Bókin er harðspjalda og handskrifuð en kápan er orðin mjög léleg, rifinn og trosnuð og er bókin með límborða á kili sem heldur kili saman, en bókin er laus frá. Blaðsíðurnar eru fínar og vel læsilegar. í bók er laus lítil bók, viðskiptabók frá Sparisjóð á Sauðárkrók nr.278 um bókhald Vinagjöf frá 1904 - 1941. Ein undirrituð kvittun um úthlutun úr sjóðnum. 1939.
Kaupsamningur Upprekstrarfélags Staðarfjalla á Reynistaðarafrétt árið 1898. Bréfið er líklega eftirrit af upprunalega kaupsamningnum en samningurinn er dagsettur 28.03.1898 á Hafsteinsstöðum. Í samningnum segir "Afréttarfélagið er: allur Staðarhreppur, allir Rípurhreppur að undanteknu Eyhildarholti, af Seyluhreppi Langholtið fram að Litlu-Seylu að henni meðtaldri, Geldingarholt, holtskot, Fjall, Vatnskarð og Elvogar innan sama hrepps, af Sauðárhreppi allir bæir í Borgarsveit." Einnig fylgir frumvarp til reglugjörðar fyrir notkun Staðarafréttar, skyldum og réttindum sem eign þeirri fylgir.
Ein harðspjalda handskrifuð bók í lélegu ástandi, los á blaðsíðum og blaðasíður lausar. Aftari kápa er laus frá kili en bókin hangir saman að framan. Þetta er ekki stofnfundarbók og kemur ekki fram stofnun félagsins.
Gjörðabók ungmennafélagsins Vaka í Viðvíkurhreppi byrjar á stofnfundi mánudag 10. mars 1930, til að ræða um stofnun ungmennafélags í Viðvíkurhreppi. Lesin voru uppköst af lögum og borin undir atkvæði og samþykkt í heild. í bókinni eru síðan lögin rituð ásamt fundargerðum. Aðalreikningabók er um tekjur og gjöld félagsins Vöku og inn í bók eru 6 laus blöð um ýmsar greiðslur t.d. greiðsluábyrgð til Björns Gíslasonar vegna harmonikkukaupa sem U.M.F Vaka á fyrsta veðrétt í. Björn Gíslason skuldbindur sig að spila á dansskemmtunum sem félagið kann að stuðla til í sínu umdæmi, umrætt tímabil frá 10. okt. 1940 - 10. okt. 1942. Einnig er listi um Ungmennafélagatal 1942.
Handskrifaðar innnbundnar og óbundnar bækur og pappírsgögn frá U.M.F.T. Bækurnar eru flestar vel varðveittar og í góðu ásigkomulagi, sú elsta er frá stofnun ungmennafélagsins árið 1907. Í safninu er að finna fundagerðir, félagatal, bókhaldsgögn, vísur/stökur og formleg erindi. Þrjár bækur sem innihalda lög og fundareglur ungmennafélagins eru áhugaverðar og eru í sér öskju. Ákveðið var að flokka fundargerðir U.M.F.T. sérstaklega þar sem þær fylla tvær öskjur, mikið af bókhaldsgögnum eru líka í safninu. Talsvert var af stökum bókum og pappírsgögnum um ýmsa starfsemi innan félagsins sem fylla eina öskju. Gögn er tengjast knattspyrnu- og körfuboltadeildina eru flokkuð og varðveitt í sér öskjum.
Bækur frá Ungmennafélagi Hegra eru í misgóðu ástandi. Þær lýsa því félagstarfi sem átti sér stað í félaginu, en það var stofnað 30.05. 1908 af 12 félagsmönnum.Í fyrstu fundargjörðabók eru lög félagsins, skuldbindingaskrá og reglugjörð samin fyrir glímuverðlaunapening U.M.F " Hegri".
Gögn Ungmennafélags Geisli / Bindindisfélagið Tilreyndin, er ein askja sem inniheldur fimm bækur um fundargerðir, lög, og bókhaldsgögn, og ein örk með ýmsum skjölum frá félaginu.
Handskrifuð bók í nokkuð góðu ástandi segir frá bókhaldi félagsins og svo lausar blaðsíður um fundarsköp, en ártal á öftustu síðu er skráð hér. Laus blöð, ein opna um lög ungmennafélagsins en þau eru ekki með ártali, blöðin blettótt og með ryðblettum.
Askjan inniheldur fjórar innbundnar og handskrifaðar fundargerðarbækur, sú elsta er frá 1905, innihald þeirra eru fundargerðir, reikningshald, lög og félagatal. Bækurnar hafa allar varðveist mjög vel og eru í góðu ástandi.
Gögn Ungmennafélags Holtshrepps, Fljótum í Skagafirði, frá 1919 til 1971. Í safninu eru alls sex bækur, fjórar fundagerðabækur, frá 1919 - 1964, ein bók með efnahagsreikningum félagsins, fyrir tímabilið 1935-1948 og bók með félagatali og lögum félagsins, dags.1919 - 1949.
Ýmis gögn Ungmennafélagsins Höfðstrendinga eru í þessu safni s.s bókhald, bréfasafn, fundagerðabækur, sveitablaðið Félaginn 2 árg, ( D-A-c ). Harðspjaldabók um leikritið Henrik og Pernille eftir Ludvig Holberg, Baron of Holberg (3 December 1684 – 28 January 1754) skrifað 1724, en þýðandi Lárus Sigurbjörnsson ( D-A-a ) ásamt fleiri áhugaverðum gögnum. Gögnin eru flokkuð í hverju skipulagi eftir ártali, elstu gögn neðst en þau yngstu efst.
Gögn úr fórum Tryggva Guðlaugssonar í Lónkoti. Flest bókhaldsgögn er varða búrekstur, dagbækur og minniskompur, bréf og ýmis önnur gögn. Hluti gagnanna tengjast syni hans, Oddi Steingrími Tryggvasyni, sem lést ungur.
Ýmis gögn sem tilheyra rekstri Tónlistarskóla Skagafjarðar. M.a. bókhaldsgögn, nemendalistar, lög og reglur, kjarataxtar og launatöflur, fundargerðir o.fl. Gögnin voru afhent til safnsins 25.09.2003. Með liggja gögn sem voru án afhendingardags, en spanna sama tímabil.
Gjafabréf Eyþórs Stefánssonar til Tónlistarskóla Sauðárkróks. Eyþór gefur 1.000.000 króna til sjóðsstofnunar sem átti að "þjóna því markmiði að styrkja þá nemendur skólans, er hyggja á framhaldsnám í hljóðfæraleik eða söng, eftir að hafa lokið tilskyldum prófum við skólann."
Sveitarblað sem hefur gengið á milli bæja í Blönduhlíð. Erfitt að átta sig á hver hefur forgöngu um stofnun blaðsins en svo virðist sem það hafi verið til áður og sé endurrisið kringum 1919. Fyrri skráning (handritasafn HSk) segir: Stígandi, sveitar- eða lestrarfélagsblað í Út-Blönduhlíð, að því er virðist. Ritað 1919 til 1925.
Ljósmyndir frá Ríkharði Jónssyni myndhöggvara varðandi hugmyndir að minnisvarðanum Arnarstapa, teikning Hróbjartar Jónassonar múrarameistara á Hamri og eitt skjal til nefndarinnar
Skjalasafn Steinunnar Sigurjónsdóttur í Hátúni á Langholti. Gögnin eru samsafn af hennar persónulegu gögnum, bréfum og bókhaldi, ásamt gögnum barna hennar. Steinunn hefur haldið utan um gögn barna sinna frá grunnskólagöngu þeirra og fram á fullorðinsár og eru þau þess vegna skráð með hennar eigin gögnum.
Safn sem byggist á bréfaskrifum milli Stefönu við frænda hennar óperusöngvarann Stefán Íslandi, þau áttu í bréfaskrifum um 35 ára skeið eða frá því að hann fór utan til söngnáms í Genova á Ítalíu 1930 og allt til ársins 1965 er hann bjó og starfaði í Kaupmannahöfn. Á þeim tíma nam Stefán og starfaði lengi á Ítalíu og svo síðar er hann hóf störf hjá Konunglegu óperunni í Kaupmannahöfn. Í safninu, auk sendibréfanna eru handskrifaðar jólakveðjur, nafnspjöld og skeyti. Einnig efnisskrá tónleika sem Stefán og Else Brehms héldu í Reykjavík ásamt undirleikaranum Fritz Weisshappel og skáldsaga sem er merkt Stefáni. Í safninu voru tveir myndarammar, í þeim voru tvær myndir - önnur þeirra pappírskópía var sett í viðeigandi plastvasa ásamt öðrum litmyndum sem voru í safninu. Hin myndin var úrklippa úr tímariti eða blaði með mynd af Stefáni, sú mynd var grisjuð úr safninu. Ákveðið var að halda myndarömmunum áfram í safninu. Allt safnið er ágætlega varðveitt.
Ýmis gögn úr fórum Stefáns Jónssonar frá Höskuldsstöðum, svo sem sagnaþætti eftir hann, uppskriftir upp úr handritum, handrit Stefáns að bókum og greinum, sveitablaðið Hjarandi og bréf.
4 árgangar af blaði sem var gefið út í Akrahreppi, er nefndist: Gaman og alvara. Stefán Jónsson á Höskuldsstöðum gaf safninu árið 1983. Í fyrri skráningu / handritaskráningu segir um þessi gögn: Gaman og alvara, handskrifað blað. "Gefið út að tilhlutan nokkurra ungra manna" í Akrahreppi. 4 árgangar, 1916-1919. Helstu nafngreindir höfundar: Agnar Baldvinsson, Bjarni Halldórsson, Gísli R. Magnússon, Hannes J. Magnússon, Jón Eiríksson, Jón E. Jónasson, Stefán Eiríksson, Stefán Vagnsson.
Gögn frá Sparisjóð Hólahrepps komu frá einkasafni Harðar Jónssonar, Hofi 2, oddvita Hólahrepps 1982 - 1990. Gögnin voru óhrein við komu og umfang mikið um 20 kassa af blönduðu safni Harðar. Þau voru flokkuð og hreinsuð og skipt niður í 3 söfn. N00476, N00477. N00478. Gögn voru látin halda uppruna eins og hægt var en vegna ýmist góðs skipulags gagna eða óreiðu voru þau sett í þau 3 söfn sem var unnin út frá rekjanleika og skipulagi.