Fremsta röð talið frá vinstri: Lárus Blöndal, Haraldur Sigurðsson, Jóhannes Hallgrímsson. Miðröð, talið frá vinstri: Haraldur Júlíusson, Guðmundur Björnsson, Hermann Jónsson. Aftasta röð: Gunnar Sigurðsson, Árni Magnússon, Gísli Guðmundsson.
Aðallega gögn Samvinnufélags Fljótamanna, þ.á m. vörubækur (1922-1927), vörulisti frá 1926, skrá yfir félagsmenn 1927, gögn tengd sláturhúsinu 1974-1975 og bryggjunni/höfninni í Haganesvík 1962-1965.
Frumrit bréfa frá fjölskyldinni Ljótsstöðum í Skagafirði til hjónanna Guttorms Vigfússonar og Sigríðar Guðbjörgar Önnu Sigmundsdóttur (1862-1922) er bjuggu á Geitagerði í Fljótsdal. Bréfin eru frá tímabilinu 1887-1918.
Raddir heiðursfélaga Kvenfélags Sauðárkróks, upptaka gerð 2. febrúar að Ásvallagötu 9, Rvk. af Hannesi Péturssyni. Heiðursfélagar kvenfélagsins eru: Elínborg Jónsdóttir, Jórunn Hannesdóttir og Sigríður Sigtryggsdóttir
Skjöl úr fórum Gunnars Oddssonar í Flatatungu á Kjálka. Gamlar bækur, tímarit ungmennafélagsins Framfarar og gögn Veiðifélags Skagfirðingar Héraðsvatnadeildar. Gögnin voru afhent úr dánarbúi Gunnars.
Ljóðabálkur eftir Gunnar Einarsson í Bergskála um stórbrunann mikla á Hellulandi árið 1928. Þrjár vélritaðar síður og ein handskrifuð nafnaskrá, óvíst um upprunann og hvenær það barst safninu en greinilega er skjalið búið til eftir daga Gunnar.
9 eintök af fréttabréfum sem voru gefin út á Sauðárkróki á árunum 1970-1984. Blöðin eru Krókstíðindi, Krókur á móti bragði og Bæjarfréttir. Blöðin eiga öll sameiginlegt að fjalla um málefni líðandi stundar í bæjarfélaginu.
Ein lítil ljóðabók sem telur 8 bls. í litlu broti. Heftuð saman, en hefti hafa verið fjarlægð. Höfundur ljóðanna er Pétur Jónsson og heitir bókin "Til Skagafjarðar"
Stór harðspjalda handskrifuð bók með blaðsíðunúmerum upp í 294 en ritað er upp í blaðsíðu 102. Í bók eru laus gögn sem sett eru í Item. Gögnin eru hreinsuð af heftum og bréfaklemmum. Bókin er blönduð gjörða og reiknisbók og persónugreinaleg.
Gögn úr búi Garðars Víðis Guðjónssonar. Annars vegar gögn frá föður hans, Guðjóni Jónssyni Tunguhálsi. Hins vegar gögn sem höfðu borist konu Garðars, Sigurlaugu G. Gunnarsdóttur.
Skjalasafnið inniheldur: Ljósmyndir, bréf, greinargerð, fréttabréf, ferðaþjónustu bækling og umslög. Myndirnar eru teknar í tíð Friðriks sem Félagsmálastjóri Sauðárkróksbæjar á árunum 1979-1982.
Lítið en blandað safn frá Framsóknarfélagi Lýtingsstaðahrepps sem inniheldur eina innbundna og handskrifaða fundagerðabók og forprentuð og handskrifuð pappírsgögn frá tímabilinu 1931-1967 safnið látið halda sem mest uppruna sínum en því var raðað upp í ártalsröð. Í safninu eru ársskýrslur félagsins, félagaskrá og fundagerðir, bókhaldsgögn, beiðni um úrsögn úr félaginum, reikningsyfirlit frá Kaupfélagi Skagfirðinga, lög Framsóknarflokksins sem samþykkt voru á flokksþingi 1941 og handskrifað bréf frá Gísla Magnússyni frá Eyhildarholti. Ryðguð hefti voru hreinsuð úr.
Gögnin innihalda, frumvarp til laga fyrir félagið það segir að tilgangur félasins er að bæta engjalönd þeira jarða sem taldar eru í gr.2 Hjaltastaði, Hjaltastaðakot, Hjaltastaðahvamm, Frostastaði, Ystu- Grund, Syðri - Brekkur, Ytri - Brekkur, með framræslu og áveitu. Vatn til áveitunnar skal tekið úr Héraðsvötnum og Þverá. Handskrifað bréf og 2 prentuð bréf til Herra Stefán Vagnssonar.frá Pálma Einarssyni Búnaðarfélag Íslands.
Gögnin innihalda rekstur félagsins, lög, fundagerðir og skýrslur eru vel læsilegar og segja sögu félagsins. Bækur er nokkuð góðar en þó viðkvæmar, los á blaðsíðum og gulnuð blöð en ein blaðsíða er laus. Nöfn, heimili og búpeningu er hér nefndur. Félagsmenn eru skráðir. Útigöngu og vinnuhross skráð svo og ær, lömb, kálfar, veturungar og naut. Fóðurkaup og skýrsluskráning.
Þrjár bækur í góðu ástandi og pappírsgögn í viðkvæmu ástandi. Samkvæmt gögnum er talið að félagið hafi verið stofnað 1938 og sameinast svo samkvæmt lögum Búnaðarfélagi Íslands 24.04.1974 og eignum félagsins ráðstafað þannig að sjóðurinn verði í vörslu hreppsnefndar en vöxtum hans varið til að verðlauna snyrtimennsku í búskap og umgengni á félagasvæðinu.
Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi og pappírsgögn í misgóðu ástandi, blettótt, rifin og með ryðblettum eftir bréfklemmur sem eru hreinsaðar burtu ásamt heftum.
Þorvaldur Ari Arason (1848-1926) var kenndur við Flugumýri og Víðimýri. Í skjalasafni hans er að finna ýmis skjöl er viðkoma búrekstri og félagsstarfi Þorvaldar en einnig eldri gögn úr fórum föður hans Ara Arasonar (1813-1881) lækni og stórbónda á Flugumýri og afa, Ara Arasonar (1763-1840) héraðslæknis og stórbónda á Flugumýri.
Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hreinsuð af heftum og plastblöðum. Ein skrá um hrúta sem verða notaðir 1984 - 1985.
Í safninu eru forprentaðar yfirlitsskýrslur um fjárrækt og hrútadóma í eigu félaga í Fjárræktarfélagi Seyluhrepps. Töluvert var af skýrslum sem voru prentaðar í tvíriti og voru afritin tekin úr safninu þar sem það átti við, skýrslunum var raðað eftir ártali og var það skipulag látið haldast nánast óbreytt. Gögnin koma úr möppu og voru millispjöld úr plasti tekin úr og hefti hreinsuð úr. Gögnin að öðru leyti haldast eins og þau voru.
Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hreinsuð af heftum og plastblöðum.
Harðspjalda handskrifuð Gjörðabók segir frá stofnfundi félagsins og þeirri starfsemi er var í félaginu. Í bókina er lítið skrifað og hún er í góðu ásigkomulagi. Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hafa verið hreinsuð af plastblöðum sem voru milli ártala.
Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hreinsuð af heftum og plastblöðum.
Persónugreinanlegar yfirlitsskýrslur um fjárrækt bænda og einkunnir hrúta. Gögnin koma úr möppu sem er hreinsuð burt og plastspjöld einnig, gögnin eru látin halda sér eins og þau voru sett í uppruna.