Stílabók sem Erla Björk fann uppi á Mælifellshnjúk. Bókin er illa farna af bleytu, í henni kemur fram að Sigríður Kristín Jónsdóttir setti bókina í kassann á hnjúknum 31.7.2019 og átti hún að þjóna sem gestabók. Síðasta færslan er gerð 25.10.2019.
Ljósritað hefti eða pappírsgögn með fundargerð formannafunds S.S.K. árið 2003. Eintakið var bundið í glært spjald og þykkan pappír, heft saman og límborði þar yfir það var fjarlægt. Blöðin rifnuðu hjá skjalaverði þegar efra heftið var fjarlægt, að öðru leyti hafa gögnin varðveist ágætlega og eru vel læsileg.
Bréf frá Janis Johnson til Guðlaugar. Skrifað á ensku. Dagsetning 22.september en ártal er ekki skýrt, mögulega 2002. Bréfsefni er merkt "The Senate of Canada" og Hon. Janis Johnson, Ottawa, (613) 943-1430 í rauðu letri. Með fylgir ljósrituð mynd af Þóru Jónsdóttir. Á myndinni er skrifað á ensku fædd í september 1860 á Hólum og dó 1882 á Sauðárkróki.
2 vélrituð bréf til Sigurlaugar frá Örlygi Hálfdánarsyni. Hvoru bréfi fylgir ljósrit af ljósmynd og er verið að biðja Sigurlaugu að greina staðina á myndunum.
Forprentuð og tölvuprentuð skjöl, í safninu eru þakkarbréf frá Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, Könnun á hlutverkum kvenfélaganna árið 1999, spurningalisti frá Byggðasafni Skagfirðinga og bæklingurinn Kvenfélög við aldahvörf,höf. Sigríður Sigurðardóttir. Bréf með niðurstöðu rannsóknar á stöðu og viðhorfum kvenna í dreifbýli á Norðurl. vestra.
Forprentuð og ljósrituð pappírsgögn, í safninu er veifa merkt Slysavarafélagi Íslands 7 ára, forprentað eyðublað fyrir ársskýrslur kvenfélaganna. Einnig formleg erindi og bréf frá stórn Sambands Borgfirskra Kvenna, K.Í, Landspítalanum, Sameinuðu sveitarfélagi í Skagafirði. Ódagsett og án ártals lög Kvenfélagssambands Íslands. Einnig eru lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda, minnisblað er varða Lífeyrisréttindi hjóna, og lög um orlof húsmæðra nr.53/1972.
Vélrituð, forprentuð, tölvuprentuð og ljósrituð pappírsgögn. Í safninu eru fundarboð vegna aðalfundar SSK, ársreikningur sambandsins og orlofssjóðs. Þakkarbréf frá ýmsum aðilum innan Skagafjarðar vegna gjafa frá SSK. Formlegt erindi frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Einnig fundarboð á stofnfund Beinverndar, einnig bæklingur í tengslum við það og lög félagsins. Bréf og erindi frá K.Í. meðal annars um framtíð kvenfélaganna í landinu.
Formleg erindi til SSK frá Sigrúnu Ingibjörgu Arnardóttur á Akureyri vegna styrks til að læra þjóðbúningasaum, Húsmæðraskólanum á Hallormsstað og samtökum austfirskra kvenna. Bæklingur frá Kvenasögusafni Íslands. Önnur formleg erindi eru frá K.Í. auk annara skjala.
Í safninu eru handskrifuð, vélrituð og tölvuprentuð og ljósrituð gögn. Meðal annars er ársskýrsla og fundargerð frá formannafundi SSK. Þakkarbréf frá Kvenfélagi Sauðárkróks, Sjúkrahúsi Skagfirðinga, Gagnfræðaskóla Sauðárkróks og Grunnskólanum á Hólum. Önnur erindi, bréf og jólakort.
Teikning af hópi fólks ásamt hestum fyrir utan torfbæ og kirkju. Á hlaðinu liggur lífvana manneskja og tveir menn bera aðra. Á blaðinu sem myndin var límd á stóð: „Á Víðimýri. Hungur. Mynd No 11. + 2 ótölusettar myndir. Frá „Heima er best“ Kafli 8. Hungur“. Myndin var birt í bókinni um Grafar-Jón og Skúla fógeta eftir Björn Jónsson - bróður Jóh.Geirs - á bls. 94-95. Bókin kom út árið 1996 en Björn Jónsson lést árið 1995 - myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1995.
Í safninu er ársskýrsla Kvenfélags Staðarhrepps ásamt umsóknar S.S.K. um styrk til Stéttarsambands bænda og bæklingur vegna 80 ára afmælis Sambands Norðlenskra Kvenna og auglýsing um dagskrá opnunarhátíðarinnar Árs fjölskyldunnar.
Lýsing á "Hestinum í Mælifellshnjúknum" Ljósmynd, texti og mynd til útskýringar fylgir þar sem lýst er viðmiðum gamalla manna í Skagafirði um hvenær væri óhætt að leggja af stað yfir öræfin á sumrin. En það fundu þeir út, út frá snjóalögum í Mælifellshnjúk.
Í safninu eru þrjú símskeyti og nokkur jólakort í tilefni af 50 ára afmælisárs S.S.K. Einnig póstkort stílað á Pálínu Skarphéðinsdóttur frá Sigríði Ingimarsdóttur. Bæklingur sem kallast Hugmyndaskrá Landbúnaðarins, lög Sambands Norðlenskra Kvenna og erindi frá K.Í. til formanna héraðssambandanna.
Tölvuútprentuð pappírsgögn með formlegum og óformlegum erindum. Í safninu eru greinagerð um að auka minjagripa- og nytjalisframleiðslu í Skagafirði og Húnavatnssýslunum, einnig eru gögn um reglur um smáverkefnasjóð landbúnaðarins og fundarræða sem tengist samstarfi Jafnréttisráðs og K.Í. sem er ódagsett og án ártals en var með þessum gögnum og þess vegna leyft að vera þar áfram það er það sama með bækling frá Stígamótum og fleiri gögn.
Mikið að skjölum er í þessu safni, meðal gagna eru fundarboð, skýrslur frá kenfélögum í Skagafirði, dagskrá aðalfundar og listi yfir formenn félaga innan S.S.K. Erindi og bréf sambandsins til K.Í, handskrifuð bréf og erindi. Í safninu eru einnig afrit af skýrslum frá sambandsfélögum innan K.Í. og þakkarbréf frá S.S.K. til Bæjarstjórnar Sauðárkróks vegna fjárstyrkja og áskorun til ráðherra heilbrigðismála um skilagjald á flöskur, áldósir o.s.frv. Erindi um jafnréttismál frá Margréti Guðnadóttur prófessor. Formleg og óformleg bréf, ályktanir, erindi og skýrslur frá K.Í. Einnig ársreikningur tímaritsins Húsfreyjunnar, skipulag ferðar á vegum S.S.K Hollands, Belgíu og V-Þýskalands og úrklippa með umfjöllun um ferðina í Feyki og fleiri skjala.
Í safninu eru 2 innbundar bækur, 1 hefti með dagbókarfærslum ásamt fylgigögnum bókhalds. Um er að ræða skýrslur á sundurliðun á opinberum gjöldum, skilagreinar fyrir skattinn, reiknings- og viðskiptayfirlit, erindi frá skattsjóra, verðskrá á trjáplöntum, útfyllt tékkhefti og greiðslukvittanir og árs-, aðalreiknngar skógræktarfélagsins. Úr safninu var grisjað ljósrit með aðalreikningum félagsins sem voru til í tveimur eintökum og eitt eintak fyrir hvert ár (1990-1992) var haldið eftir. Talsvert var af erindum og bréfum á meðal fylgigagna bókhalds sem fært var yfir í safn A.
Í færslubók dags, 1987-1989 voru eftirfarandi gögn: óútfyllt eyðublöð og formlegt bréf frá Ríkisendurskoðun vegna minningarsjóð Jóhanns Ellertssonar, dags.20.01.1991. Útfyllt afrit af efnahagsreikningi vegna minningarsjóðs Jóhanns Ellertssonar, dags. 20.3.1989. Færslukvittanir frá Búnaðarbanka Íslands frá árinu 1990, Ljósrit af bókhaldsfærslum frá ÍSÍ og UMFÍ til Ungmennafélags Æskunnar fyrir árið 1990, Tvö afrit af rekstrarreikningi vegna 1989-1990. Þrjú fundarboð frá UMSS og eitt kjörbréf á ársþing, dagsett 2.3.1990, 6.4.1990 og 5.2.1991.Tvö blöð með nafnalistum, líklega vegna kosninga í stjórn, blöðin eru ódagsett.
Í safninu eru handskrifuð, ljósrituð, vélrituð, forprentuð og tölvuútprentuð bréf, formleg og óformleg erindi, bréf og skýrslur. Á meðal skjala eru ársskýrslur kvenfélaganna í Skagafirði, lög og skýrsla frá S.S.K. (ódags. og án ártals), yfirlit yfir formenn kvenfélaganna 1988-89. Bréf frá formanni S.S.K. einnig erindi og bréf frá K.Í. og ACWW. Kynningarefni um stöðu heimilisfærði í grunnskólum og málefnum. staðfesting á greiðslum frá Stéttarsambandi Bænda, einnig umsókn um styrk SSK til Stéttarfélags Bænda. Boðskort, jólakort og ferðaskipulag til Hollands, V-Þýskalands og Belgíu auk fleiri skjala sem öll eru í góðu ásigkomulagi.
Þykk innbundin bók í A4 stærð með bókhaldsfærslum. Færslurnar eru handskrifaðar og vel læsilegar. Bókin er vel varðveitt, kjölurinn er heill en hann er límdur aðallega til að merkja bókina.
Meðal gagna sem eru í safninu eru fundarboð og dagskrá aðalfundar og formannafunda S.S.K., fundargerðir og minnispunktar frá fundunum. Formleg erindi til bæjastjóra Sauðárkróksbæjar og Skógræktarstöðvar Ríkisins, einnig óformleg bréf og erindi til formanna kvenfélaganna í Skagafirði og fundargerð Landsþings K.Í. Í safninu eru einnig fundarboð fyrir S.N.K., jólakort og þakkarkort til formanns S.S.K. Gögnin hafa öll verið mjög vel varðveitt.
Í safninu eru handskrifuð bréf fyrrv.formanns SSK til formanna kvenfélaganna, skýrslur S.S.K. fundarboð og dagskrá og handskrifuð fundargerð. Einnig formleg og óformleg erindi og bréf. Handskrifað bréf frá formanni sambandsins vegna hugmyndasamkeppni um skagfirska minjagripi. Ferðatilhögun vegna ferðar kvenfélagskvenna til Danmerkur og ljósrituð blaðaúrklippa með frásögn um heimsókn þeirra í Viuf. Í safninu er teikning af verðlaunatillagu Friðriks Arnars Haraldssonar á minjagrip fyrir S.S.K. og grein um það í Feyki sama ár. Ársreikningar og Skipulagsskrá vegna Utanfarasjóð sjúkra í Skagafirði. Allt safnið hefur verið vel varðveitt.
Handskrifuð, vélrituð og forprentuð pappírsgögn. Formleg og óformleg erindi og bréf, fundagerð aðalfundar S.S.K., bréf formanns S.S.K. til formanna kvenfélaganna í Skagafirði, og áskoranir til þingmanna, þakkarbréf og þingsályktunartillaga. Í safninu er einng silkiborði með prentaðri dagskrá afmælisfagnaðar vegna 90 ára afmælis Kvenfélags Sauðárkróks. Öll gögnin hafa varðveist mjög vel.
Safn sem inniheldur ýmisleg smáprent, sem dæmi; auglýsingabæklingar, einblöðungar, dagskrár, yfirlit yfir viðburði og kynningarefni er tengjast viðburðum og söfnum í Skagafirði. Úr safninu var grisjaðir kynningarbæklingar og mánaðaritið "Heima er bezt" 10, 1985, auglýsinga- og dagskráritið Sjónhornið og kynningarefni þar sem voru tvö eintök. Einnig var fjarlægt allt efni sem tengdist Skagafirði ekki beint. Í sumum tilvikum voru bæklingar og rit merkt skjalamyndara ásamt dagsetningu og ártali. Hefti voru fjarlægð úr einstökum ritum að undanskyldum þykkri ritum sem var leyft að halda sér óbreyttu. Safnið er vel varðveitt.
Í safninu eru handskrifuð og vélrituð, formleg og óformleg bréf og erindi, einnig skýrslur S.S.K., tvær þingsályktunartillögur og jólakort. Fundarboð fyrir aðalfund S.S.K. Fundardagskra og bókamerki er meðal gagna. Öll gögnin hafa varðveist vel.
Pappírshefti, heftað saman á langhlið með ágripi af sögu Sambands Skagfirskra Kvenna frá stofun sambandsins í tilefni 40 ára afmælis sambandsins sem var 1983. Forsíðan og bakhlið heftsins er í gulum lit, hvít blöð þar á milli. Forsíðan er myndskreytt með merki S.S.K og ártalinu 1943 en ekki dagsett, bakhliðin er án skreytingar og texta. Ágripið um sögu S.S.K. er eftir Pálu Pálsdóttur einnig er í heftinu afmælisljóð og vísur eftir Emmu Hansen, Guðfinnu Gísladóttur og Hólmfríði Jónasdóttur, einnig er texti eftir Kristbjörgu S. Bjarnadóttur frá Litlu-Brekku sem heitir "Minningabókin" og er um starfsemi S.S.K. Heftið í góðu ásigkomulagi .
Á meðal skjala eru skýrslur S.S.K., listi formanna kvenfélaganna, fundarboð og fundardagskrá. Bréf frá KÍ, bæklingar um Íslenska þjóðbúninginn og frá Heimilisiðnaðarfélaginu. Þakkarbréf og tveir límmiðar frá Thy Spillermandslaug sem er danskur hópur sem heimsótti Skagafjörð og Sólveig Arnórsdóttir tók á móti fyrir hönd S.S.K., einnig þakkarbréf auk annara formlegra og óformlegra erinda og bréfa. Öll skjölin eru í mjög góðu ásigkomulagi og vel læsileg.
Í safninu er félagatal Kvenfélags Sauðárkróks, skýrsla S.S.K. og nafnalisti formanna kvenfélaganna í Skagafirði. Þakkarbréf frá Öldrunarnefnd Skagafjarðar vegna greiðslna á fé sem Samband Skagfirskra Kvenna gaf til byggingar Hjúkurnar- og dvalarheimilisins á Sauðárkróki. Skýrsla vegna vinnuvöku, nafnalisti formanna kvenfélaga í Skagafirði og bréf til formanna. Erindi frá Friðarhópi Kvenna í Reykjavík og K.Í. Bréfasamskipti Guðrúnar L. Ásgeirsdóttur við Svend Hamborg vegna heimsóknar hans til Íslands.
Í safninu er teikning sem var gerð í tilefni 40 ára afmælis S.S.K. sem var 1983. Myndin var prentuð á veifu / borðfána. Einnig er borðfáni með merki K.Í. einnig íslenski fáninn (lítill). Teikingar og munir er allt vel með farið.
Handskrifuð, vélrituð og ljósrituð pappírsgögn, m.a. formlegt erindi til hreppstjórnar Seyluhrepps, samningur um húsnæði, lög foreldrafélagsins. Gögnin eru öll vel varðveitt.
Forprentaðar yfirlitsskýrslur, með handskrifuðum og tölvuprentuðum upplýsingum um hrútadóma, fallþunga kjöts og skrá yfir veturgamlar ær. Skýrslurnar eru flestar skráðar á Jóhönnu Kristjánsdóttur frá Róðhóli og Jón Björn Sigurðsson Bræðraá. Sumar skýrslur voru í tví- og þríriti, afritin hreinsuð úr safninu. Skýrslurnar eru með tölvuprentuðum og handskrifuðum upplýsingum. Öll gögnin eru í góðu ásigkomulagi og vel læsileg.
1 umslag og 4 Bréf skrifuð á íslensku frá Gloriu í Winnipeg, Manitoba: 1981-1986. Fyrsta bréf er dagsett 03.03.1981 Annað bréf er dagsett 20.11.1985 Þriðja bréf er dagsett 21.02.1986 Fjórða bréf er skrifað 1998 Umslag er stimplað 1986 í Winnipeg, Canada
Skjöl frá árinu 1981 í safninu eru skýrslur S.S.K., nafnalisti yfir formenn kenfélaga í Skagafirði. Formleg og óformleg erindi og bréf frá formanni S.S.K. til kvenfélaganna í Skagafirði. Í safninu eru aðallega bréfasamskipti er varða dvalarheimili aldraða í Skagafirði þar sem árið 1981 var alþjóðaár aldraðra. Fundardagskrá formannafundar S.S.K. ódags. og án ártals.
Víðinesbardagi. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir. "Víðinesbardagi í Hjaltadal 1208. Biskup sat á hesti og með honum ábótar og nokkrir prestar og kallaði að eigi skyldi berjast. Að því gáfu engir gaum. Sannaðist í þessum atburði að ekki verður ófeigum í hel komið eða feigum forðað. Í bardaganum fékk Kolbeinn stein í höfuðið og féll í öngvit og missti mál og mátt." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 16).
Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hreinsuð af heftum og plastblöðum.
Tölvuútprentuð pappírsgögn með upplýsingum um eignahlut kvenfélaganna og aðkomu félaganna að félagsheimilum í Skagafirði, s.s. skemmtanir, fundir, ofl. Skjöl eru ódagsett og án ártals og eru frá Félagsheimilinu Ketilási - Fljótum, Félagsheimilinu Höfðaborg - Hofsósi, Félagsheimilinu Árgarði - Lýtingsstaðahreppi, Félagsheimilinu Melsgil - Staðarhreppi, Félagsheimili Rípurhrepps, Félagsheimilinu Skagaseli - Skefilstaðahreppi, Félagsheimilinu Ljósheimum- Skarðshreppi. Skjölin hafa varðveist mjög vel.
Líklega frá áramótunum 1979-1980. Hefð var fyrir ólátum á Sauðárkróki á þessum tíma þar sem menn skipuðust í lið og slógust. Þarna átti að stoppa þessi læti í eitt skipti fyrir öll með sameiginlegu átaki.
Safnið inniheldur skýrslur, fundagerðir, fundaboð og -dagskrár, félagatal, ársreikninga, ágrip úr sögu kvenfélagsins, bréf og erindi, fréttabréf, ræður formanna, uppskriftir, heillaóskir vegna 70 ára afmælis kvenfélagsins, kveðskap, kjörseðla og eyðublöð. Um mikið og fjölbreytt safn er um að ræða.
Handskrifuð skjöl í A3 stærð sem innihalda skipulagsskrá hins skagfirska kvennaskóla, dags. 29. júní 1878, og var samþykkt af Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu og samþykkt sama ár. Þetta skjal er líklega n.k. afrit af upprunalega skjalinu.
Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hreinsuð af heftum og plastblöðum.
Tónlistarskóli Skagafjarðar var í grunninn stofnaður árið 1965, hann átti að þjóna allri Skagafjarðarsýslu en starfaði aldrei að neinu marki utan Sauðárkróks, líkt og hann átti að gera. Það þótti því nauðsynlegt að stofnaður yrði tónlistarskóli sem myndi þjóna öllu héraðinu utan Sauðárkróks. Árið 1976 tók til starfa Tónlistarfélag sem hafði það hlutverk að koma Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu á laggirnar og voru það nokkrir frumkvöðlar í Skagafirði sem höfðu forgöngu fyrir því. Fyrsti skólastjóri tónlistarskólans var Ingimar Pálsson, hann stýrði skólanum frá 1976-1981, Einar Schwaiger starfaði sem skólastjóri frá 1981-1984, þá tók við Anna Kristín Jónsdóttir hún var kennari skólans frá upphafi og tók svo við og stýrði tónlistarskólanum frá 1984-1999. Í kjölfar sameiningu sveitarfélaga í Skagafirði árið 1998 voru Tónlistarskóli Sauðárkróks og Tónlistarskóli Skagafjarðarsýslu sameinaðir í einn skóla. Það safn sem hér um ræðir er frá Önnu Kristínu bæði sem kennara og síðar sem skólastjóra tónlistarskólans. Safnið var í 4 öskjum (3 stk-0,08 hm) og (1 stk -0,03 hm) og samanstóð af 7 möppum og 3 innbundum bókum; fundargerðabók, nemendabók og stigspróf. 1 mappa tilheyrði Tónlistarskóla Skagafjarðar og inniheldur skjöl er varða sameiningu tónlistarskólanna tveggja. Bækur og pappírsgögn eru öll í góðu ásigkomulagi og hafa varðveist mjög vel, pappír er þó farinn að gulna. Bækurnar eru lítið notaðar og eru nánast eins og nýjar. Um safnið má segja að Anna hafi haldið öllu vel til haga. Þegar hafist var að vinna við safnið þá var búið að gróf flokka það en við nánari athugun kom í ljós að það þyrfti að fara betur yfir safnið, úr varð að skjöl tengd nemendum og starfsfólki skólans þurfti að flokka betur þar sem um persónugreinanleg gögn og mikilvægt að aðgreina þau frá öðrum skjölum og merkja þau sem „trúnaðarmál“. Það er eftirtektarvert þegar farið er yfir safnið hversu falleg rithönd Önnu Kristínar er og hversu stílhrein og jöfn hún er. Í safninu voru skjöl er varða kaup tónlistarskólans og Stefáns Gíslasonar tónlistarkennara á Norðurbrún 9 í Varmahlíð svo skólinn hefði aðstöðu til kennslu í Varmahlíð. Skólinn þurfti að ráða kennara erlendis frá og er talsvert af skjölum í safninu sem tengjast því. Úr safninu voru grisjuð nokkur ljósrit sem voru til í fleiri en einu eintaki, þar á meðal eru „skammstafanir fyrir námsgreinar í tónlistarskólum“, Rekstrar-og efnahagsreikningur STS 20. ágúst 1995, „Kynning Önnu Kristínar á tónlistarskólum á Norðurlandi“ og „yfirlit yfir skólanefnd og starfsfólk Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu“.
Forprentuð pappírsgögn með tölvuútprentuðum upplýsingum um hrútadóma, skrár yfir ásett hrútlömb, yfirlitsskýrslur yfir fjölda áa ofl. Talsvert af skýrslunum voru í tví- og þríriti eða ljósrituð, afritin voru fjarlægð úr safninu - þar sem því var við komið en annað fékk að vera áfram. Öll gögnin voru í möppu og eru vel læsileg og vel með farin. Millispjöld úr plasti og hefti fjarlægð.
Prentuð pappírsgögn sem tengjast stefnumótun (-mörkun) fyrir Skagafjörð 1995. Skjölin eru úr fórum Hjalta Pálssonar sem þá var skjalavörður Héraðsskjalasafns Skagfirðinga og kom að verkefninu í tengslum við mennta- og menningarmál (hópur 4). Um er að ræða fundarboð, sókaráætlun Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, skýrsla um skiptingu landsins í skólahverfi, úttekt á kostnað sveitarfélaga vegna rekstur grunnskóla og glærukynning. Í safninu voru tvenn eintök af sóknaráætlun Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og erindi sem Þór Magnússon þjóðminjavörður sendi Landbúnaðarráðuneytinu - einu eintaki af hvoru var haldið eftir.
Skjalasafnið inniheldur óútfyllt heiðursskjöl, bækur, fána, fjölrit, ljósmyndir, bankabækur, ávísanahefti og ýmis bókhaldsgögn úr fórum Sambands skagfirskra kvenna frá árunum 1980-2013.
Persónugreinanlegar yfirlitsskýrslur um fjárrækt bænda og einkunnir hrúta. Gögnin koma úr möppu sem er hreinsuð burt og plastspjöld einnig, gögnin eru látin halda sér eins og þau voru sett í uppruna.
Persónugreinanlegar yfirlitsskýrslur um fjárrækt bænda og einkunnir hrúta. Gögnin koma úr möppu sem er hreinsuð burt og plastspjöld einnig, gögnin eru látin halda sér eins og þau voru sett í uppruna.
Í safninu eru vérituð og fjölfölduð pappírsgögn sem innihalda fundargerðir S.S.K. frá 1974 - 1988 og 2003 sem er yngsta fundagerðin. Hver fundargerð er heftuð saman, tvær þeirra eru með límborða yfir heftin. Nokkrar fundagerðir voru til í tveimur eintökum og voru þau sem litu verr út grisjuð úr safninu, annað var látið halda sér. Búið var að rífa pappírsræmu á horni á forsíðublaði elstu fundagerðarinnar annars eru öll gögnin í góðu ásigkomulagi og vel læsileg. Flest heftin eru með forsíðu og bakhlið á lituðum pappír í gulum, bláum og gráum lit. Yngst fundagerðin var í plastmöppu og blöðin voru tekin úr.
Harðspjalda handskrifaðar bækur í góðu ástandi um starfsemi félagsins og ein handskrifuð fundagerð 1977. Í örk Item 3, er líka settur handskrifður miði er fylgdi safni og segir að Sigmundur Jónssson Vestara Hóli afhenti 4. 10. 1998.
Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hreinsuð af heftum og plastblöðum. Ein skrá um hrúta sem verða notaðir 1984 - 1985.
Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hreinsuð af heftum og plastblöðum.
Safn sem Jón Bjarnason fyrrverandi skólastjóri Bændaskólans á Hólum afhenti 2015. Safnið samanstendur af skjölum er tengjast Skógræktarfélagi Skagfirðinga og fundagerðabókum ýmissa félaga sem nemendur Bændaskólans á Hólum voru í. Safnið frá skógræktarfélaginu samanstendur af formlegum erindum, bréfum, dagbókum og skýrslum er varða að mestum hluta skógrækt á Hólum og spannar tímabilið 1974-1994. Í safninu er líka talsvert af fylgigögnum bókhalds. Reiknings- og viðskiptayfirlit, greiðslukvittanir, launamiðar, skýrslur og skilagreinar frá skattinum. Verðskrár frá Skógræktarfélagi Íslands, einnig ársreikningar- og aðalreikningar. Í safninu sem tengist nemendum bændaskólans eru fundagerðabækur er tengjast Hestamannafélaginu Hrein, Málfundafélagi Hólasveina, Málfundafélag Hólaskóla og Íþróttafélag Hólaskóla einnig fylgdi ástundunarbók sem skráðar eru mætingar nemenda í tíma. Þegar farið var að vinna safnið var það gróf flokkað. Það þurfti að fara yfir það og færa skjöl á milli, erindi, bréf og skýrslur í viðeigandi safn og fylgigögn bókhalds sömuleiðis. öll erindi, bréf og skýrslur úr bókhaldsgögnunum og var raðað eins og kostur var í ártalsröð en minna lagt í að raða bókhaldsgögnin. Talsvert var grisjað úr safninu, sérstaklega gögn sem voru til í fleiri en einu eintaki, orðsendingar og leiðbeiningabæklingar frá skattinum. Ljósrit af pöntunum fyrir trjáplöntur, fundarboð og plastvasi voru fjarlægð. Lög og frumvörp til laga og breytinga á lögum um skógrækt, skógvernd og jarðræktarlögum frá Alþingi. Rit um Náttúruminjar og frá Skógræktarfélagi Íslands og Leiðbeiningarmerki frá Vegagerðinni var einnig fjarlægt úr safninu. Úr safninu var einnig grisjað leiðbeingar fyrir sláttuvél og dælu og óútfyllt eyðublöð frá skattinum. Ákveðið var að safnið frá bændaskólanum yrði skráð með safni skógræktarfélagsins þar sem sami skjalamyndari afhenti bæði söfnin. Safnið var hreinsað af heftum og bréfaklemmum eins og kostur var. Í safninu eru persónugeinanleg trúnaðargögn.
Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hreinsuð af heftum og plastblöðum.
Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hreinsuð af heftum og plastblöðum.
Í safninu eru forprentaðar yfirlitsskýrslur um fjárrækt og hrútadóma í eigu félaga í Fjárræktarfélagi Seyluhrepps. Töluvert var af skýrslum sem voru prentaðar í tvíriti og voru afritin tekin úr safninu þar sem það átti við, skýrslunum var raðað eftir ártali og var það skipulag látið haldast nánast óbreytt. Gögnin koma úr möppu og voru millispjöld úr plasti tekin úr og hefti hreinsuð úr. Gögnin að öðru leyti haldast eins og þau voru.
Skjöl varðandi kaup Nafar h.f. og Útgerðarfélags Skagfirðinga h.f. á norska skipinu m/s Leisund frá 1973. Ýmis skjöl, svo sem lánabeiðni til Framkvæmdastofnun ríkisins og ábendingar frá Fjármálaráðuneytinu, úttekt á skipinu og leiðbeiningar varðandi kaup á erlendum notuðum fiskiskipum.
Í safninu eru forprentuð pappírsgögn með tölvuútprentuðum skýrslum um hrúta, veturgamlar ær, hrútadóma og ásett hrútlömb í eigu félaga í Fjárræktarfélagi Akrahrepps, félagið skiptist í Fjárræktarfélögin Kára og Frosta - eftir staðsetningu bæja innan hreppsins. Skýrslurnar voru ekki sorteraðar eftir heiti félags en þau eru aðgreind sérstaklega á skýrslunum. Töluvert var af skýrslum sem voru prentaðar í tvíriti eða ljósritað. Afritin voru tekin úr safninu þar sem það átti við, skýrslunum var raðað eftir ártali og var það skipulag látið haldast nánast óbreytt, sumt þurfti að setja við rétt ártal. Safnið var geymt í möppu og voru millispjöld tekin úr og hefti hreinsuð úr.
Forprentuð pappírsgögn með tölvuútprentuðum upplýsingum um hrútadóma, skrár yfir ásett hrútlömb, yfirlitsskýrslur yfir fjölda áa ofl. Talsvert af skýrslunum voru í tvíriti eða ljósrituð, afritin voru fjarlægð úr safninu - þar sem því var við komið en annað fékk að vera áfram. Öll gögnin eru vel læsileg og vel með farin.
Forprentuð pappírsgögn með tölvuútprentuðum upplýsingum um hrútadóma, skrár yfir ásett hrútlömb, yfirlitsskýrslur yfir fjölda áa ofl. Talsvert af skýrslunum voru í tvíriti eða ljósrituð, öll afrit voru fjarlægð úr safninu - þar sem því var við komið en annað fékk að vera áfram. Öll gögnin eru vel læsileg og vel með farin.