Formleg erindi og bréf. Gjaldskrár Tryggingastofnunar ríkisins, innheimtubréf frá Ríkisspítölunum og samningur á milli Sjúkarsamlags Staðahrepps og Ole Bang lyfsala á Sauðárkróki, einnig er skipunarbréf um varaformann sjúkarsamlagsins frá Félagsmálaráðuneytinu.
Heimilisbókhald hjónanna. Hér er haldin skrá yfir allt það sem keypt var fyrir heimilið yfir árið, allt frá matvöru til fatnaðar. Í einstaka bók má finna minnispunkta húsmóðurinnar varðandi matseld.
Bréf til og frá Akraskóla. Flokkun gagnanna þegar þau bárust safninu var með þeim hætti að möppur merktar einstaka skólaárum innihéldu bréf og var sú flokkun látin halda sér. Því er flest bréf frá tímabilinu 1996-2006 að finna í flokki D-Skólastarf.