Ljósmyndir, 75 stk. Teknar í Kanada. Eiríkur Haukur Stefánsson, eiginmaður Minnýjar, dvaldi hálft annað ár í Kanada snemma á sjötta áratugnum og því ljóst að myndirnar eru úr hans fórum.
Í safninu eru tvær innrammaðar ljósmyndir, bekkjarmynd Sigurbjargar (Boggu) úr Ungmennaskóla Sauðárkróks og hópmynd nemenda í bekkjarferðalagi sumarið 1932.
Í safninu eru 12 ljósmyndir af Stefáni, 1 skuggamynd og 2 myndir í myndarömmum - þær voru fjarlægðar úr römmunum. Önnur myndin var úrklippa úr blaði- eða tímariti. Hin myndin tekin á ljósmyndastofu og er (líklega) árituð af Stefáni, með dagsetningunni 5.12.1929 og er líklega tekin stuttu áður en hann fer utan til náms. Rammarnir eru varðveittir áfram í safninu. Flestar myndirnar eru af Stefáni í leikbúningum, einnig eru nokkrar ljósmyndir teknar á ljósmyndastofu. Skrifað er á bakhlið nokkurra ljósmyndanna sem allar eru varðveittar í plastvösum. Stefáni í leikbúningum, einnig eru nokkrar ljósmyndir teknar á ljósmyndastofu. Skrifað er á bakhlið nokkurra ljósmyndanna sem eru varðveittar í plastvösum.
Bókin inniheldur lög félagsins (ódagsett), auk þess voru gerðar nokkrar lagabreytingar sem dagsettar voru 1975 og 1979. Einnig er skrá yfir félaga frá 1941-1988 færðar í bókina.
Handskrifaðar innbundnar og óinnbundnar bækur, vel læsilegar og í ágætu ásigkomulagi. Bækurnar innihalda fundareglur, einnig lög og reglur U.M.F.T. og lagabreytingar sem gerðar voru á fundum til ársins 1959.
Kápulaus stílabók um lög félagsins byrjar á 5. grein. Félagaskrá og fundargerð 11. des. 1932 til 29. okt. 1933. Bókin er föst saman á heftum sem eru látin halda sér og klippt hefur verið bls úr bókinni.
Gögnin hafa að geyma handskrifaðar heimildir, bækur og prentuð blöð. Þetta eru ýmsir samningar, lög og skýrslur sem tilheyrðu U.M.F.H. Gögnin eru í misgóðu ástandi, en vel lesanleg.
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi. í bók liggur kvittun fyrir afhendingu bókar til skjalasafns. Bókin er handskrifuð af Jóni Gíslasyni Guðmann, bónda á Skarði við Akureyri og afhendist hér með Héraðsskjalasafni Skagfirðinga 16. sept. 1993. Undirritun Ísak Guðmann. Bókin er uppskrift Jóns G Guðmanns á blaðinu "Mas og þras" frá árinu 1916 - 1917, II. árgangur, tölublöð 1 -11. Vantar allan fyrsta árgang.
Lítil harðspjalda handskrifuð ljóða og minnisbók Sigríðar Traustadóttur. Hún ritar sín ljóð og annarra í þessa litlu bók á meðan hún er á ferðalagi sínu. Hún er einnig að þýða í bókinni ljóð eftir Colly Monrad Rósir lífs og dauða og Kvöldvísa eftir Göethe, ásamt því að yrkja ljóð á norsku, hér er einnig ljóð um Jón Magnússon Ósmann.
Minnisbækur formanns eru teknar frá safni og settar hér í eina öskju. Bækurnar eru í góðu ástandi og mismikið í þær skrifað. Þetta eru ýmist gormastílabækur, stílabækur eða harðspjalda bækur.