Ýmsir samningar á milli hreppsins og ábúenda. M.a. gjafabréf Sigurðar Guðmundssonar á Heiði í Gönguskörðum frá 1864 þar sem hann leggur fé til stofnunar fátækrarsjóðs Sauðárhrepps. Lánaskjöl, kaupsamningar og fleira.
Handskrifað sendibréf á þrjú línustrikuð blöð til Sigurjóns, dags. 13.október 1947 um stofnun Ungmennafélagsins Fram. Bréfið er vel varðveitt og læsilegt.
Safn með 13 sendibréfum, 7 jólakortum, 4 nafnspjöldum og einu skeyti sem Stefán Guðmundssyni (Íslandi) frændi Stefönu sendi henni á tímabilinu 1930-1965.
Ein innbundin bók um bókhald einstaklinga persónugreinanleg gögn nöfn og heimili. Bókin er í góði lagi, Miði er fremst í bók þar stendur Afhent af Birni Egilssyni Sveinsstöðum, 21.03.1974. K.B. Miði látin halda sér.
Í safninu eru skipulagsteikningar fyrir tjaldsvæðið á Hólum og líklega hluta af íbúðabyggðinni á Hólum og skipulag trjáræktar eftir reitum. Ekki var hægt að aldursgreina allt safnið, en það var látið halda sér óbreytt, hefti voru fjarlægð úr skjölunum.
um 20 blöð með handskrifuðum vísum eftir Magnús. Blöðin eru án dagsetningar og ártals að undanskilin vísa sem er samin til Jónasar Jónassonar frá Hofdölum á jólunum 1935.