Þetta er grín-fréttablað. Engin dagsetning. Undirritað Simbi. Samtíðarmenn í Skuggsjá. Á forsíðu er m.a teiknuð mynd af manni ásamt orðunum Pax vobiscum (Friður sé með yður). Simbi gæti mögulega verið Sigmundur Jónsson (1927-2011) sem skrifaði undir nafninu Simbi.
Vélritað hefti með 8 blaðsíðum og kápu. Vélritað. Inniheldur bændavísur eftir Gunnþórunni Sveinsdóttur frá Mælifellsá. Ortar um bændur í Laxárdal og á Skaga.
Innbundin handskrifuð bók í lélegu ástandi bókakápa rifin og einnig blaðsíður en bókin er bundin saman með bandi og vel læsileg. Stofnfundabók félagsins.
Í færslubók dags, 1987-1989 voru eftirfarandi gögn: óútfyllt eyðublöð og formlegt bréf frá Ríkisendurskoðun vegna minningarsjóð Jóhanns Ellertssonar, dags.20.01.1991. Útfyllt afrit af efnahagsreikningi vegna minningarsjóðs Jóhanns Ellertssonar, dags. 20.3.1989. Færslukvittanir frá Búnaðarbanka Íslands frá árinu 1990, Ljósrit af bókhaldsfærslum frá ÍSÍ og UMFÍ til Ungmennafélags Æskunnar fyrir árið 1990, Tvö afrit af rekstrarreikningi vegna 1989-1990. Þrjú fundarboð frá UMSS og eitt kjörbréf á ársþing, dagsett 2.3.1990, 6.4.1990 og 5.2.1991.Tvö blöð með nafnalistum, líklega vegna kosninga í stjórn, blöðin eru ódagsett.
Vel varðveitt forprentuð bókasafnsspjöld og lánsskírteini. handskrifaðar upplýsingar um höfund og bókarheiti og nöfn lántakenda eru á spjöldunum, þau eru með dagsetningum en óvíst er um ártöl. Lánsskírteinin eru ónotuð.
Forprentuð línustrikuð og óbundin pappírsgögn með upplýsingum um bókartiltla í eigu lestrarfélagsins. Gögnin eru vel læsileg og hafa varðveist ágætlega.
Fylgigögn bókhalds. Efnahagsreikningu f. árið 1941-1942 í A3 broti. Bókhaldskvittanir og reiknivélastrimlar, raðað eftir ártali. Þessi gögn fundust í reikngsbókinni.
Bréfritari er Guðmundur Erlendsson oddviti Bólstaðarhlíðarhrepps, ritað í Mjóadal 28. ágúst 1910. Bréf til Alberts Kristjánssonar, Páfastöðum, oddvita í Staðarhreppi. Í bréfi kemur meðal annars fram að greiddar séu 32.50 kr til Staðarhrepps vegna barns. Ritað um dilk-byggingarkostnað
Innbundin og vel læsileg harðspjaldabók, í bókinni eru skráð formleg erindi og bréf sem send eru í nafni félagsins einnig fundarboð. Í bókinni er auk þess handskrifað afrit af samningi Garðyrkjufélags Seyluhrepps og Málfundafélagsins Fram um kaup garðyrkjufélagsins á spildu á fitjunum neðan við Reykjarhólsgarð fyrir sundlaugarstæði, dagsett 23. júní 1912. Einnig er í bókinni tilkynning til félagsmanna og auglýsing um kartöflur til sölu í Reykjahólsgarðinum. Ein fundagerð er í bókinni, dags. 3. maí 1925 og reikningar félagsins f. árið 1926. Í bókinni eru tvö skjöl: a) Listi með nöfnum eigenda hlutabréfa í Garðyrkjufélagi Seyluhrepps, árið 1944. b) Skjal sem kallast Úskrift úr afsals og veðmálabókum Skagafjarðarsýslu. Um er að ræða saming um kaup Guðmundar Guðmundssonar bónda á Reykjarhóli, á spildu á Reykjarhóli, svonefndan Reykjahólsgarð. Skjalið er dagsett 27. ágúst 1920.
Innbundin, handskrifuð og vel læsileg bók. Í bókinni eru skráð bréf og erindi sem hafa borist U.M.F.T. einnig erindi og bréf sem félagið sendi á tímabilinu 1908-1925. Í bókinni er skráð reglugjörð fyrir glímuverðlaunapening U.M.F.T., dags. í desember 1911. Bókin er vel varðveitt.
Bréf frá Janis Johnson til Guðlaugar. Skrifað á ensku. Dagsetning 22.september en ártal er ekki skýrt, mögulega 2002. Bréfsefni er merkt "The Senate of Canada" og Hon. Janis Johnson, Ottawa, (613) 943-1430 í rauðu letri. Með fylgir ljósrituð mynd af Þóru Jónsdóttir. Á myndinni er skrifað á ensku fædd í september 1860 á Hólum og dó 1882 á Sauðárkróki.
Tvö bréf til Guðlaugar og Þóris frá Laufeyju frænku þeirra, skrifuð á íslensku og merkt Winnipeg, Manitoba. Fyrra bréfið er til Guðlaugar og er skrifað 24 desember, 1966. Seinna bréfið er til Guðlaugar og Þóris bróðir hennar, skrifað 27 september, 1973
Útskorin minningarfjöl úr Víðimýrarkirkju tileinkuð Benedikt Halldórssyni Vídalín (1774-1821) frá Reynistað - bónda á Víðimýri og konu hans Katrínu Jónsdóttur biskups Teitssonar á Hólum. Benedikt var bróðir Reynistaðarbræðra.
Innbundin og handskrifuð bók með dagbókarfærslum og fundagerðum dýraverndurnarfélagsins, hún er vel læsileg og í góðu ásigkomulagi. Færslur eru aðeins í hluta bókarinnar.
Innbundin bók með bókhaldsfærslum. Færslurnar eru handskrifaðar og vel læsilegar. Bókin er vel varðveitt, kjölurinn er aðeins laus í sér en hann er heill. Kjölurinn er límdur aðallega til að merkja bókina.
Þykk innbundin bók í A4 stærð með bókhaldsfærslum. Færslurnar eru handskrifaðar og vel læsilegar. Bókin er vel varðveitt, kjölurinn er heill en hann er límdur aðallega til að merkja bókina.
Þunn stílabók með bókhaldsfærslum, bundin með tveimur heftum. Færslurnar eru handskrifaðar og vel læsilegar. Kjölur bókarinnar er límdur með rauðu límbandi (örugglega upprunalegt) sem er farið að losna frá neðst. Ath. opnan í miðjunni hefur losnað frá heftunum.
Gögn með félagaskrá dýraverndunarfélagsins, með nöfnum 68 einstaklinga í A4 blaðastærð. Einnig eru handskrifaður nafnalisti líkt með strikum og númerum sem eru innan sviga við hvert nafn, auk handskrifaður listi með nöfnum 13 nýrra félaga. Í safninu er einnig handskrifað bréf, líklega fundagerð eða uppkast af bréfi, dagsett 17/2 ekki kemur hvaða ár þetta var einnig eru nokkrir minnispunktar, óvíst er hvort þetta allt tengist. Vélrituð lög um fuglaveiðar og fulgafriðun, II kafli, dags.28.4.1966.
Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hreinsuð af heftum og plastblöðum.
Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hreinsuð af heftum og plastblöðum.
Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hreinsuð af heftum og plastblöðum.
Handskrifuð, vélrituð og ljósrituð pappírsgögn, m.a. formlegt erindi til hreppstjórnar Seyluhrepps, samningur um húsnæði, lög foreldrafélagsins. Gögnin eru öll vel varðveitt.
Ártal ekki vitað. Frásögn um að hefðarkona úr Skagafirði (mögulega Ragnheiður Einarsdóttir, kona Halldórs Bjarnasonar Vídalín klausturshaldara á Reynisstað) hafi fundið Jón á 2. aldursári bundinn í baðstofu einni í Öxnadal og tekið hann með sér í Skagafjörð og látið hann í fóstur þar.
Frumvarp til reglugjörðar fyrir notkun Staðarafréttar, skyldum og réttindum sem eign þeirri fylgir. Líklega eftirrit af upprunalega skjalinu. Frumvarpið er í 14 greinum og undirritað á Hafsteinsstöðum 28. mars 1898.
Handskrifað skjal með fundargerð vegna dráttarvélakaupa og reglugerð um um notkun hennar. Að kaupunun stóðu búnaðarfélögin í Hofshreppi, Óslandshlíð og Hólahreppi að kaupunum. Skjalið er vel varðveitt en það hefur rifnað og er viðkvæmt viðkomu.
Innbundin og handskrifuð bók með límborða á kili. Bókin er vel læsileg og varðveitt. Bókin inniheldur fundagerðir og lög félagsins -, reikninga,- skýrslur og formleg bréf. Helmingur bókarinnar er ekki nýttur, þ.e. auðar blaðsíður. Fremst í bókinni er hvítt autt blað. Inni í miðri bókinni er lítið blað með viðurkenningu fyrir greiðslu fyrir akstur frá Sauðárkróki framm í Starrastaði, dags.26.4.1920. Undirritað af Jóhannesi Jónassyni.
innbundin og handskrifuð bók með límborða á kili. Bókin er vel læsileg og varðveitt. Bókin inniheldur fundagerðir og lög félagsins-, reikninga,- skýrslur og bréf. Aftast í bókinni er lausblöð með efnahagsreikning búnaðarfélagsins fyrir árið 1936.
innbundin og handskrifuð bók, vel læsileg og varðveitt. Bókin inniheldur fundagerðir á tímabilinu 1959-1984. Aftast í bókinni er lausblöð með hluta af fundagerð dags.27.4.1984. Blöðin eru merkt með blaðsíðunr. 193 og 194. Einnig er blað með dagskrá aðalfundar Búnaðarfélags Lýtingsstaðahrepps 1984. Blaðið er þar að auki með blekblettum og pennakrassi.
Innbundin og handskrifuð bók sem heldur utan um fundagerðir, félagatal, lög og reikinga félagsins frá 1908-1933. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist ágætlega.
Ein stílabók með línustrikuðum blaðsíðum sem á eru handskrifaðar fundagerðir Lýtingsstaðadeild Kaupfélags Skagfirðinga 1945-1955. Aðeins helmingur bókarinnar er nýttur, restin eru auðar blaðsíður. Límborði er á kjöl bókarinnar, bókin er vel læsileg og ágætlega varðveitt. Fjarlægja þurfti heftin innan úr bókinni þar sem þau voru farin að skemma út frá sér. Aftast í bókinni var komið fyrir mikið magn af lausum pappírsgögnum í A5 og A4 stærð, bæði línustrikuð og rúðustrikuð með handrituðum fundagerðum. Þetta mikla magn af pappír aflagaði bókina. Fremst í bókinni var komið fyrir blaði þar sem staðfest er fyrir móttöku á bókinni og skjölunum á Héraðsskjalasafninu 24.2.1974.
Innbundin og handskrifuð bók í A3 stærð með línustrikuðum síðum. Bókin er ágætlega varðveitt, kápan er orðin frekar snjáð. Inni í bókinni eru forprentuð skrá frá Í.S.Í. með lista yfir sambandsfélög ÍSÍ, dags. 1. júlí 1944. Aftast í bókinni eru tvö blöð á þeim eru handskrifað erindi til íþróttafulltrúa, engin undirskrift er en bréfið er á tveimur línustrikuðum blöðum og er dags. 9.1.1950.
Innbundin og handskrifuð bók með línustrikuðum síðum. Bókin hefur varðveist ágætlega og mikið af blaðsíðum bókarinnar eru óskrifaðar. Í bókinni eru laus blöð, línustrikuð með handskrifuðum fundagerðum, dags, 4.1.1962 og 1.1.1971.
Ein innbundin og handskrifuð bók. Í bókinni eru fundagerðir, félagaskrá, bóka- og útlánayfirlit lestrafélagsins og reikningar. Bókin er í góðu ásigkomulagi,er vel læsileg. Límborði er á kili bjókarinnar.
Innbundin og handskrifuð bók með fundagerðum, reikningum félagsins og félagatali. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist vel. Í bókinni er lítill miði með nöfnum nokkurra einstaklinga, líklega félagsmanna og "Afklippingur" frá Skrifstofu Fræðslumálastjóra í Reykjavík, dags.3.10.1944.
Lausblaða pappírsgögn í A5 og A4 stærð, bæði línustrikuð og rúðustrikuð með handskrifuðum fundagerðum Lýtingsstaðadeild Kaupfélags Skagfirðinga 1956-1973. Gögnin voru inni í stílabók úr sama safni, blöðum raðað upp í ártalsröð til einföldunar. Fundagerðirnar eru vel læsilegar og gögnin í góðu ásigkomulagi. Hefti og bréfaklemmur fjarlægðar þar sem þau voru farin að skemma út frá sé vegna ryðs.
Innbundin bók með línustrikuðum blaðsíðum með handskrifuðum fundargerðum. Bókin er læsileg og varðveist sæmilega. Bókakjölurinn og kápan hafa verið límd sama með límbandi. Límborði er á kjöl bókarinnar og bindingin er orðin léleg.
Fundargerðir Skagfirðingafélagsins í Reykjavík frá upphafi, 6. desember 1936, til ársins 1960. Markmið félagsins í upphafi var að vinna að því að setja á stofn mennta- og menningarsetur við Reykjarhól í Seyluhreppi (Varmahlíð). Starfssemi félagsins verður fjölbreyttari þegar á líður. Nafn félagsins var fyrst "Varmahlíð" en var strax á 3ja fundi breytt í Skagfirðingafélagið í Reykjavík.
Innbundin og handskrifuð bók sem hefur varðveist mjög vel og er mjög heilleg.í bókinni auk fundargerða, eru reikningar félagsins og skýrsla um þátttöku félagsmanna í keppnum.
Harðspjalda bók með handskrifuðum fundagerðum og bókhaldsfærslum. Bókin er vel læsileg og hefur varðveist ágætlega en límborði heldur kjölnum, en bindingin er ónýt. Blöðin eru blá og eru fremstu blöðin farin að losna frá.
Innbundin og handskrifuð fundargerðarbók, tímabilið 1912-1922. Þetta er stofnfundabók Sngmennafélags Tindastóls og í henni eru fyrstu lög þess. Nokkrar blaðsíður hafa verið klipptar eða skornar úr, ein blaðsíða er laus í bókinni. Binding bókarinnar er orðin mjög léleg.
Innbundin og handskrifuð bók og vel læsileg. Bindingin farin að gefa sig annars er bókin í góðu ásigkomulagi. Kjölurinn og kápan eru heilleg, límt er yfir kápuna.
Innbundin handskrifuð bók og vel læsileg. Bókin eru í góðu ásigkomulagi, nokkur blöð hafa verið klippt eða skorin úr. Tvö laus blöð eru í bókinni, eitt handskrifað bréf, dags 14.11.1937 um úrsögn úr U.M.F.T. Bréfið er undirritað af Jófinnu Maríusdóttur. Eitt vélritað bréf frá Sambandsstjórn U.M.F.Í. dags. 5. mars.1940 vegna skuldar ungmennafélagsins við U.M.F.Í.
Innbundin, handskrifuð og vel læsileg bók. Þessi gjörðabók kom í staðinn fyrir aðra sem byrjað var að skrá fundargerðir í (fyrir tímabilið 1939-1962). Bókin hefur varðveist ágætlega.
Innbundin og handskrifuð og vel læsileg fundagerðarbók. Í athugasemd í bókinni kemur fram að það vanti fundargerðir fyrir árið 1962 þar sem þær glötuðust.
Innbundin og handskrifuð og vel læsileg bók, fundagerðirnar eru frá stofnun Ungmannafélags Tindastóls. Blaðsíður eru heillegar en bókin hefur varðveist illa, bókin er án kjalar og bindingin er einnig illa farin. Nokkuð af blöðunum inni í bókinni eru laus úr bindingunni.