Innbundnar handskrifaðar fundagerða- og bókhaldsbækur, einnig skýrslur, félagatal, formleg erindi.
Búnaðarfélag Hofshrepps (1886-)private archives
46 Archival descriptions results for private archives
Innbundnar og handskrifaðar fundargerða - reikninga - og skýrslubækur úr safni Búnaðarfélags Hólahrepps. Um er að ræða fyrstu tvær fundagerðabækur félagsins.
Búnaðarfélag Hólahrepps (1892-1997)Í safninu var ein innbundin og handskrifuð fundagerðabók en talsvert af öðrum pappírsgögnum, forprentuð, vélrituð og handskrifuð. Safnið var grófflokkað þegar byrjað var að handleika og aðgreina það betur. Skjöl voru flokkuð eftir ártali og efni.
Nokkur umslög með litlum miðum sem á voru beiðnir um inntöku í félagið eða úrsagnir. Einnig er í safninu nokkrir miðar með handrituðum athugasemdum og fundargerðum sem eru án dagssetingar eða án ártals.
Jarðbótaskýrslum var safnað saman og þeim raðað í ártalsröð.
Í safninu eru forprentaðar auglýsingar, formleg erindi, félagatal og fylgiskjöl bókhalds.
Gögnin hefur varðveist misjafnlega vel en eru þó læsileg, gulnaður pappír og sumt hefur rifnað.
Nokkrar jarðabótaskýrslurnar voru talsvert rifnar og eru því viðkæmar allri meðhöndlun, sérstaklega skýrsla frá árinu 1931.
Yfirlit og skýrslur frá tveimur fjárræktarfélögum, Kára og Frosta sem bæði voru starfandi í Akrahreppi. Gögnin voru ekki flokkuð eftir heiti félags.
Töluvert var af skýrslum sem voru prentaðar í tvíriti eða ljósritaðar. Afritin voru grisjuð úr safninu þar sem það átti við.
Í safninu eru forprentaðar yfirlitsskýrslur um fjárrækt og hrútadóma í eigu félaga í Fjárræktarfélagi Hofshrepps. Afrit af skjölunum voru grisjuð úr safninu þar sem það átti við, skýrslunum var raðað í ártalsröð.
Fjárræktarfélag HofshreppsÍ safninu eru forprentaðar yfirlitsskýrslur um fjárrækt og hrútadóma í eigu félaga í Fjárræktarfélagi Hólahrepps.
Fjárræktarfélag HólahreppsYfirlitsskýrslur og skrár um sauðfjárrækt og hrútadóma í Holtshreppi.
Fjárræktarfélag HoltshreppsÍ safninu eru forprentaðar yfirlitsskýrslur um fjárrækt og hrútadóma í eigu félaga í Fjárræktarfélagi Hofshrepps. Afrit af skjölunum voru grisjuð úr safninu þar sem það átti við, skýrslunum var raðað í ártalsröð.
Fjárræktarfélag LýtingsstaðahreppsGögn frá fjárræktafélagi Óslandshlíðar sem inniheldur eina innbundna bók með fundagerðum félagsins og blaðsíður með uppkasti af fundargerðum, einnig yfirlitsskýrslur um sauðfjárhald.
Fjárræktarfélag ÓslandshlíðarÍ safninu eru forprentaðar yfirlitsskýrslur um fjárrækt og hrútadóma í eigu félaga í Fjárræktarfélagi Rípurhrepps. Afrit af skjölunum voru grisjuð úr safninu þar sem það átti við, skýrslunum var raðað í ártalsröð.
Fjárræktarafélag RípurhreppsÍ safninu eru forprentaðar yfirlitsskýrslur um fjárrækt og hrútadóma í eigu félaga í Fjárræktarfélagi Seyluhrepps. Töluvert var af skýrslum sem voru prentaðar í tvíriti og voru afritin tekin úr safninu þar sem það átti við, skýrslunum var raðað í ártalsröð og það skipulag látið haldast nánast óbreytt. Gögnin koma úr möppu og voru millispjöld úr plasti grisjuð úr og hefti hreinsuð. Gögnin að öðru leyti haldast eins og þau voru.
Fjárræktarfélag SeyluhreppsÍ safninu eru forprentaðar yfirlitsskýrslur um fjárrækt og hrútadóma í eigu félaga í Fjárræktarfélagi Skarðshrepps. Afrit af skjölunum voru grisjuð úr safninu þar sem það átti við, skýrslunum var raðað í ártalsröð. Einn bæklingur með lista yfir hrúta frá Sauðfjársæðingastöðinni á Akureyri 1984 - 1985.
Fjárræktarfélag SkarðshreppsÍ safninu eru forprentaðar yfirlitsskýrslur um fjárrækt og hrútadóma í eigu félaga í Fjárræktarfélagi Staðarhrepps. Töluvert var af skýrslum sem voru prentaðar í tvíriti og voru afritin tekin úr safninu þar sem það átti við, skýrslunum var raðað í ártalsröð og hélst það skipulag nánast óbreytt.
Fjárræktarfélag StaðarhreppsÍ safninu eru forprentaðar yfirlitsskýrslur um fjárrækt og hrútadóma í eigu félaga í Fjárræktarfélagi Viðvíkurhrepps. Afrit af skjölunum voru grisjuð úr safninu þar sem það átti við, skýrslunum var raðað í ártalsröð.
Fjárræktarfélag ViðvíkurhreppsLítið en blandað safn frá Framsóknarfélagi Lýtingsstaðahrepps sem inniheldur eina innbundna og handskrifaða fundagerðabók og forprentuð og handskrifuð pappírsgögn frá tímabilinu 1931-1967 safnið látið halda sem mest uppruna sínum en því var raðað upp í ártalsröð. Í safninu eru ársskýrslur félagsins, félagaskrá og fundagerðir, bókhaldsgögn, beiðni um úrsögn úr félaginum, reikningsyfirlit frá Kaupfélagi Skagfirðinga, lög Framsóknarflokksins sem samþykkt voru á flokksþingi 1941 og handskrifað bréf frá Gísla Magnússyni frá Eyhildarholti.
Framsóknarfélag Lýtingsstaðahrepps (1931-1967)Bækur og pappírsskjöl komin frá Gunnari Valdimarssyni á Fremri-Kotum.
Gunnar Valdimarsson (1907-1975)Safn sem inniheldur sjö fundagerðabækur Hins skagfirska kvenfélags sem stofnað var 1895, þar á meðal er stofnfundargerð félagsins. Í bókunum eru skráðar fundagerðir, félagatal og lög félagsins. Einnig er skipulagsskrá fyrir styrktarsjóð sem stofnaður var fyrir ekkjur í Skagafjarðarsýslu. Í bókunum er haldið utan um fjölbreytta starfsemi kvenfélagsins og það góða starf sem konurnar inntu af hendi.
Hið skagfirska kvenfélag (1895 - 1953 )Hið skagfirska kvenfélag: Fundargerðabók 1908-1911.
Félagið var stofnað árið 1895 og er enn starfandi undir nafni Kvenfélags Sauðárkróks.
11 skjöl úr dánarbúi Jóns Sigvalda Nikódemussonar. Ýmis afsöl og kaupsamningar ásamt persónulegum gögnum.
Jón Sigvaldi Nikódemusson (1905-1983)Lítið safn sem samanstendur af einni innbundinni bók og tveimur vélrituðum blaðsíðum með lögum félagsins.
Karlakór Sauðárkróks ( 1935 - 1965 )Ýmisskonar pappírsgögn sem voru í öskju sem á stóð "kvenfélagsgögn" og tengjast starfsemi Hins skagfirska kvenfélagi sem síðar varð að Kvenfélagi Sauðárkróks. Í safninu eru fundagerðir, gögn sem tengjast rekstri Félagsheimilisins Bifrastar og nýju félagsheimili sem fyrirhugað var að byggja. Jólakveðjur, einnig er talsvert af heillaóskaskeytum vegna 50, 60 og 70 ára afmælis félagsins.
Skjöl flokkuð og skráð.
Ein innbundin og handskrifuð bók.
Lestrarfélag FlugumýrarsóknarSafn Lestrarfélags Goðdalasóknar inniheldur fundagerðir, bókhaldsgögn, bókaskrár, skýrslur og eyðublöð.
Bækur og skjöl hafa varðveist ágætlega og sýnilegt að metnaður, natni og talsverð vinna liggur í öllu utanumhaldi og skráningu á safnkosti félagsins.
Innbundin og handskrifuð bók með fundagerðum og bókhaldsfærslum lestrarfélagsins. Einnig eru lög Búnaðarfélags Hofshrepps, félagatal og jarbótaskýrslur frá 1886-1894.
Lestrarfélag Hofshrepps (1880-1945)Lítið safn Lestrarfélags Hólahrepps sem inniheldur tvær innbundnar gjörðabækur, eina fundagerða- reikninga og skýrslubók og eina bókaskrá. Fimm stílabækur (ein með gormum) sem innihalda skrár yfir útlán á bókum, ein með lista yfir gjafabækur frá Friðbirni Traustasyni auk nokkura skýrslna.
Í safninu er innbundin bók sem í eru handskrifuð ljóð eftir Sigríði Traustadóttur.
Tvær elstu bækurnar eru frá 1885-1954, þær eru vel læsilegar, bókarkápurnar hafa verið endurnýjaðar á einhverjum tímapunkti en blaðsíðurnar eru bæði skítugar og blettóttar og sumar nokkuð snjáðar. Annars eru allar bækurnar í ágætu ásigkomulagi.
Stílabækur eru vel varðveittar, pappírsgögn líta einnig ágætlega út.
Úr safninu voru hefti, bréfaklemmur og umslög grisjuð frá.
Þess ber að geta að í ljóðabókinni "Vita á milli" er blaðsíðuopna, á henni er skrifað með fallegri skrift ljóð í fjórum erindum eftir Pétur Hannesson frá Skíðastöðum í Neðribyggð.
Ekki er um stórt safn um að ræða en í því eru gögn Lestrarfélags Mælifesllsprestakalls. Í því eru tvær innbundnar og handskrifaðar bækur, ein stílabók með skráningar yfir útlán, skýrslur og laus blöð með fundarboði, bókarskrá og félagaskrá frá 1879.
Lestrarfélag Mælifellsprestakalls (1878-1978)Þrjár innbundnar og handskrifaðar bækur sem hafa varðveist misvel, tvær þeirra eru í ágætu ásigkomulagi en ein bókanna sem er frá 1913 og heldur utan um útlán safnsins er mjög illa farin. Bindingin er laus og nokkrar blaðíður hafa rifnað þvert yfir, einnig hafa öftustu blaðsíðurnar verið rifnar úr.
Í safninu eru einnig pappírsgögn af ýmsu tagi, t.d. bókhaldsgögn, handskrifuð og vélrituð gögn, bæði formleg og óformleg. Skjölin hafa varðveist mis vel. Ryðgaðar bréfaklemmur og hefti voru fjarlægð úr skjalasafninu.
Ein innbundin bók með línustrikuðum blaðsíðum með handskrifuðum fundargerðum, stofnfundargjörð og lögum félagsins.
Lestrarfélag ReykjastrandarInnbundin og handskrifuð bók. Í bókinni eru fundagerðir, félagaskrá, bóka- og útlánayfirlit lestrafélagsins og reikningar.
Lestrarfélag ViðvíkurhreppsInnbundin bók og pappírsgögn sem voru inni í bókinni.
Lestrarfélagið Mímir (1915-1944)Ein reikningabók og ýmis skjöl er varða nautgriparæktunarfélag Rípurhrepps. Á meðal skjala eru erindi frá íbúum hreppsins, mjólkurskýrslur, kvittanir fyrir ríkisssjóðsstyrkjum og skýrsla um kynferði nyt og fóðrun kúa ásamt og fylgiskjölum bókhalds.
Nautgriparæktarfélag RípurhreppsÍ safninu er einugis ein innbundin og handskrifuð bók þar sem eru skráðar fundagerðir og reikningar nautgriparæktunarfélags Hólahrepps.
Nautgriparæktarfélag Hólahrepps (1929-1967)Safnið samanstendur af tveim innbundnum bókum og handskrifuðum pappírsgögnum.
Nautgriparæktarfélag Lýtingsstaðahrepps (1928 - 1945)Gögn úr safni Pálu Pálsdóttur sem hafði forgöngu að stofnun Kvenfélagsins Öldunnar á Hofsósi og var formaður félagsins til margra ára. Hún starfaði auk þess ötullega fyrir Samband skagfirskra kvenna og sat í nefnd hjá Kvenfélagasamband Íslands.
Mikið af skjölunum eru merkt með hennar nafni sem er líklega hennar rithönd.
Umrædd gögn eru úr ýmsum áttum og tengjast stjórnarsetu Pálu í Kvenfélagi Hofsóss, störfum hennar innan S.S.K. og í nefndum innan raða K.Í. Í safninu eru skýrslur, fundagerðir, bréf og félagatal Kvenfélags Hofsós auk ýmissa skjala í tengslum við fundi og þing sem Pála sótti.
Engin gögn eru í safninu sem segja til um stofnun eða starfsemi Sauðfjárræktarfélag Hólahrepps, Í safninu eru forprentaðar skýrslur í A3 stærð með handskrifuðum upplýsingum um sauðfjárrækt í Hólahreppi á tímabilinu 1950-1974. Þetta eru sauðfjárræktarskýrslur, yfirlitsskýrslur og hrútaskýrslur. Safnið var allt flokkað eftir ártali og skýrslurnar voru í broti sem var látið halda sér. Öll gögn eru í góðu ásigkomulagi og eru vel læsileg.
Sauðfjárræktarfélag HólahreppsHarðspjalda handskrifuð bók i góðu ástandi. Þetta er stofnfundarbók og segir í lokin frá því að 30. janúar. 1974 var bókin afhent til Skjalasafns Skagafjarðarsýslu og Björn Egilsson tekur við henni fyrir hönd safnsins.
Skagfirðingur h/f (1959-1963)Í safninu er ein innbundin fundagerðabók, annars er mest af forprentuðum, vélrituðum og ljósrituðum skjölum. Um er að ræða starfsáætlanir, söngtexta, ársskýrslur, formleg bréf og erindi, ræða, símskeyti, gjafabréf og mun fleira. Safnið er allt vel læsilegt og í góðu ásigkomulagi. Það var hreinsað af heftum, bréfaklemmum og gúmmíteygju í safninu var ein mappa í A5 stærð með millispjöldum, í henni var félagaskrá, mappan og millispjöld var fjarlægt úr safninu. Tvö nákvæmlega eins afmælisblöð voru í safninu, annað var tekið úr.
Það er mikið af perónugreinanlegum gögnum í safni A-C, A-D og A-E, þau voru sett efst í öskjuna sem vert er að taka úr safni áður en það er skoðað.
Ein fundagerðarbók og pappírsgögn sem innihalda uppkast að fundargerð og minnispunktar af fundi.
Slátursamlag Skagfirðinga hf. (1965-1986)Safnið inniheldur tvær bækur. Önnur bókin er innbundin, í henni eru skráðar fundagerðir og lög félagsins. Hin er stílabók (A3 stærð) í hana eru skráðir reikningar. Einnig stofn- og félagaskrá .
Slysavarnardeildin Hjálp (1944- HólahreppiGögn Ungmennafélagsins Bjarma í Goðdalasókn Skagafjarðasýslu sem er ein fundagerðabók.
Ungmennafélagið BjarmiSafnið inniheldur tvær innbundnar bækur Ungmennafélagsins Hjalta í Hjaltadal.
Ungmennafélagið Hjalti (1927-)Safnið samanstendur af einni innbundinni og handskrifaðri bók.
Vinagjöf - sjóður, Lýtingsstaðarhreppi (1903-1942)