. Mikið los á blaðsíðum og þær rifnar en læsilegar. Kápa laus frá bók að nánast öllu leiti en hangir rétt saman á þræði.
Safnið inniheldur skýrslur, fundagerðir, fundaboð og -dagskrár, félagatal, ársreikninga, ágrip úr sögu kvenfélagsins, bréf og erindi, fréttabréf, ræður formanna, uppskriftir, heillaóskir vegna 70 ára afmælis kvenfélagsins, kveðskap, kjörseðla og eyðublöð. Um mikið og fjölbreytt safn er um að ræða.
Tvær fundargerðarbækur, innbundnar og handskrifaðar og hafa varðveist mjög vel, sú elsta er síðan 1908. Tölvuútprentað söguágrip í þremur heftum í A4 stærð, gert 2008.
1 handskrifuð fundagerðabók og 1 handskrifuð reikningabók. Einnig lausir reikningar. Með er fundargerð 27. aðalfundar Sambands skagfirskra kvenna 1969.
Safn fundagerðabóka og pappírsgagna sem voru í vörslu Sigurbjargar Halldórsdóttur í Brekkukoti og síðar hjá Halldóru Magnúsdóttur dóttur Sigurbjargar sem var ritari kvenfélagsins. Í safninu eru 2 innbundnar og handskrifaðar fundagerðabækur og pappírsgögn sem samanstendur af handskrifuðum bréfum, fundargerðir frá K.Í, Sambandi Norðlenskra kvenna, rit sem fjalla um ýmis konar handavinnu og fræðsluefni um félagsmál og fundastjórn, kveðskap og handskrifaðar frásagnir. Í safninu eru einnig nokkur handskrifuð bréf frá Rannveigu Líndal til Sigurbjargar sem þá var formaður Kvenfélagsins Óskar og bréf til Magnúsar Hartmannssonar í Brekkukoti vegna milligöngu hans um kaup á spunavél fyrir kvenfélagið. Magnús var í samskiptum við Stefán Jónsson á Núpi við Djúpavog sem framleiddi spunavélar sem kvenfélagið keypti. Safnið var óflokkað og mikið af bréfunum varðveitt í umslögum. Bréfin voru flokkuð ítarlega, umslögin voru flest orðin snjáð og búið var að fjarlægja frímerkin af þeim voru grisjuð úr. Heilleg umslög fengu að vera áfram í safninu. Ein blaðsíða úr Morgunblaðinu, laugardaginn 26. júlí 1969 var grisjuð úr safninu á henni var umfjöllun um 100 ára afmæli kvenfélags Rípurhrepps - sjá slóðina hér fyrir neðan.
Aftan á ljósmynd stendur; Frú Amalía Sigurðardóttir Víðimel Góða vinkona Bestu nýársóskir, þakkir fyrir hjálpina í sumar og allt annað elskulegt á liðnum árum. Vinsemdarkveðja frá Ingibjörgu á Löngumýri
Bókin er kjallímd með þunnri kápu. Á titilsíðu stendur: "Kvenréttindafélag Íslands 40 ára. 1907-1947. Minningarit. Reykjavík, útgefandi: Kvenréttindafélag Íslands 1947.
Safn með pappírskópíum, bæði í lit og svart hvítar sem tengjast starfi Sambands Skagfirskra Kvenna. Margar myndanna eru merktar SSK og eru með númeratali, þó ekki allar. Myndunum var heldur ekki raðað eftir neinni sérstakri númeraröð þegar var farið var yfir safnið. Elstu myndirnar eru frá árinu 1944 og er á myndinni konurnar sem voru á 2. aðalfundi samabandsins. Yngstu myndirnar eru líklega frá árinu 1987 þegar Friðrik Örn Haraldsson tók við verðlaunum fyrir verðlaunatillögu fyrir minjagrip fyrir S.S.K. Myndirnar eru í ýmsum stærðum og gæðum og sumum þeirra fylgja blöð með nöfnum þeirra einstaklinga sem eru á þeim. Í safninu voru einnig nokkarar myndir úr safninu stækkaðar og ljósritaðar, gæðin á þeim var ekki góð og ákveðið var að taka það úr, að öðru leyti er safnið í góðu ásigkomulagi. Myndirnar voru settar í sýrufría plastvasa ásamt blöðum og miðum með nöfnum þeirra til að auðvelda nafngreiningu.
Safn ljósmynda sem tengjast starfi Sambands Skagfirskra Kvenna. Margar myndanna eru merktar SSK og eru með númeratali, en þó ekki allar. Myndirnar voru ekki raðaðar í neinni sérstakri númeraröð. Elstu myndirnar eru frá árinu 1944 og 1945, á myndunum eru konurnar sem voru á 2. og 3. aðalfundi samabandsins. Í safninu eru einnig myndir frá 40 ára afmælishátíðar S.S.K. sem haldin var í Bifröst á Sauðárkóki 1983, gróðursetningu á Hólum árið 1985 og forsetaheimsókn hjá Frú Vigdísi Finnbogadóttur. Yngstu myndirnar eru líklega frá árinu 1987. Myndirnar eru í ýmsum stærðum og gæðum og sumum þeirra fylgja blöð eða miðar með nöfnum þeirra einstaklinga sem eru á þeim. Í safninu voru einnig nokkarar myndir úr safninu stækkaðar og ljósritaðar, gæðin á þeim var ekki góð og ákveðið var að taka þær úr að einni mynd undanskildri, að öðru leyti er safnið í mjög góðu ásigkomulagi.
Pistill og söguágrip unnin upp úr fundargerðum í tilefnis 100 ára afmælis Kvenfélags Staðarhrepps. Fluttur á aðalfundi Sambands Skagfirskra Kvenna (SSK), dags. 27.04.2008.