Í safninu eru skipulagsteikningar fyrir tjaldsvæðið á Hólum og líklega hluta af íbúðabyggðinni á Hólum og skipulag trjáræktar eftir reitum. Ekki var hægt að aldursgreina allt safnið, en það var látið halda sér óbreytt, hefti voru fjarlægð úr skjölunum.
Ein innbundin bók um bókhald einstaklinga persónugreinanleg gögn nöfn og heimili. Bókin er í góði lagi, Miði er fremst í bók þar stendur Afhent af Birni Egilssyni Sveinsstöðum, 21.03.1974. K.B. Miði látin halda sér.
Safn með 13 sendibréfum, 7 jólakortum, 4 nafnspjöldum og einu skeyti sem Stefán Guðmundssyni (Íslandi) frændi Stefönu sendi henni á tímabilinu 1930-1965.
Handskrifað sendibréf á þrjú línustrikuð blöð til Sigurjóns, dags. 13.október 1947 um stofnun Ungmennafélagsins Fram. Bréfið er vel varðveitt og læsilegt.
Ýmsir samningar á milli hreppsins og ábúenda. M.a. gjafabréf Sigurðar Guðmundssonar á Heiði í Gönguskörðum frá 1864 þar sem hann leggur fé til stofnunar fátækrarsjóðs Sauðárhrepps. Lánaskjöl, kaupsamningar og fleira.
Gögnin eru frá einkasafni Harðar Jónssonar og eru flokkuð eftir þeim félögum sem birtust í hans safni og látin halda sér að mestu leiti. Gögnin eru mest pappírsgögn en einnig handskrifaðar upplýsingar frá Herði við hans fjölmörgu störf s.s línustrikuð handskrifuð stílabók frá hans formennsku í UMSS 1980. Gögnin eru vel læsileg
Afrit af hinum fjölmörgu handskrifuðu og prentuðu bréfum er Gísli ritaði til ýmisra aðila. Bréfin eru í misgóðu ástandi en öll þokkalega vel læsileg, vert er að geta að bréfsefnið er oft á tíðum eldri prentuð blöð sem Gísli nýtir til að prenta á afritin. Gísli undiritar oft bréfin sín með nafnastimpli sem hann lét útbúa eftir sinni rithönd því hann var orðin skjálfhentur. Bréfin eru flokkuð eftir stafrófsröð og sett þannig saman í arkir, eins og þau lágu í uppruna, en örk sem var utan um bréfin fyrir er hreinsuð. Safnið er hreinsað af bréfaklemmum.