Í safninu eru skipulagsteikningar fyrir tjaldsvæðið á Hólum og líklega hluta af íbúðabyggðinni á Hólum og skipulag trjáræktar eftir reitum. Ekki var hægt að aldursgreina allt safnið, en það var látið halda sér óbreytt, hefti voru fjarlægð úr skjölunum.
Pappírsgögn sem tengjast búrekstri Þorsteins í Stórugröf sem eru kvittanir fyrir innlögn mjólkur í Mjólkursamlag K.S og láni sem hann veitti Birni Gíslasyni smiði fyrir byggingu Fagrahvols í Varmahlíð.
Ýmis námsgögn, próf 1968-1976 o.fl varðandi starf skólans. Stundarskrár 1968-1974 og 1977. Nemendaskrár 1944-1967. Viðtöl við Ingibjörgu Jóhannsdóttur, skólastjóra og Hólmfríði Pétursdóttur, síðar skólastjóra. Einnig ýmsar upplýsingar um skólann. Reglugerð fyrir húsmæðraskóla.
Í þessu safni er ein stílabók, vel læsileg og í ágætu ásigkomulagi. Búið er að fjarlægja megnið af blaðsíðunum úr en nokkar eru eftir, inni í bókinni er erindi frá prófasti Skagafjarðarprófastsdæmis.
Ýmsar skrár og skýrslur sem varða Sauðárkrókshrepp. M.a. kjörskrár, skrá um niðurjöfnun sveitaútsvars, fjallskilaskýrslur, skrá um reikningsskil Skarðshrepps, skýrslur um atvinnuleysi og atvinnubótavinnu.
Stór harðspjalda handskrifuð skýrslubók um búfé og fóðurforða í Skefilstaðarhreppi. Bókin var hreinsuð en í nokkuð góðu ástandi. Bók er rétt hálf skrifuð og krot er á nokkrum óskrifuðum blaðsíðum. Persónugreinanleg bók með nöfnum eigenda búfjár, býlum, upplýsingar um iðgjöld og afurðir.
Yfirlitsskýrslur um rekstur Lestrafélags Óslandshlíðar 1949-1955, 7 skýrslur. Bleik og gul eyðublöð en útfylling handskrifuð nokkuð heilleg og nokkur rifinn blöð.
Ársskýrslur og skýrslur um búfé, fóðurforða og uppskeru. Skýrslurnar eru í misgóðu ástandi þær elstu orðnar snjáðar og rifnar en skýrslur eru látar halda sér í safni eins og þær komu. Eru flokkaðar eftir ártali.