Ljóð, 6 erindi sem hefur titilinn "Hjéraðsvötn hin eystri búruð í apríl 1896". Á ljósritinu stendur að þetta sé úr bréfasafni Friðriks Hansen og óvíst sé um höfund".
Gögn úr fórum Péturs Jónassonar, sem lengst bjó í Minni-Brekku í Fljótum. Flest stílabækur sem hann hefur ritað í ýmsan fróðleik og kveðskap, ýmist hefðbundnar stílabækur eða innbundnar. Margt af því er skrifað upp úr bókum og útvarpsþáttum. Einnig er að finna fróðleik tengdan Fljótunum sem hann virðist hafa ritað sjálfur, en ljóst er af bréfaskiptum við Hannes Hannesson frá Melbreið að hann hefur oft haft annála hans til hliðsjónar. Safnið inniheldur mikið af kveðskap og er stór hluti hans eftir Guðmund Stefánsson í Minni-Brekku. Þá eru í safninu bréf og fjöldi dagbóka Péturs frá tímabilinu 1950-1970.
Gögn tengjast veru Haraldar Sigurðssonar í Möðruvallaskóla í kringum 1896, svo sem einkunnir, glósur og kennsluefni. 1 lítið glósuhefti inniheldur vísur og er með annarri rithönd, mögulega yngra efni.
Persónuleg gögn Björns Jónssonar, Sauðárkróki. Ljósmyndir, ljósritaðar vísur eftir ýmsa höfunda og heillaóskaskeyti. Í safninu eru einnig skjöl foreldra hans, Jóns Björnssonar og Unnar Magnúsdóttur.
Gögn um Jón Arnbjörnsson vinnumann á Svaðastöðum í Viðvíkursveit, Skagafirði. Ljósmynd, nafnskírteini og vísa ort um Jón. Með fylgir greinargerð um Jón eftir Pálma Rögnvaldsson.
Ein lítil ljóðabók sem telur 8 bls. í litlu broti. Heftuð saman, en hefti hafa verið fjarlægð. Höfundur ljóðanna er Pétur Jónsson og heitir bókin "Til Skagafjarðar"
Ljósrit af bréfi frá Rúnari Kristjánssyni til Harðar Ingimarssonar, inniheldur mynd Stefáni Kemp í forgrunni þar sem horft er í norðaustur til Illugastaða. Orð út frá meðfylgjandi mynd eru svo aftan við þar sem ort hefur verið vísur um myndina.
Þrjú vélrituð blöð með Hellulandsbrag eftir Ólaf Áka Vigfússon. Ólafur lést árið 1961 en þetta skjal hefur mjög líklega verið vélritað og ljósritað nokkuð eftir lát hans. 5 vélirtuð blöð með Útreiða - Túrinn, 38 vísur á 5. bls sem hafa verið vélritaðar og ljósritaðar. 01.02.2024. LVJ
Ljóðabálkur eftir Gunnar Einarsson í Bergskála um stórbrunann mikla á Hellulandi árið 1928. Þrjár vélritaðar síður og ein handskrifuð nafnaskrá, óvíst um upprunann og hvenær það barst safninu en greinilega er skjalið búið til eftir daga Gunnar.
Forprentuð, vélrituð og handskrifuð kvæði, ljóð og stökur eftir konur en í safninu er einnig eitt ljóð er eftir Jón Trausta og lítill pappírsbútur með æðruleysisbæninni. Í safninu er kvæði sem var ort árið 1910 og er tileinkað Kvenfélagi Staðarhrepps. kvæðið er eftir Guðrúnu Ólafsdóttur frá Páfastöðum. Kvæðið Draumsýn eftir Áslaugu S. Jensdóttur, Núpi. Þrjú afmælisljóð til S.S.K. eftir Emmu Hansen í tilefni af afmæli sambandsins 1983. Söngur Sambands Norðlenskra Kvenna, eftir Laufeyju Sigurðardóttur frá Torfufelli. Ljósrit af textum með nokkrum vísum og stökum, neðst á blaðinu stendur: Rúvak í Árgarði 10/2 1984 - Fjöldasöngur. Ljóðabréf til Oddfríðar Skúladóttur eftir Guðrúnu Jónsdóttur, dagsett. Rvk. 14.des 1913. Staka eftir Áslaugu Jensdóttur, á hlið bréfsins er handskrifað með penna Snorri Ingimarsson. Vort land, kvæði eftir Emmu Hansen sem ort var í tilefni 70 ára afmælis S.N.K. 1984 (á tveimur bls.). Handskrifaðar vísur eftir Diddu. önnur vísan heitir; Til Margrétar á Löngumýri 60 ára. Vísur eftir Hólmfríði Jónasdóttur þar sem hún þakkar stjórn Sambands Skagfirskra Kvenna fyrir boð til handa öldruðum Skagfirðingum 27. júní 1987. Handskrifaðar vísur eftir Kristbjörgu Bjarnadóttur frá Litlu-Brekku. Önnur vísan er með titlinum Stiklað á stóru (eða gaman og alvara) og var flutt í Miðgarði 24.okt. 1986. Hin vísan eða textinn við laginu "Komdu og skoðaðu í kistuna mína" var vélrituð og ljósrituð og heitir Minningabókin. Textinn er einnig að finna í hefti sem S.S.K. lét gera í tilefni afmælishátíðar sambandsins 1983. í safninu er einnig forprentaður texti með baráttusöng Kvennafrídagsins og kallast Hvers vegna kvennafrí, textinn er eftir Valborgu Bentsdóttur, lag; "Frjálst er í fjallasal".
Ljóðið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Búið er að klippa horn af örkinni. Um er að ræða erfiljóð frá dóttur Ragnheiðar Eggertsdóttur (1844-1934) frá dóttur hennar, Jakobínu Gísladóttur. Ástand skjalsins er gott.
Ljóðin eru vélrituð á tvær pappírsarkir í A4 stærð. Annars vegar afmælisljóð á 90 ára afmæli og hins vegar og hins vegar kveðja frá Hestamannafélaginu Léttfeta. Ástand skjalsins er gott.
Ljóðið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Um er að ræða erfiljóð um frú Önnu Sigurjónsdóttur (1926-1958) kennara í Hróarsdal, sem ber yfirskriftina "Kveðja frá eiginmanni og börnum." Ástand skjalsins er gott.
Ljóð eftir Erlend Hansen, Friðrik Hansen og Sigurð Jónsson (Arnarvatni) við lög. Nótnablöð með ljóðum. Af sumu eru tvö eintök. 1 blaðaúrklippa um tildrög lagsins "Blindi drengurinn" en lagið var eftir Pétur Sigurðsson og ljóðið var eftir Friðrik Hansen.
Ljóðin eru vélrituð á tvær pappírsarkir, í A4 og A5 stærð. Annað þeirra ber yfirskriftina Fyrsta vorblómið, hitt er án titils. Ástand skjalanna er gott.
Ferskeytlan er handskrifuð á pappírsbleðil í stærðinni 12x7 cm. Aftan á blaðið er skrifað að hún sé skrifuð af höfundi sjálfum. Ástand skjalsins er gott.
Óljós aldur. Kverið inniheldur: Veronikukvæði, Kvæði um kristi krafta. Sálmur til Jesú Krist og Sálmur um sælu himna. Ekki er ljóst hver skrifar kvæðin upp.
Aftast í heftinu má sjá skrifað með annarri skrift nöfnin Björn Björnsson, Sigríður til Ingibjörg Pjetursdóttir ásamt orðsendingu sem hefst á "Góða vina mín...Nú sendi ég þér það sem ég bað þig fyrir um daginn og ætla ég að biðja þig ..". Það er nokkuð óljós hvað er skrifað.
18 línustrikuð blöð með handskrifuðum kveðskap. Mörg ljóðanna eru ort í tilefni af afmælum eða virðast ætluð til flutnings við þorrablót eða slíkar samkomur. Á sumum blaðanna er búið að strika yfir og breyta einstaka orðum. Ritað með rithönd Péturs sjálfs.
Ljóðið er handskrifað á á pappírsörk með rithönd Árna. Efst á blaðið er búið að skrifa athugasemd: "Alli í Grímsey sendi mér svartfuglsegg, og mun það vera tilefni ljóðsins.
Fjölritað hefti í A5 broti, alls 12 síður að kápu meðtalinni. Inniheldur brag um íbúa og mannlíf á Sauðárkróki. Tengist ef til vill revíum sem farið var að sýna á Króknum árið 1943 (sjá https://timarit.is/page/6567777#page/n23/mode/2up) Ástand skjalsins er gott.
Útgefið rit í stærðinni 22,5 x 14,2 cm. Hólaljóð. Biskupsvígsla á Hólum 10. júlí 1910, er vígður var Geir biskup Sæmundsson. Skáldið Matthías Jockumsson flutti ljóðið í Hóladómkirkju á vígsludaginn. 8 bls. Félagsprentsmiðjan 1910.
Á fremstu blaðsíðu er skrifað: Frá mömmu til Siggu 3. júní 1905. Í bókinni eru handskrifaðar vísur og kveðjur frá vinum og vandamönnum, skrifað á mismunandi tímum.