Harðspjalda handskrifuð bók í góðu ástandi og kápa er hulin með brúnum pappír sem á er prentað Geschaftsbucher, J-C- Köning & Ebhardt. Á fremstu síðu er ritað, Búnaðarfélag Akrahrepps gamlir reikningar. Innfært Árni Bjarnasson. Svo trúlega hefur Árni fært í þessa bók reikninga og gjöld félagsins f´ra gögnum er liggja annar staðar í sama safni Dagsetningar eru settar á gögnum frá 1890 - 1947. Undiritun annarra er sýnilega skrifuð af sama rita svo hér er líklegast um innfærslu Árna að ræða.
Harðspjalda bók sem inniheldur upplýsingar um ársreikninga þ.e. tekjur, gjöld, eignir, skuldir, meðlimatal og skýrslur Bindindisfélagsins Tilreyndin í Óslandshlíð frá 1903 - 1922 og svo í framhaldi sömu upplýsingar um Ungmennafélagið Geisla frá 1923 - 1989. Bókin er heilleg en blaðsíður blettóttar.
Hinir ýmsu reikningar um tekjur og gjöld Lestrarfélag Óslandshlíðar, lagðir fram eftir ártölum frá 1920-1955. Gögnin nokkuð heilleg en blöð gulnuð og þvæld, og í hinum ýmsum stærðum og gerðum.
Ýmis konar pappírsgögn lestrarfélagsins, flokkuð hér eins og þau voru afhent, eftir ártölum umslaga sem þau lágu í og uppruninn látinn halda sér. Gögnin eru hreinsuð af heftum, bréfaklemmum og umslögum sem þau lágu í. Í gögnum eru m. a. kvittanir, reikningar, skrár og skýrslur í ártalaröð.
Fylgiskjöl handskrifuð og prentuð innihalda aðalreikninga félagsinss, erindi, reikninga, skuldalista og önnur gögn s.s lög félagsins og samþykki. Gögnin eru hreinsuð af heftum og eru í misgóðu ástandi sum heilleg en önnur blettótt og rifinn.
Handskrifuð blöð um bókhald félagsins . Rekstursreikningur frá 1935 ein opna. Skýrslur, pappírsgögn, um viðskipti við bændur, nöfn þeirra og heimili og þeirra bókhaldsfærslur við félagið árið 1935 og 1937.
Ýmsir reikningar skrifaðir til hreppsins af kaupmönnum á Sauðárkróki og einnig reikingsuppgjör hreppsins varðandi fátækrasjóði, fjallskilasjóði og fleira.
Pappírsgögn handskrifuð um rekstrarreikninga félagsins, gögnin eru látin halda sér í uppruna eftir ártali en eru í misgóðu ástandi sum rifinn en vel læsileg. Hreinsuð af bréfaklemmum.
Innbundnar og handskrifaðar bókhaldsbækur. Bækurnar eru allar í góðu ásigkomulagi og hafa varðveist ágætlega. Pappírsgögnin eru vélritaðar skýrslur með efnahagsreikningi U.M.F.T. fyrir árin 1961-1964.
Afrit af hinum fjölmörgu handskrifuðu og prentuðu bréfum er Gísli ritaði til ýmisra aðila. Bréfin eru í misgóðu ástandi en öll þokkalega vel læsileg, vert er að geta að bréfsefnið er oft á tíðum eldri prentuð blöð sem Gísli nýtir til að prenta á afritin. Gísli undiritar oft bréfin sín með nafnastimpli sem hann lét útbúa eftir sinni rithönd því hann var orðin skjálfhentur. Bréfin eru flokkuð eftir stafrófsröð og sett þannig saman í arkir, eins og þau lágu í uppruna, en örk sem var utan um bréfin fyrir er hreinsuð. Safnið er hreinsað af bréfaklemmum.
Útprentuð og handskrifuð pappírsgögn sem S.S.K. sendi til sambandskvenfélaganna í gegnum tíðina, fundarboð, fundagerðir, bréf og erindi frá formönnum. Einnig ársreikningar sambandsins.
Gögnin eru frá einkasafni Harðar Jónssonar og eru flokkuð eftir þeim félögum sem birtust í hans safni og látin halda sér að mestu leiti. Gögnin eru mest pappírsgögn en einnig handskrifaðar upplýsingar frá Herði við hans fjölmörgu störf s.s línustrikuð handskrifuð stílabók frá hans formennsku í UMSS 1980. Gögnin eru vel læsileg
Ýmsir samningar á milli hreppsins og ábúenda. M.a. gjafabréf Sigurðar Guðmundssonar á Heiði í Gönguskörðum frá 1864 þar sem hann leggur fé til stofnunar fátækrarsjóðs Sauðárhrepps. Lánaskjöl, kaupsamningar og fleira.
Pappírsgögn prentuð og handskrifuð, einnig litlir bæklingar um þá samninga, kauptaxta, samkomulög og leigusamninga ásamt fleiru. Gögnin liggja í ártalaröð og eru látin halda sér þannig. Gögnin eru í góðu ástandi heilt yfir og eru hreinsuð af heftum og bréfaklemmum og arkirnar eru upprunalegar en skráning er löguð. Ork E-1 no 29 er með myglu á blöðum sem er hreinsuð burtu.
Handskrifað sendibréf á þrjú línustrikuð blöð til Sigurjóns, dags. 13.október 1947 um stofnun Ungmennafélagsins Fram. Bréfið er vel varðveitt og læsilegt.
Safn með 13 sendibréfum, 7 jólakortum, 4 nafnspjöldum og einu skeyti sem Stefán Guðmundssyni (Íslandi) frændi Stefönu sendi henni á tímabilinu 1930-1965.
Ein innbundin bók um bókhald einstaklinga persónugreinanleg gögn nöfn og heimili. Bókin er í góði lagi, Miði er fremst í bók þar stendur Afhent af Birni Egilssyni Sveinsstöðum, 21.03.1974. K.B. Miði látin halda sér.