Bréfasafn félagssins sem barst á umræddum tímabili, gögnin eru í misjöfnu ástandi, sum léleg og er reynt að slétta úr blöðum á meðan önnur eru í betra ástandi. Hreinsað hefur verið úr gögnum bréfaklemmur og hefti og nokkuð er um ryð eftir það.
Prentuð gögn frá safni inniheldur m.a. Sýningarskrá fyrir heimilisiðnaðardeild fyrir Landbúnaðarsýningar 1947 og tímaritsgrein um Fundagerð 1916 frá Ársfundi Sambandsfjélags norðlenskra kvenna settur á Sauðarkrók. Einnig verðlistar, leiðbeiningar um byggingu safnfors , verðskrá fyrir búnaðarvélar og verkfæri og óútfyllt eyðublöð. Gögnin eru blettótt og eitthvað rifið, eitt póstkort frá1916 og tvö Rjefspjald Ísland frá 1899 og 1910 liggja hér.
Vísur eftir Dr. Jón Helgason. Virðist vera teknar saman af "K.S.B.". Á heftið er skrifað: "Þessi kvæði Dr. J. H. hafa ekki komið mikið fyrir augu almennings."
Minningarbók Steinunnar Trine Hansen Kristjáns en hún var föðursystir Erlendar Hansen. Ljósritið virðist koma frá Björgvini Brynleifssyni, Skagaströnd, syni Steinunnar.
"Jeg undirritaður fel hérmeð herra hreppstjóra Jóni Jónssyni á Hafsteinsstöðum í hendur, að meta fyrir mína hönd í uppboðinu að Hóli í Svartárdal laugardaginn þ. 3. marz n.k., til þess að gæta þar hagsmuna minna sem og að ákveða söluskilmála. Skal allt sem tilnefndur herra hreppstjóri Jón Jónsson gjörir fyrir mína hönd á léðu uppboði jafngilt vera og ég gjörði það sjálfur." Þetta er ritað Sauðárkróki 1. mars árið 1900. Vottar eru Ólafur Jónsson og Magnús Benediktsson. Undir plaggið ritar Popp sem hlýtur þá að vera Christian Popp kaupmaður í Skagafirði.
Jón Sveinsson frá Þangskála. Sagnaþættir. Ehdr. I. "Sagnaþáttur af Heiðar og Veðramóts ættar fjölskyldunni". II. "Formenn í Skefilsstaðahreppi" (um 1890). III. "Slysfarir í Skagaheiði".
Nokkrar þjóðsögur skrifað hefur Sigurður Þórðarson. Ártal óljóst en Sigurður titlar Sigurður Þórðarson á Fjalli. Meiri hluti bókar eru þjóðsögur en aftast í bók má finna ættartal og hugrenningar.
Þjóðsögur sem eru skrifaðar : Draumur Elínar á Guðlaugsstöðum Afturgangan á Bakka Reimleikinn á Rauðanesi – Sögn Sigurlaugar Sigurðardóttur Vinnumaðurinn á Sveinsstöðum Forlagaða Gunna Leirár Skotta Söngurinn Draugagangurinn á Geitaskarði Jón holdsveiki Drauga reiðin Draugurinn á Möðrufelli Reimleikinn á Nýjabæ Drengurinn frá Framnesi Miklabæjar Sólveig Lærleggurinn í Hólagarði Þáttur af Skottu Nýjabæjar-presturinn Útileigumaðurinn á Staðarfjöllum Fóstbræðurnir Fylgja Jóhanns á Brúnastöðum Reimleikurinn við Blöndu Mannsbeinið
Handskrifuð stílabók sem inniheldur: I. "Ljóðmæla-samtíningur. M. h. Jóns Sveinssonar frá Þangskála. Nafngreindir höfundar: Baldvin Jónsson skáldi. Guðmundur Jónsson vinnumaður á Fossi (mun lengi hafa verið vinnumaður á Höskuldsstöðum á Skagaströnd). Jón Gottskálksson frá Selá. Sigurður Stefánsson, Garðshorni, Höfðaströnd. Skúli Bergþórsson, Kálfárdal. II. Um slysfarir á sjó og hrakninga, eftir Jón Sveinsson frá Þangskála. Ehdr.
Handskrifuð stílabók, með hendi Jóns Sveinssonar frá Þangskála, sem inniheldur ljóð og sagnaþætti eftir Jón: I. "Saknaðar og minningar ljóð........", Útfararljóð". I Um flutninga fólks til Ameríku úr Skefilsstaðahreppi og Sauðárhreppi á tímabilinu frá 1874-1904". II. "Afburðamenn að afli og leikni í glímu íþróttinni". III. Dulræn sögn viðkomandi Fljótamönnum. Um sjóslysið 6. jan. 1899 . IV. "Sagnir viðkomandi Sölva Helgasyni förumanni".
Sagnaþættir o. fl. eftir Jón Sveinsson frá Þangskála. Ehdr. I. "Lausleg umsögn um samtíðarmenn mína í Skefilstaðahreppi frá 1893-1929". II. "Ættarsöguþáttur frá Jóni Rögnvaldssyni á Hóli á Skaga". Meðfylgjandi bréf frá Jóni Sveinssyni til sr. Helga Konráðssonar, 1942. III. "Nokkrar leiðrjettingar við ritgerðir mínar til skagfirzkra fræða" , 1943.
63 umslög, sem ekki tókst að para saman við bréf. Flest öll stíluð á Sigurð Sigurðsson. Á sum þeirra er búið að rita dagsetningar eða aðrar athugasemdir.
"Hugleiðing". "Kaflar úr líkræðum" yfir Ásgrím Guðmundsson, Þorbjargarstöðum og Jónas Vilhelm Lárusson, Sævarlandi, eftir sr. Finnboga Kristjánsson, Hvammi, Laxárdal. Ehdr.