Ísland

Taxonomy

Code

Scope note(s)

    Source note(s)

      Display note(s)

        Hierarchical terms

        Equivalent terms

        Ísland

          Associated terms

          Ísland

            1208 Authority record results for Ísland

            1 results directly related Exclude narrower terms
            S02015 · Person · 14. feb. 1893 - 16. ágúst 1951

            Foreldrar: Vagn Eiríksson b. í Miðhúsum í Blönduhlíð og k.h. Þrúður Jónsdóttir. Faðir hennar lést þegar hún var aðeins fimm ára gömul, móðir hennar bjó áfram í Miðhúsum með börnin í tvö ár en var eftir það í húsmennsku. Kvæntist Kristjáni R. Gíslasyni frá Grundarkoti í Blönduhlíð, þau bjuggu á Minni-Ökrum frá 1914-1927 er þau fóru í húsmennsku að Bjarnastöðum í Blönduhlíð. Voru svo í húsmennsku á Bakka í Vallhólmi og á Hjaltastöðum. Fluttu til Sauðárkróks árið 1930. Eftir að þau hættu búskap á Minni-Ökrum var Aðalbjörg ráðskona í vegavinnu hjá Rögnvaldi Jónssyni frá Kotum. Árið 1945 fluttu þau til Reykjavíkur, þau eignuðust sex börn.

            S07592 · Person · 07.05.1906 - 18.07.1987

            Frá Brekkukoti í Blönduhlíð. Var á Bræðraborgarstíg 14, Reykjavík 1930. Verkakona í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík.

            S03389 · Person · 27.08.1919-02.10.2006

            Aðalsteinn Eiríksson, f. í Vilinganesi 27.08.1919, d. 02.10.2006 á Sauðárkróki. Foreldrar: Eiríkur Jón Guðnason bóndi í Villinganesi og þriðja kona hans, Petra Einarsdóttir. Aðalsteinn ólst upp hjá foreldrum sínum í Villinganesi. Barnafræðslu hlaut hann í heimahúsum en síðar var hann í farskóla. Aðalsteinn hóf búskap í Vlinniganesi árið 1946 ásamt Guðrúnu systur sinni. Árið 1986 kom frændi þeirra, Sigurjón Valgarðsson í Villinganes og hóf þar búsakp að hluta. Hann varð systkinunum mikil hjálparhella síðustu búskaparárin.

            S07382 · Person · 11.03.1907 - 03.09.1992

            Fæddur á Brúnastöðum í Tungusveit. Bóndi á Breið í Tungusveit, í Litladalskoti í Dalsplássi, í Héraðsdal í Dalsplássi, á Skíðastöðum á Neðribyggð, á Litla-Vatnsskarði á Laxárdal fremri, Hún., á Refsstöðum, Hún og loks á Heiði. Lausamaður í Kolgröf, Goðdalasókn, Skag. 1930. Bóndi á Heiði í Gönguskörðum, Skarðshr., Skag., síðar á Sauðárkróki.

            S02569 · Person · 15. mars 1938 - 22. ágúst 2010

            Ágúst fæddist á Akureyri 1938. Foreldrar hans voru Sigurður Stefánsson prestur, síðar vígslubiskup og María Ásgeirsdóttir húsfreyja. Ágúst lauk stúdentsprófi frá MA árið 1959 og cand. theol. frá Háskóla Íslands 1965. Hann var vígður til prests á Hólum í Hjaltadal 1965. Var prestur í Möðruvallaprestakalli, í Vallanesi á Völlum, Ólafsvík og á Mælifelli í Skagafirði. Ágúst var sendiráðsprestur í Kaupmannahöfn og síðast sóknarprestur á Prestbakka í Hrútafirði, eða þar til hann lét af störfum. Hann stundaði fræða - og ritstörf, m.a. komu út fjórar bækur, Forn frægðarsetur. Einnig skrifaði hann fjölda greina í blöð og tímarit. Árið 1981 lauk Ágúst réttindanámi í dönsku kirkjunni.

            S03392 · Person · 01.08.1892-23.06.1972

            Ágústa Runólfsdóttir, f. á Heiði í Gönguskörðum 01.08.1892, d. 23.06.1972. Foreldrar: Runólfur Jónsson sjómaður á Sauðárkróki og kona hans Nanna Soffía Ólafsdóttir. Ágústa ólst upp á Sauðárkróki hjá foreldrum sínum. Ágústa giftist Jónasi 17 ára gömul en hann lést eftir stutta sambúð. Ágústa fór sem ráðskona til Páls að Herjólfsstöðum árið 1914 og felldu þau hugi saman. Árið eftir fóru þau á Sauðárkrók og bjuggu þar til 1924 en fóru þá að Hrafnagili í Laxárdal. Einnig voru þau um tíma í Brennigerði. hjá Þorvaldi Guðmundssyni og Salóme Pálmadóttur. Eftir það fluttu þau aftur á Sauðárkrók og bjuggu þar þangað til þau fluttu til Akureyrar 1940. Páll og Ágústa bjuggu við mikla fáækt öll sín búskaparár í Skagafirði. Páll veiktist af taugaveiki 1924 og segja má að heimilið hafi verið leyst upp í kjölfarið. Þurftu þau að láta þrjú af börnum sínum frá sér á sveit og elsta dóttirin fór til ömmu sinnar.
            Maki 1: Jónas Jónasson frá Sauðárkróki (1884-1912). Þau eignuðust tvo syni en annar dó sem kornabarn.
            Maki 2: Páll Jóhannsson (1888-1981). au eignuðust 10 börn og komust öll til fullorðinsára nema eitt.

            S01096 · Person · 22. nóv. 1865 - 11. des. 1953

            Foreldrar: Kristján Stefánsson og Soffía Jónsdóttir. Soffía giftist síðar Jónasi Rögnvaldssyni bónda í Kjartansstaðakoti. Albert ólst upp með móður sinni og fluttist með henni innan við fermingaraldur til Skagafjarðar. Fór hann þá að vinna fyrir sér. Búfræðingur frá Hólum 1888. Bóndi á Páfastöðum 1889-1951. Sat í hreppsnefnd Staðarhrepps 1901-1916 og oddviti hennar 1904-1916. Tók mikinn þátt í félagsmálum og var m.a. einn af stofnendum Kaupfélags Skagfirðinga og Sláturfélags Skagfirðinga.
            Maki: Guðrún Ólafsdóttir, f. 19.01.1856. Þau eignuðust 4 börn og náðu þrjú þeirra fullorðinsaldri.

            Albert Sölvason (1903-1971)
            S00975 · Person · 01.07.1903 - 05.11.1971

            Fæddur á Páfastöðum, Skag. Sonur Sölva Jónssonar járnsmiðs og vélgæslumanns á Sauðárkróki og k.h. Stefaníu Marínar Ferdinandsdóttur húsfreyju. Bátsformaður og vélamaður á Sauðárkróki 1930. Ketil- og plötusmiður, verkstjóri, vélsmiður og vélstjóri, síðast framkvæmdastjóri á Akureyri. Kvæntur Karólínu Gísladóttur.

            S06897 · Person · 13.05.1926 - 01.10.2024

            Fékkst við ýmis störf, lengst af saumakona á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Var í Holtsmúla á Langholti, Skag. 1930.

            S02714 · Person · 30. júlí 1867-

            Foreldrar: Guðni Guðnason og Ingiríður Eiríksdóttir. Maki: Jón Jónsson. Þau eignuðust einn son. Voru búsett á Gilsbakka og Aldís bjó þar með Hjörleifi syni þeirra eftir að Jón féll frá og allt þar til Hjörleifur tók við búin 1918. Hún ól upp eina stúlku, Aldísi Sveinsdóttur frá Skatastöðum.

            S02716 · Person · 13. okt. 1890 - 1. nóv. 1977

            Foreldrar: Sveinn Eiríksson og Þorbjörg Bjarnadóttir á Skatastöðum í Austurdal. Missti móður sína á níunda ári og hafði skömmu áður verið tekin í fóstur af Jóni Jónssyni og Aldísi Guðnadóttur á Gilsbakka. Var þar fram yfir tvítugt og fór þá vinnukona að Bústöðum. Fór á Sauðárkrók 1912 en var á Frostastöðum í Blönduhlíð 1914. Maki: Kristinn Jóhannsson, f. 02.12.1886 á Flugumýri í Blönduhlíð. Þau eignuðust fimm syni. Bjuggu í Borgargerði, Miðsitju og á Hjaltastöðum en frá 1930 á Sauðárkróki. Eftir að Aldís varð ekkja bjó hún um sinn á Sauðárkróki en fór síðar í vistir á ýmsa bæi, m.a. Flatatungu, Egilsá og Höskuldsstaði. Haustið 1947 fluttist hún til Akureyrar en mun líklega hafa komið aftur í Skagafjörð. A.m.k. var hún skráð til heimilis í Keflavík í Hegranesi árið 1950. Fór aftur til Akureyrar og vann m.a. við húshjálp. Síðast búsett á Kristnesi.

            S05316 · Person · 19.08.1930 - 23.01.2015

            Var á Reykjavöllum, Mælifellssókn, Skag. 1930. Bóndi á Reykjavöllum í Lýtingsstaðahreppi.

            S02821 · Person · 17. apríl 1890 - 12. mars 1959

            Andrés Þorsteinsson, f. 17.04.1890 á Ytri-Hofdölum. Foreldrar: Þorsteinn Hannesson bóndi á Hjaltastöðum og kona hans Jórunn Andrésdóttir. Andrés ólst upp hjá foreldrum sínum til níu ára aldurs á Ytri-Hofdölum en þá fluttust þau í Hjaltastaði. Andrés hlaut venjulega undirbúningsfræðslu í heimahúsum en veturinn 1911-1912 fór hann í unglingaskólann á Sauðárkróki. Veturinn eftir var hann í bændaskólanum á Hólum en lauk ekki prófi þaðan. Næstu árin var hann heima og vann að búi móður sinnar. Bóndi á Hjaltastöðum 1917-1922. Eftir að búskap lauk fluttist Andrés til Siglufjarðar. Fyrstu árin þar vann hann ýmis störf, m.a. útgerð um skeið. Einnig í flatningsverksmiðju O.Tynes í nokkur sumur. Á vetrum var hann á verkstæði h.f. Odda á Akureyri og hlaut þar meistararéttindi vélsmiða. Árið 1926 tók hann minna mótorvélstjórapróf á Siglufirði. Stofnaði vélaverkstæði og rak til dauðadags.
            Maki: Halldórs Jónsdóttir, f. 22.02.1896, d. 13.03.1973 frá Torfhóli í Óslandshlíð. Þau eignuðust einn son Jóhann Hjalta vélsmið á Siglufirði (1922-1996) og tóku að sér einn fósturson, Andrés Pétursson (1911-2000), járnsmið og rennismíðameistara. Síðast búsettur í Reykjavík.

            S02768 · Person · 12. nóv. 1867 - 29. sept. 1917

            Anna Björnsdóttir, f. 13.11.1867 í Stóragerði. Foreldrar: Björn Illugason og Helga Jónsdóttir í Enni í Viðvíkursveit. Maki: Snorri Bessason, f. 18.09.1862. Þau hófu búskap í Stóragerði í Óslandshlíð 1890 og bjuggu þar þrjú ár. Bjuggu í Hringveri 1893-99, í Garðakoti 1899-1916 og í Enni 1916-1918 en Snorri brá búi ári eftir andlát Önnu. Anna og Snorri eignuðust fimm börn sem upp komust.

            S03293 · Person · 19.08.1846-25.05.1894

            Anna Guðmundsdóttir, f. á Ásláksstöðum í Kræklingahlið 19.08.1846, d. 25.05.1894 á Egilsá. Foreldrar: Guðmundur Pétursson þá vinnumaður á Hranastöðum og kona hans Ásdís Þorsteinsdóttir. Anna ólst að mestu leyti upp hjá Jóni Jónssyni í Bandagerði við Akureyri. Fluttist hann með Önnu til Skagafjarðar og dvaldi hjá henni til dánardags.
            Maki: Sveinn Magnússon (1857-1926) bóndi. Þau eignuðust einn son. Bjuggu á Stekkjarflötum 1883-1893, Tyrfingsstöðum 1893-1894 og á Egilsá 1894-1896. Sveinn kvæntist aftur.

            S02773 · Person · 3. júní 1916 - 14. sept. 1990

            Anna Guðmundsdóttir, f. 03.06.1916 í Hvarfsdal í Dölum. Foreldrar: Guðmundur Ari Gíslason Kaldbak, f. 1880, bóndi í Steinholti í Staðarhreppi og kona hans Sigríður Helga Gísladóttir, f. 1891. Anna ólst upp hjá foreldrum sínum fyrstu árin, en þau bjuggu þá í Dölum og Snæfellssýslu. Þau fluttu svo til Skagafjarðar og fór Anna fljótlega eftir það í fóstur til Jóns Sigurðssonar og Sigrúnar Pálmadóttur á Reynistað og ólst þar upp frá sex ára aldri. Hún flutti til Siglufjarðar 1933 og var þar í eitt ár. Fór þá til Reykjavíkur. Húsmóðir og starfsmaður við matreiðslu í Hafnarhúsinu í 16 ár. Síðar lengi við Laugarnesskóla og loks forstöðumaður Athvarfsins þar. Maki: Einar Sigurjón Magnússon, bifreiðastjóri hjá Hreyfli, f. 14.10.1906. Þau eignuðust fjögur börn en ólu auk þess upp dóttur Einars frá fyrra hjónabandi.

            S05994 · Person · 09.09.1907 - 19.02.1990

            Fædd í Þrastastaðagerði á Höfðaströnd, foreldrar Jónína Margrét Gísladóttir (1878-1965) og Hjörtur Ólafsson (1871-1960) bóndi í Þrastastaðagerði. Anna ólst upp í foreldrahúsum fram á fermingaraldur en fór síðan að vinna fyrir sér í vistum og starfaði víða uns hún giftist þann 31.10.1931 Valtý Sigurðssyni, þau hófu fyrst búskap í Húsey en eftir eitt ár þar fluttust þau að Geirmundarstöðum og keyptu síðan býlið 1946. Þau eignuðust tvo drengi, Gunnlaug og Geirmund.

            S03290 · Person · 26.12.1883-18.07.1965

            Anna Guðrún Þorleifsdóttir, f. 26.12.1883, d. 18.07.1965. Foreldrar: Þorleifur Þorleifsson bóndi í Brekkukoti og Miklabæ í Óslandshlíð (1850-1937) og kona hans Elísabet Magnúsdóttir (1845-1931). Þau bjuggu á Miklabæ þegar Anna fæddist.
            Maki: Jóhann Gunnarsson (1880-1962). Þai eignuðust þrjú börn en áður átti Jóhann dóttur með Guðrúnu Ástvaldsdóttur. Jóhann og Anna bjuggu á parti í Utanverðunesi 1907-1908, í Garði 1908-1913, Bjarnastöðum í Unadal 1914-1927, Enni í Viðvíkursveit 1927-1928 og á Krossi 1928-1962, en þá lést Jóhann. Ekki er getið um hvort Anna dvaldi þar áfram þau þrjú ár sem hún átti ólifuð.

            S03397 · Person · 22.04.1855-29.03.1946

            Anna Hólmfríður Jónsdóttir, f. 22.04.1855, d. 29.03.1946. Foreldrar: Jón Hallsson (1807-1894) prófastur í Glaumbæ og Valgerður Sveinsdóttir, síðar húsfreyja á Vöglum. Anna ólst að mestu upp hjá föður sínum, sem ættleiddi hana.
            Maki: Pálmi Þóroddsson (1862-1955) prestur á Hofsósi. Þau eignuðust tíu börn.

            S01944 · Person · 6. júlí 1872 - 19. des. 1960

            Foreldrar: Jón Gíslason síðast b. á Þorleifsstöðum í Blönduhlíð og s.k.h. Hólmfríður Skúladóttir frá Krossi í Óslandshlíð. Anna lærði karlafatasaum á yngri árum hjá Ingibjörgu Pétursdóttur klæðskera á Sauðárkróki og var eftirsótt til þess starfs fram á efri ár. Einnig var hún vetrartíma hjá frú Sigríði Jónsdóttur á Reynistað við nám. Árið 1902 kvæntist Anna Jónasi Jónassyni (Hofdala-Jónasi), þau bjuggu í Grundarkoti 1903-1907, á Uppsölum 1907-1912, á Vöglum 1912-1918, á Óslandi 1918-1923, að Syðri-Hofdölum 1923-1936 er þau fluttu til Sauðárkróks. Anna og Jónas eignuðust þrjár dætur.

            S03400 · Person · -1962

            Anna Jónsdóttir, f. 21.10.1883, d. 23.06.1962. Foreldrar: Jón Björn Stefánsson (1856-) og
            Skráð á Tjörnum í Staðarbakkasókn 1901, Bragagötu 31 í Reykjavík 1930.
            Maki: Björn Jónatansson frá Bæ á Höfðaströnd. Þau ólu upp fósturbarn, Báru Þorbjörgu Jónsdóttur (1943).
            Búsett á Bakka í Viðvíkursveit og síðar Ásgeirsbrekku. Fluttu svo í Stykkishólm.

            Anna Jónsdóttir (1886-?)
            S03401 · Person · 26.06.1886-?

            Anna Jónsdóttir, f. 26.06.1886, d.? Foreldrar: Jón Sölvason (1844-1922) og Kristín Jónsdóttir, þá ógift vinnukona á Læk. Hún ólst upp hjá föður sínum til fermingaraldurs á Narfastöðum. Fór svo í Ásgeirsbrekku og þaðan til Vesturheims 1902.

            S00362 · Person · 06.08.1922 - 14.07.2009

            Anna Jónsdóttir fæddist 6. ágúst 1922. Dóttir Sigurlaugar Sigurðardóttur frá Hvalnesi og Jóns Pálmasonar frá Svaðastöðum. Stjúpfaðir Önnu var Gunnlaugur Björnsson frá Brimnesi. Anna ólst upp á Brimnesi hjá móður sinni og stjúpa og byggði svo nýbýlið Laufhól í Viðvíkursveit ásamt Steingrími Vilhjálmssyni manni sínum. Steingrímur og Anna eignuðust tíu börn.

            S05562 · Person · 25.06.1925-01.03.1999

            Anna Jónsdóttir fæddist að Skógum í Fnjóskadal. Foreldrar hennar voru hjónin Hólmfríður Jónsdóttir (1892-1973) og Jón Ferdinandsson húsasmiður (1892-1952) frá Birningsstöðum í Ljósavatnsskarði.
            Anna ólst upp á Birningsstöðum, eftir fullnaðarpróf fór hún í Alþýðuskólann og Laugum og þaðan í Húsmæðrakennaraskóla Íslands í Reykjavík. Á þeim tíma kynntist hún Sigurði Hólm Jóelssyni frá Stóru-Ökrum, þau giftust 21. maí 1949.
            Eftir að hafa búið á Birningsstöðum í eitt ár fluttu Anna og Sigurður í Víkurkot í Skagafirði árið 1950 sem þau leigðu fyrst en keyptu síðan fjórum árum síðar. Árið 1956 fluttu þau í Stóru-Akra og bjuggu þar alla tíð síðan.  
            Anna kenndi í tvo áratugi við barnaskólann í Akrahreppi og var prófdómari Húsmæðraskólans á Löngumýri ásamt því að sinna bústörfum á Stóru-Ökrum ásamt manni sínum.
            Börn Önnu og Sigurðar: Hólmfríður Birna, Ingibjörg, Sólveig, Jón, Ragna og Katrín Elín.

            S03407 · Person · 11.04.1910-01.01.1984

            Anna Jósafatsdóttir, f. í Húsey í Hólmi í Skagafirði 11.04.1910, d. 01.01.1984. Foreldrar: Jósafat Guðmundsson (1853-1934) bóndi í Húsey, og Ingibjörg Jóhannsdóttir vinnukona hans. Anna fóru í fóstur á fyrsta ári en fluttist með föður síðun að Ytri-Hofdölum 1914 og Hlíð í Hjaltadal. Hún fór í unglingaskóla á Hólum. Hún og Jónas hófu búskap á Hranastöðum í Eyjafirði. Vorið 1947 fóru þá að Hafursá á Fljótdalshéraði. Þaðan fóru að Skriðuklaustri tveimur árum síðar. Fyrstu árin var Anna á Akureyri á vetrum og hélt heimili fyrir eldri börnin sem voru í skóla. Frá 1962 bjuggu þau í Lagarfelli og í Reykjavík yfir þingtímann.
            Heimili: Axlarhagi, Akrahr. Húsfreyja á Hranastöðum í Hrafnagilshreppi, Eyj. Síðast bús. í Fellahreppi.
            Maki: Jónas Pétursson. Þau eignuðust þrjú börn.

            S03409 · Person · 10.12.1857-10.12.1942

            Anna María Magnúsdóttir Thorlacius, f. 10.12.1857, d. 10.12.1942. Foreldrar: Séra Magnús Thorlacius prestur í Glaumbæ og kona hans, Guðrún Jónasdóttir Thorlacius (1831-1918).
            Anna María var í Botni, Hrafnagilssókn, Eyj. 1860. Gift Grönvold yfirkennara á Hamri í Noregi.

            S00425 · Person · 1. apríl 1904 - 20. maí 1982

            Anna var fædd í Keflavík í Hegranesi í Skagafirði. Foreldrar hennar voru Gunnar Ólafsson bóndi og Sigurlaug Magnúsdóttir húsfreyja. Maki: Guðmundur Friðfinnsson á Egilsá. Þau hjón eignuðust þrjár dætur. Þau hjón stunduðu m.a. skógrækt og blómarækt. Anna og Guðmundur ráku barnaheimili um tíma.

            S03461 · Person · 20.05.1913-15.10.1976

            Anna Sigurbjörg Helgadóttir, f. 20.05.1913, d. 15.10.1976. Foreldrar: Helgi Jónsson bóndi á Hafgrímsstöðum og kona hans Þóra Kristjánsdóttir.
            Anna var áttunda og yngst barna þeirra Helga og Þóru. Síðar eignaðist hún tvö hálfsystkini. Anna ólst upp hjá Elínu ömmu sinni á Hafgrímsstöðum og vann ýmis tilfallandi störf. Um tvítugt veiktist hún alvarlega og lá marga mánuði á Kristnesspítala. Hún vann við síldarsöltun á Siglufirði, var í vist á Akureyri og kaupakona á Nautabúi á Efribyggð. Anna var einnig í kaupavinnu á Sveinsstöðum og er Elín amma hennar veiktist réð hún sig í innu á sjúkrahúisinu á Sauðárkróki. Anna fór að Hrólfsstöðum og hóf sambúð með Guðmundi Ólafssyni. Árið 1947 fluttust þau að Skíðastöðum. Guðmundur veiktist árið 1952 en þá hélt Anna búskapnum áfram með aðstoð Páls, bróður Guðmundar.Eftir að fjölskyldan flutti til Reykjavíkur hóf Anna að starfa á Hrafnistu í Reykjavík og vann þar til dánardags.
            Maki: Guðmundur Ólafsson (1916-1974).Þau eignuðust tvö börn. Fyrir átti Anna son með Sigurði Sigurðssyni frá Akeyri og dóttur með Karli Hallberg sem var sænskur en búsettur á Siglufirði.

            S03403 · Person · 28.04.1868-12.10.1909

            Anna Soffía Jósefsdóttir, f. 28.04.1868, d. 12.10.1909. Forledrar: Jósef Þorleifsson smiður á Eyrarlandi og Ingibjörg Helgadóttir kona hans.
            Anna og Jón bjuggu í Vík 1897-1907 og í Birkihlíð frá 1907.
            Maki: Jón Jóhannesson (1864-1930). Þau eignuðust eina dóttur.

            S01541 · Person · 28. apríl 1894 - 4. okt. 1990

            Foreldrar: Sveinn Eiríksson b. á Skatastöðum og k.h. Þorbjörg Bjarnadóttir. Anna fór fimm ára gömul í fóstur að Bústöðum í Austurdal. Ung stúlka fór hún í kaupavinnu austur að Eiríksstöðum á Jökuldal þar sem hún kynntist mannsefni sínu, Sigurjóni Jónssyni presti. Þau bjuggu að Barði í Fljótum 1917-1920 og í Kirkjubæ í Hróarstungu 1920-1945 er þau slitu samvistum. Það sama ár flutti Anna til Akureyrar ásamt yngstu börnum sínum. Síðast búsett í Reykjavík. Anna og Sigurjón eignuðust sex börn.

            S07247 · Person · 01.01.1914 - 27.11.1987

            Fæddur í Hamarsgerði í Lýtingsstaðahreppi. Var í Kjartansstaðakoti, Glaumbæjarsókn, Skag. 1930. Bóndi á Kjartansstöðum í Langholti. Síðast bús. á Sauðárkróki.

            S01552 · Person · 1. jan. 1899 - 3. jan. 1977

            Foreldrar: Helgi Pétursson og k.h. Margrét Sigurðardóttir. Ármann ólst upp hjá foreldrum sínum á Hofi á Höfðaströnd 1899-1901, á Spáná í Unadal 1901-1902, Geirmundarhóli í Hrolleifsdal 1902-1910 og á Kappastöðum í Sléttuhlíð 1910-1911, en foreldar hans bjuggu þar til 1915. Árið 1913 fór Ármann sem hjú að Ríp í Hegranesi og var þar til vors 1917. Þá fór hann að Eyhildarholti og var þar í eitt ár. Síðan að Ási og var þar til vors 1924, að hann fór í Vatnskots til vorsins 1927. 1927-1930 var hann við vega- og símavinnu í Suður - Þingeyjarsýslu. Árið 1930 var hann talinn til heimilis að Hamri í Hegranesi hjá Hróbjarti Jónassyni mági sínum, þá skráður sem símamaður að atvinnu. Árið 1931 flutti Ármann til Sauðárkróks og hóf störf hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. Þar vann hann margvísleg störf, s.s. við fiskvinnslu, sláturhússtörf og fl. Hjá KS vann hann samfellt fram á sjötugsaldur.
            Kvæntist Sigurbjörgu Stefaníu Pálmadóttur frá Skagaströnd, þau eignuðust þrjú börn.

            S03574 · Person · 25.04.1976

            Arna Björn Bjarnadóttir, f. 24.04.1976.
            Foreldrar: Bjarni Maronsson og Jórunn Guðrún Árnadóttir.
            Búsett á Akureyri

            S05542 · Person · 30.09.1919 - 10.03.1948

            Var á Sauðárkróki 1930. Heimili: Steinsstaðir, Lýtingsstaðahr. Blaðamaður í Reykjavík.

            S02847 · Person · 3. des. 1880 - 19. nóv. 1938

            Foreldrar: Guðmundur Sigfússon bóndi í Grjótgarði á Þelamörk og kona hans Steinunn Anna Sigurðardóttir. Maki: Valdemar Helgi Guðmundsson. Þau eignuðust tvo syni og ólu auk þess upp fósturdóttur. Þau hófu búskap á Bessahlöðum í Öxnadal en fluttust svo að Efri-Rauðalæk á Þelamörk 1905. Þaðan fluttust þau að Fremri-Kotum 1910 og bjuggu þar til 1924. Þá keyptu þau jörðina Bólu í Blönduhlíð og var Arnbjörg búsett þar til dánardags.

            S05532 · Person · 1854 - 19. júlí 1909

            Fædd í Litluhlíð, Goðdalasókn og ólst þar upp. Foreldrar; Þórey Ólafsdóttir og Ólafur Guðmundsson bóndi í Litluhlíð og síðar Giljum í Vesturdal.
            Arnbjörg Margrét var húskona á Þorsteinsstöðum, Mælifellssókn, Skag. 1890 en fluttist fulltíða austur á land og gifist Páli Sigumundssyni bónda að Mýnesi í Eiðaþinghá þau voru barnlaus. Húsfreyja í Mýnesi í Eiðaþinghá 1893. Arnbjörg tók að sér tvö systrabörn sín: Þóreyju (1887-1953), dóttir Ingibjargar, fluttist ung austur að Mýnesi ólst þar upp, síðar húsfreyja að Klyppstað. Zóphónías Stefánsson (1884-1968), sonur Sigurlaugar fór í fóstur til Arnbjargar.

            S01945 · Person · 12. nóv. 1905 - 9. feb. 2002

            Arnfríður Jónasdóttir f. í Grundarkoti í Akrahreppi. Foreldrar: Jónas Jónasson skáld (Hofdala-Jónas) á Syðri-Hofdölum og Anna Jónsdóttir frá Þorleifsstöðum. Arnfríður ólst upp hjá foreldrum sínum þar til hún giftist fyrri manni sínum. Hún gekk einn vetur í Barnaskóla á Hofsósi.
            Maki 1: Jón Pálmason frá Svaðastöðum (-1955). Þau eignuðust 4 börn.
            Maki 2: Hannes Gísli Stefánsson (1910-1985).
            Arnfríður og Jón bjuggu á ýmsum stöðum þar til 1939 að þau fluttu að Axlarhaga. Að Jóni látnum bjó Arnfríður þar áfram ásamt tveimur yngri börnum sínum. Síðla árs 1956 fluttist hún að Þverá til Hannesar Sigfússonar og þau giftust skömmu síðar. Árið 1993 fluttist Arnfríður á Sauðárkrók til Þórdísar dóttur sinnar og dvaldi hjá henni þar til hún fór á dvalarheimili árið 1995.

            S03426 · Person · 31.12.1890 - 05.12.1968

            Arngrímur Sigurðsson fæddur 31.12.1890 í Dæli í Sæmundarhlíð, dáinn 05.12.1968 á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Hann var bóndi í Litlu-Gröf 1920-1967. Foreldrar hans voru Sigurður Jónsson bóndi í Litlu-Gröf og (Gunnvör) Guðlaug Eiríksdóttir.
            Arngrímur ólst upp hjá foreldrum sínum, fyrst í Dæli til sjö ára aldurs, en eftir það í Litlu-Gröf og átti hann heima þar alla ævi síðan. Hann tók við búi foreldra sinna árið 1920. Í æsku naut hann menntunar umfram það sem almennt gerðist. Hann var við nám hjá Jóni á Reynistað, svo jók hann við þekkingu sína með lestri og sjálfsnámi. Hann tók að sér mörg störf í þágu sýslu og sveitar. Hann var oddviti hreppsnefndar Staðarhrepps 1922-1966, varamaður í sýslunefnd í fjölda ára og sat oft sýslufundi, í stjórn Kaupfélags Skagfirðinga 1933-1946, lengstum ritari félagsstjórnar, í stjórn Sjúkrahúss Skagfirðinga lengi, allt til 1966, endurskoðandi reikninga KS 1956-1964, í skattnefnd sveitar sinnar og fræðslunefnd. Hann sat í stjórn búnaðarfélags og ungmennafélags og naut hvarvetna trausts og virðingar fyrir störf sín.

            Arngrímur var giftur Sigríði Benediktsdóttur, f. 9.6.1886 á Hofi í Hjaltadal, d. 4.8.1948. Börn Arngríms og Sigríðar voru: Þórir Angantýr f. 2.1.1923, d. 20.12.2000 á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki og Guðlaug Sesselja Arngrímsdóttir, f. 14.1.1929, d. 31.3.2017 á Heilbrigðisstofnun Norðurlands.
            Fóstursonur Arngríms og Sigríðar var: Ragnar Magnús Auðunn Blöndal f. 29.6.1918 í Stykkishólmi, d. 15.9.2010 á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kumbaravogi á Stokkseyri.

            Árni Árnason (1892-1962)
            S07712 · Person · 19.06.1892 - 04.12.1962

            Bóndi á Atlastöðum í Svarfaðardal., Eyjaf., og á Syðri-Hofdölum í Viðvíkurhr., Skag., síðar á Sauðárkróki. Bóndi á Atlastöðum 1930.

            Árni Eiríksson (1857-1929)
            S01071 · Person · 3. september 1857 - 23. desember 1929

            Foreldrar: Eiríkur Eiríksson og Hólmfríður Guðmundsdóttir á Skatastöðum. Árni ólst upp í Sölvanesi hjá móðurbróður sínum Sveini Guðmundssyni og k.h. Guðrúnu Jónsdóttur. Árni var bóndi í Hamarsgerði 1883-1885 og á Starrastöðum 1885-1887, bjó á Akureyri 1887-1888, bóndi á Nautabúi 1889-1897 og á Reykjum í Tungusveit 1897-1907. Fluttist eftir það til Akureyrar þar sem hann starfaði sem gjaldkeri í Íslandsbanka til æviloka. Á sínum yngri árum var Árni einn fremsti glímumaður sinnar sveitar. Árni lærði ungur að leika á orgel og var forsöngvari í Mælifells- og Reykjakirkjum meðan hann bjó á því svæði. Jafnframt var Árni hreppsnefndaroddviti í Lýtingsstaðahreppi í hálfan annan áratug og deildarstjóri KS í þeirri sveit. Árni kvæntist Steinunni Jónsdóttur frá Mælifelli, þau eignuðust fjögur börn en ólu einnig upp nokkur fósturbörn.

            Árni Gíslason (1930-2024)
            S01224 · Person · 21.01.1930

            Árni Gíslason fæddist í Eyhildarholti í Rípurhreppi í Skagafirði þann 21. janúar 1930. Hann er búfræðingur að mennt, nam á Hólum og var bóndi í Eyhildarholti í áratugi. Þá var Árni hreppstjóri hreppsnefndar Rípurhrepps 1974-1998 og hreppsnefndaroddviti 1986-1994.
            Kona hans var Ingibjörg Sveinsdóttir (1936-2018).

            S03616 · Person · 10.03.1898-14.02.1932

            Árni Hólm Gottskálksson, f. á Bakka í Vallhólmi 10.03.1898, d. 14.02.1932 í Húsey í Vallhólmi. Foreldrar: Gottskálk Egilsson bóndi á Bakka og kona hans Guðlaug Árnadóttir húsmnóðir. Árni ólst upp hjá foreldrum sínum á Bakka til fullorðins ára. Hann naut ekki skólagöngu og vann ekki utan heimilis að ráði. Hann hóf sjálfstæðan búskap á Bakka 1926 og var Helga systir hans bústýra hjá honum. Tóku þau í fóstur bróðurdóttur sína, Guðlaugu Egilsdóttur. Árni kvæntist ekki.
            Eftir fjögurra ára búskap á Bakka keypti Árni nágrannajörðina Húsey, en bjó þar aðeins rúm tvö ár, því hann andaðist úr lugnabólgu aðeins 34 ára að aldri.

            S00130 · Person · 02.07.1873-12.09.1955

            Árni var fæddur á Steinsstöðum í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði þann 2. júlí 1873. Hann fór til Vesturheims árið 1876 frá Steinstöðum. Bóndi á föðurleifð sinni við Hallson, N-Dakota, USA og líklega fleiri stöðum. Kona hans var Anna Guðbjörg Björnsdóttir Johnson (1879-1953). Árni lést í Hallson 12. september 1955.

            Árni Jónsson (1839-1888)
            S003618 · Person · 12.11.1839-02.03.1888

            Árni Jónsson, f. á Hauksstöðum í Vopnafirði 12.11.1839, d. 02.03.1888 í Borgarey. Foreldrar: Jón Sigurðsson bóndi og smiður á Hauksstöðum. og Arnjbörg Arngrímsdóttir. Er Árni var fullorðinn fór hann utan til Kaupmannahfanar til trésmíðanáms og vann þar að loknu námi. Flutti svo til Vopnafjarðar og vann þar að smíðum. Árið 1878 ætlaði hann til Vesturheims. Þegar hann kom á Sauðárkrók hitti hann séra Jakob Benediktsson, er þá var að byggja stofu á Miklabæ, og fékk Árna til að fresta för og taka að sér bygginguna. Varð það til þess að Árni ílengdist í Skagafirði. Byggði hann m.a. bæinn í Glæsibæ, kirkju í Goðdölum og bæinn á Flugumýri. Þar taldist hann til heimilis um hríð og þar næst á Hólum í Hjaltadal og Syðra-Vallholti. Hann keypti Borgarey í Vallhólmi og var bóndi þar 1886-1888 og andaðist þar.
            Maki: Guðrún Þorvaldsdóttir frá Framnesi (1854-1924). Þau eignuðust 3 börn. Guðrún giftist síðar Pétri Gunnarssyni, bónda á Stóra-Vatnsskarði.

            Árni Jónsson (1848-1932)
            S03619 · Person · 07.09.1848-13.05.1932

            Árni Jónsson, f. á Sauðá 07.09.1848, d. 13.05.1932. Foreldrar: Jón Árnason (1817-1902) síðast bóndi í Dæli í Sæmundarhlíð og kona hans Ingibjörg Símonardóttir (1815-1885) húsmóðir.
            Árni ólst upp með foreldrum sínum og vann að búi þeirra fram yfir þrítugsaldur, eða þar til hann flutti á heimili unnustu sinnar voriuð 1881. Hann var bóndi á Marbæli á Langholti 1881-1882 og 1884-1932. Fyrstu árin bjó hann á móti Magnúsi tengdaföður sínum og taldist húsmaður 1882-1884. Árni sat lengi í hreppsnefnd Seyluhrepps, var oddviti hennar 1888-1892. Hann var hreppsstjóri Seyluhrepps frá 1892-1917.
            Maki: Sigurlína Magnúsdóttir (1860-1940). Þau eignuðust ekki börn.

            Árni Jónsson (1851-1897)
            S03620 · Person · 1851-1897

            Árni Jónsson, f. í Vatnsdalshólum 1851, d. 1897 á Ásbrandsstöðum í Vopnafirði. Forledrar: Jón Jónsson bóndi og trésmiður í Vatnsdalshólum og kona hans Björg Þórðardóttir.
            Árni ólst upp hjá foreldrum sínum og var fermdur frá þeim. Sama ár fór hann til Magnúsar föðurbróður síns, sem kenndi honum undir skóla og var hjá honum á Hofi á Skagaströnd 1866-1868 og á Skorrastað í Norðfirði 1868-1869. Árni var við nám í Reykjavík næstu ár og lauk þar stúdentsprófi 1875. Hann varð cand. phil. í Reykjavík 1876 og cand. med. frá Læknaskólanum 1878. Hann starfaði á fæðingarstofnun í Kaupmannahöfn 18788-187 en var skipaður héraðslæknir 1879. Sat hann á Sauðárkróki 1879-1880, á Sauðá 1880-1881, í Glæsibæ 1881-1892 og hafði jafnframt búrekstur þar 1881-1883 og 1887-1892. Árið 1892 var hann skipaður héraðslæknir í Vopnafirði.
            Maki: Sigríður Jóhannesdóttir (1851-1890) Þau eignuðust 4 börn. Tvö þeirra dóu á fyrsta ári.
            Maki 2: Sigurveig Ósk Friðfinnsdóttir (1865-1946). Þau eignuðust fjögur börn. Seinni maður Sigurveigar var Jón Benediktsson (1873-1946). Þau eignuðust tvö börn.

            S05727 · Person · 05.08.1924 - 10.01.1995

            Var á Lýtingsstöðum, Mælifellssókn, Skag. 1930. Búsettur á Hofi í Varmahlíð. Síðar iðnverkamaður á Akureyri.

            S03621 · Person · 06.02.1891-05.04.1968

            Árni Rögnvaldsson, f. á Ríp í Hegranesi 06.02.1891, d. 05.04.1968 á Sauðárkróki. Foreldrar: Rögnvaldur Jónasson, b. síðast á Þröm á Langholti og sambýliskona hans Sigurlaug Þorláksdóttir húsfreyja.
            Árni ólst upp hjá foreldrum sínum sem bjuggu á Rein, Steini, Jaðri og síðast á Þröm á Langholti frá 1910-1916, en þá fluttu þau með Árna að Hólkoti (nú Birkihlíð). Árni bjó í Hólkoti frá 1916-1920, á Hafragili í Laxárdal 1920-1921 og á Selnesi á Skaga 1921-1923. Þegar hann hætti búskap fluttist hann til Sauðárkróks ásamt konu sinni og bjó þar til æviloka. Þar stundaði hann sjómennsku og daglaunavinnu sem gafst þess á milli. Auk þess áttu þau hjónin oftast nokkrar skepnur.
            Maki: Margrét Jónasdótir (1883-1972). Þau eignuðust eina dóttur

            S00614 · Person · 14.11.1889 - 15.10.1976

            Árni Sigurður Kristmundsson f. á Höfnum á Skaga 14.11.1889, d. 15.10.1976. Foreldrar: Kristmundur Guðmundsson bóndi á Selá og kona hans Guðrún Guðmundsdóttir. Árni ólst upp hjá foreldrum sínum og vann að búi þeirra þar til þau létu af búskap árið 1908. Eftir það fór hann í vistir, fyrst hjá sr. Arnóri Árnasyni og Ragnheiði Eggertsdóttur í Hvammi í Laxárdal. Hjá þeim var hann í fimm ár. Næstu árin stundaði hann vinnu á ýmsum stöðum í Skefilstaðahreppi, ýmist vistráðinn eða sem kaupmaður við heyskap á sumrin eða vetrarmaður við hirðingu búfjár á vetrum eins og það var nefnt. Einnig stundaði hann sjóróðra á haustin, en þá var róið frá Selvík og víðar af Skaga. Árið 1920 réðist Árni að Hóli á Skaga sem ráðsmaður til Ingibjargar Sigurðardóttur. Árið 1924 tók Árni við búi en Ingibjörg varð ráðskona hans. Eftir að Árni lét af búskap á Hóli árið 1948 var hann í tvö ár til heimilis á Hrauni hjá Guðrúnu systur sinnum og manni hennar, Steini L. Sveinssyni. Vann hann þá við brúarvinnu o.fl. Síðar hóf hann búskap á ný, í Hvammakoti á Skaga. Fyrstu búskaparárin á Hóli hélt Árni út báti í Selvík á haustin og var sjálfur formaður.
            Erin gegndi ýmsum trúnaðarstörfum. Hann sat í hreppsnefnd Skefilsstaðahrepps frá 1946-1962, var í allmörg ár í skattanefnd, varamaður í sýslunefnd í mörg ár og sat a.m.k. tvo aðalfundi Sýslunefndar Skagafjarðarsýslu. Hann var mörg ár formaður Búnaðarfélags Skefilsstaðahrepps og einnig formaður lestrarfélagsins í hreppnum og bókavörður um alllangt skeið. Þá hafði hann með höndum afgreiðslu á vörum fyrir Kaupfélag Skagfirðinga, en félagið hafði um árabil vöruskýli við Selvík.
            Framan af búksaparárum sínum fékkst Árni við vefnað á vetrum og óf vaðmál úr heimaunnum þræði. Mun hann hafa verið síðasti maðurinn í hreppnum sem stundaði þá iðn.
            Haustið 1964 brá Árni bvúi og fluttist til Önnu Leósdóttur og Agnars Hermannssonar að Hólavegi 28 á Sauðárkróki. Næstu 2-3 sumur var hann um 2-3 mánaða skeið heima hjá sér í Hvammkoti en hætti því eftir að sjón hans hrakaði. Um 1970 hafði hann alveg tapað sjón. Hann naut umönnunar á heimili Önnu í sjö ár en fór árið 1971 á Sjúkrahúsið á Sauðárkróki og dvaldist þar til æviloka. Árni var ókvæntur og barnlaus.

            S02662 · Person · 7. sept. 1848 - 13. maí 1933

            Árni Theodór Jónsson var fæddur 7. sept 1848 á Sauðá í Borgarsveit. Foreldrar hans voru hjónin Jón Árnason og Ingibjörg Símonardóttir er lengst bjuggu í Dæli í Sæmundarhlíð. Árni dvaldi hjá foreldrum sínum þar til hann var 32 ára. Vorið 1881 fór hann að búa á Marbæli í Seyluhreppi, og giftist um haustið Sigurlínu Magnúsdóttur frá Marbæli. Árið 1892 var hann skipaður hreppstjóri í Seyluhreppi og gegndi því starfi í nær 23 ár.

            S03172 · Person · 13.10.1882-14.02.1924

            Árni Þorgrímsson, f. 13.10.1882, d. 14.02.1924. Foreldrar: Þorgrímur Ásgrímsson (1847-1900), bóndi í Hofstaðaseli í Viðvíkurhreppi og kona hans María Gísladóttir (1852-1929). Árni ólst upp í Hofstaðaseli. Eftir ða faðir hans lést árið 1900 brá móðir hans búi. Hann var skráður vinnumaður í Hofstaðaseli árið 1910 og skráðru í Ásgeirsbrekkur árið 1920.
            Maki: Sólveig Ólafsdóttir frá Skottastöðum.

            S03625 · Person · 06.10.1917-06.07.1992

            Arnljótur Sveinsson, f. 06.10.1917, d. 06.07.1992. Bóndi á Ytri-Mælifellsá.
            Arnljótur var fæddur á Syðri-Mælifellsá en bjó á Ytri-Mælifellsá frá 12 ára aldri en var einnig um tíma á Reykjavöllum og í Sölvanesi.

            S07475 · Person · 19.07.1951 - 05.08.2021

            Búfræðingur og bóndi í Glaumbæ, síðar þjónustufulltrúi í Varmahlíð. Gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Seyluhrepp og síðar Sveitarfélagið Skagafjörð.

            S07531 · Person · 7. sept. 1955 - 17. mars 2026

            Arnþór Bergur Traustason 7. sept. 1955 - 17. mars 2026 bóndi í Litluhlíð í Vesturdal
            Foreldrar Þórey Guðmundsdóttir (1915-1995) húsfreyja frá Litluhlíð í Vesturdal, og Trausti Sveinbergur Símonarson (1920 - 2018) Var í Teigakoti í Tungusveit, Skag. 1930. Sambýliskona frá 1993 Gunnlaug Ósk Sigurðardóttir (f.1969), þau eignuðust son, Guðmund Emil. Gunnlaug og Arnþór slitu samvistum 1997.
            Sambýliskona Arþórs var Marta María Friðþjófsdóttir (f.1964-), hún á tvær dætur úr fyrri samböndum, þær Hafdísi og Ástu Maríu.

            S07672 · Person · 24.02.1931 - 29.09.1988

            Síðast bús. í Reykjavík. Í sambúð frá 1966 með Jóni B. Guðmundssyni á Breið, um rúmlega áratugarskeið, að þau skildu. Átti fimm börn með Guðjóni Agli Halldórssyni.

            S00132 · Person · 13.07.1911-13.08.2001

            Ásgrímur Hartmannsson fæddist í Kolkuósi í Skagafirði þann 13. júlí 1911. Hann var bæjarstjóri, kaupmaður og framkvæmdastjóri á Ólafsfirði.
            Kona hans var Helga Jónína Sigurðardóttir (1917-2005).
            Ásgrímur lést á Ólafsfirði 13. ágúst 2001.

            S03173 · Person · 03.01.1879-?

            Ásgrímur Þorgrímsson, f. 03.01.1879, dánardagur óljós. Foreldrar: Þorgrímur Ásgrímsson (1847-1900) bóndi í Hofstaðaseli og kona hans María Gísladóttir (1852-1929). Ásgrímur fór til Vesturheims frá Hofstaðaseli árið 1902.

            S03599 · Person · 24.03.1915 - 27.10.1999

            Petrea Ástrún Jónsdóttir Sívertsen, f. á Mælifelli í Skagafirði 24.03.1915 í Reykjavík. Foreldrar: Jón Sigfússon (1892-1957) frá Mælifelli og Jórunn Hannesdóttir (1914-1978) frá Skíðastöðum.
            Maki 1 (26.10.1941): Sveinn Steindórsson frá Efri-Steinsmýri í Meðallandi, garðyrkjumaður í Hveragerði. Þau eignuðust stúlku sem lést samdægurs. Þau bjuggu saman í Hveragerði. Sveinn lést í bruna á Hótel Íslandi 1944.
            Maki 2: Marteinn Sívertsen húsasmíðameistari og kennari í Reykjavík. Þau eignuðust ekki börn en Marteinn átti einn son fyrir. Þau bjuggu lengst af í Litlagerði 7.

            S05193 · Person · 07.08.1889 - 23.08.1955

            Var á Vatnsleysu, Hofstaðasókn, Skag. 1890. Daglaunamaður á Sauðárkróki 1930.

            S03671 · Organization · 1930 - 1963

            Fyrsta vetrardag 25.10.1930 var fundur settur og haldinn á Uppsölum að undangengnu fundarboði. Markmið félagsins var að efla peningaviðskipti félagsmanna sinna og útrýma skuldaverslun. Auk þess að ávaxta fé félagsmanna og glæða sparnaðarhug þeirra.
            Fundinn setti Bjarni Halldórsson óðalsbóndi á Uppsölum er hafði boðað til fundarins og stakk hann upp á Gísla Sigurðsyni hreppstjóra sem fundarstjóra. Tók hann þegar við fundarstjórn og kvaddi til fundarskrifara Lárus Arnórsson á Miklabæ. Fundarstjóri gat þess að öllum fundarmönnum mundi kunnugt um í hverju skyni til fundar þessa væri boðað, það væri að stofna atvinnurekstrarlánafélag er starfaði í Akrahreppi framan Dalsár.
            Félagið var starfandi til síðla sumars 1963, þá var ákveðið að afhenda Búnaðarfélagi Akrahrepps innistæðu félagsins sem þá var kr. 1300,33.

            S02602 · Person · 6. júlí 1930 - 27. apríl 2008

            Auður Guðjónsdóttir f. á Tunguhálsi í Lýtingsstaðahreppi, dóttir Guðjóns Jónssonar b. á Tunguhálsi og k.h. Valborgar Hjálmarsdóttur. Maki: Stefán Arnbjörn Ingólfsson frá Víðihóli á Hólsfjöllum í Fjallahreppi, N-Þingeyjarsýslu, þau eignuðust sjö börn. Stundaði almenn sveitastörf á uppvaxtarárum sínum að Tunguhálsi. Árin 1947-1948 stundaði hún nám við Húsmæðraskólann að Löngumýri í Skagafirði. Árið 1952 fluttist hún til Akureyrar. Hóf störf við Útgerðarfélag Akureyringa 1965 og starfaði þar til ársins 2000. Gegndi ýmsum trúnaðarstörfum tengdum starfi sínu bæði hjá Útgerðarfélagi Akureyringa og hjá Verkalýðsfélaginu Einingu á Akureyri. Virk í félagsstarfi aldraðra á Akureyri.

            S04111 · Person · 28.08.1928 - 14.07.2003

            Var í Litladalskoti, Goðdalasókn, Skag. 1930. Fæddist á Skíðastöðum í Lýtingsstaðahreppi. Nám í Húsmæðraskólanum á Löngumýri í Skagafirði 1954-55. Vann við heimilisstörf, landbúnað og sauma. Síðast bús. á Sauðárkróki.

            S07267 · Person · 07.03.1930 - 05.04.2015

            Bóndi á Páfastöðum í Staðarhreppi, starfaði einnig sem héraðslögreglumaður og bifreiðastjóri. Uppeldisforeldrar: Helgi Ingimar Valdimarsson f.1898, d.1982 og Snjólaug Guðmundsdóttir f.1913, d.1995.

            S00995 · Person · 19.05.1893-28.03.1980

            Foreldrar: Jóhann Oddsson og Jóhanna Friðrika Friðbjarnardóttir. Fæddur á Siglunesi en eftir að hafa misst móður sína fjögurra ára gamall flutti hann með föður sínum til Skagafjarðar og var þar á ýmsum bæjum, ýmist búandi eða í húsmennsku. Fljótlega uppúr fermingu fór Baldvin í vinnumennsku lengst á Reynistað. Baldvin kvæntist Láru Pálínu Jónsdóttur, þau voru fyrstu árin í húsmennsku; á Reynistað 1930-1931, í Glæsibæ 1931-1932 og á Eiríksstöðum 1932-1935. Þau keyptu Dæli 1935 og voru bændur þar til 1950, eftir það á hluta jarðarinnar á móti syni sínum. Meðfram búskap var Baldvin um langt árabil póstur í Sæmundarhlíð. Síðast búsettur á Sauðárkróki.
            Baldvin og Lára eignuðust þrjú börn saman, fyrir átti Lára tvö börn.

            S03484 · Person · 10.10.1937-13.07.2015

            Bára Pétursdóttir f. í Minni-Brekku í Fljótum 10.10.1037, d. 13.07.2015 á Akureyri.
            Foreldrar: Pétur Jón Stefánsson (1909-2000) og Guðrún Jónsdóttir (1920-2011). Hún ólst upp í Minni-Brekku og Hofi í Vesturdal til 7 ára aldurs. Eftir það fluttist hún alfarið í Hof og ólst upp í stórum systkinahópi. Bára ólst upp við hefðbundin sveitastörf en 16 ára fór hún í vist í Glaumbæ og síðan suður til Kristins föðurbróður síns og var þar einn vetur. 18 ára gömul flutti hún til Akureyrar og starfaði þar svið umönnunarstörf á sjúkrahúsinu, auk þess að vinna hjá Sambandsverksmiðjunum. Árið 1971 útskrifaðist hún sem sjúkraliði og vann m.a. á barnadeild sjúkrahússins á Akureyri og á Kristnesi. Hún var virk í starf Slysavarnarfélags Íslands.
            MakiNúmi Sveinbjörn Adolfsson (f. 1938). Þau eignuðust saman fjögur börn. Þau bjuggu saman á Akureyri en slitu samvistum árið 1996.

            S02731 · Person · 15. okt. 1848 - 22. júní 1913

            Foreldrar: Sölvi Guðmundsson, f. 1806 og María Þorsteinsdóttir, f. 1808. Benedikt missti móður sína í bernsku og faðir hans brá þá búi. Eftir það var hann aðallega hjá Guðmundi elsta bróður sínum sem var bóndi á Skarðsá og víðar. Bóndi á Fagranesi 1878-1883, Ingveldarstöðum 1884-1913. Sat lengi í hrepppsnefnd Sauðárhrepps hins forna og óslitið í hreppsnefnd Skarðshrepps til æviloka, eftir að Sauðárhreppi var skipt. Oddviti Sauðárhrepps 1880-1883, 1886-1889 og 1895-1907. Oddviti Skarðshrepps 1907-1913.
            Maki: Málfríður Jónsdóttir frá Dæli í Sæmundarhlíð, f. 13.02.1853. Þau eignuðust einn son.

            S01209 · Person · 10.09.1862-03.08.1933

            Foreldrar: Þorsteinn Bjarnason b. og hreppstjóri í Litlu-Gröf og 1.k.h. María Jóhannsdóttir. Benedikt ólst upp hjá foreldrum sínum. Bóndi í Birkihlíð 1888-1895, Kimbastöðum 1895-1909, Gili 1909-1920. Fór þá að Birkihlíð aftur og bjó þar á parti af jörðinni á móti syni sínum á árunum 1922-1928. Benedikt átti um skeið sæti í hreppsnefnd Skarðshrepps og var lengi gangnaforingi í Úthnjúkum í Staðarfjöllum. Benedikt var tvíkvæntur, fyrri kona hans var Guðrún Magnúsdóttir frá Birkihlíð, þau voru barnlaus, Guðrún lést aðeins 24 ára gömul. Seinni kona hans var Sigurborg Jóhannesdóttir f. á Hvalnesi, þau eignuðust fimm börn.

            S02645 · Person · 13. okt. 1896 - 13. apríl 1987

            Foreldrar: Magnús Gunnlaugsson síðast bóndi á Ytri-Hofdölum og seinni kona hans Guðrún Bergsdóttir. Bergur ólst upp í foreldrahúsum fram um fermingaraldur. Hann naut tilsagnar farkennara í nokkrar vikur en um frekari skólagöngu var ekki að ræða. Var sendur að Vatnskoti í Hegranesi kringum fermingaraldur og var þar til tvítugs við sveitastörf. Bóndi í Ásgeirsbrekku í Viðvíkursveit 1922-1926, á Unastöðum í Kolbeinsdal 1926-1943 og Enni í Viðvíkursveit 1943-1945, var í húsmennsku á Ytri-Hofdölum í fjögur ár en fluttist þá til Siglufjarðar og bjó þar til æviloka. Maki: Ingibjörg Kristín Sigfúsdóttir, f. 1892. Þau eignuðust 4 börn.

            S01383 · Person · 09.01.1947-24.05.2001

            Bergur Ragnar Hólmsteinsson fæddist 9. janúar 1947 að Ytri-Hofdölum í Viðvíkursveit, Skagafirði. Foreldrar hans eru Hólmsteinn Sigurðsson og Guðrún Bergsdóttir. Bergur ólst upp að Ytri-Hofdölum. ,,Ungur fór hann að stunda sjómennsku, fyrst á ísfisktogurum hjá Útgerðafélagi Skagfirðinga en einnig var hann á flutningaskipum um tíma. Bergur stofnaði fyrirtæki ásamt vini sínum um skurð og sölu á túnþökum, var vélavörður í frystihúsinu Skildi í nokkur ár, en tók einnig þátt í sveitastörfunum. Síðustu ár var hann bílstjóri hjá Suðurleiðum."

            Bessi Gíslason (1894-1978)
            S01465 · Person · 3. júní 1894 - 19. okt. 1978

            Foreldrar: Gísli Liljus Pétursson b. í Kýrholti og k.h. Margrét Bessadóttir. Bessi ólst upp í Kýrholti með foreldrum sínum, árið 1913 útskrifaðist hann frá Hólaskóla. Bóndi í Kýrholti 1915-1928, á Miklahóli í Viðvíkursveit 1928-1930 og aftur í Kýrholti 1930-1966. Hreppstjóri í Viðvíkurhreppi 1934-1961 og um leið formaður skattanefndar. Sat í hreppsnefnd Viðvíkurhrepps 1922-1934, þar af oddviti 1925-1931. Sýslunefndarmaður 1954-1970, yfirúttektarmaður í Skagafjarðarsýslu, varamaður í jarðamatsnefnd sýslunnar, símsöðvarstjóri og bréfhirðingamaður um árabil. Deildarstjóri Viðvíkurdeildar KS 1932-1947 og í stjórn kaupfélagsins 1947-1968. Bessi brá búi í Kýrholti 1966 en dvaldi þar áfram hjá Gísla syni sínum til 1974, flutti þá á dvalarheimili í Hveragerði, síðast búsettur á dvalarheimili í Reykjavík.
            Fyrri kona: Elinborg Björnsdóttir frá Miklabæ, þau eignuðust fjögur börn. Elínborg lést 1942.
            Seinni kona: Guðný K. Jónsdóttir, þau eignuðust tvær dætur. Fyrir átti Guðný tvö börn.

            Bessi Snorrason (1901-1929)
            S01616 · Person · 13. okt. 1901 - 21. maí 1929

            Foreldrar: Snorri Bessason, f. 1862 og Anna Björnsdóttir f. 1867. Bessi ólst upp með foreldrum sínum í Garðakoti, í Enni í Viðvíkursveit og í Reykjavík. Lést ókvæntur og barnlaus.

            Bessi Steinsson (1836-1915)
            S04985 · Person · 06.01.1836 - 15.01.1915

            Bóndi, hreppstjóri og sýslunefndarmaður í Kýrholti í Viðvíkursveit, Skag. Barn á Gautastöðum í Knappstaðasókn, Skag. 1845.

            S02570 · Person · 18. nóv. 1905 - 28. júlí 2008

            Birna fæddist á Grófargili í Seyluhreppi í Skagafirði og ólst þar upp. Foreldrar hennar voru Sigurlaug Brynjólfsdóttir húsfreyja og Jón Benediktsson bóndi. Birna missti föður sinn átján ára gömul. Skólaganga Birnu var ekki löng, en hún var um tíma í farskóla og einn vetur í unglingaskóla á Sauðárkróki. Eiginmaður Birnu var Eiríkur Sigmundsson, þau eignuðust fimm börn. Birna og Eiríkur bjuggu á Grófargili árabilið 1928 til 1934, en fluttu þá að Reykjum á Reykjaströnd og bjuggu þar til 1939, er þau fluttu að Hólakoti og voru þar í fjögur ár. Um vorið 1943 fluttu þau svo að Fagranesi. Birna var síðast búsett á Sauðárkróki.

            S04735 · Person · 26.10.1894 - 03.05.1977

            Ólst upp á Bakka í Hólmi. Vinnukona í Húsey í Glaumbæjarsókn, Skag. 1930. Var í Þorsteinsbæ á Sauðárkróki 1901. Síðast bús. á Sauðárkróki.

            S04658 · Person · 31.12.1835 - 02.05.1900

            Vinnumaður í Kálfárdal í Gönguskörðum, Skag. 1856. Bóndi á Efri-Skúfi, Höskuldsstaðasókn, Hún. og Hamarsgerði á Fremribyggð, Skag. Bóndi í Króki, Hofssókn, Hún. 1870.

            S02182 · Person · 27. feb. 1918 - 11. jan. 1975

            Foreldrar hans voru Finnbogi Bjarnason frá Þorsteinsstöðum og Sigrún Eiríksdóttir frá Sölvanesi. Þau bjuggu í Sölvanesi 1918-1920, á Merkigili 1920-1923, á Sveinsstöðum 1923-1925, á Mið-Grund 1925-1935, á Hrauni í Öxnadal 1935-1936, á Stokkahlöðum í Hrafnagilshreppi 1938-1940, á Kroppi í sömu sveit 1940-1942 og eftir það á Akureyri. Búfræðikandidat frá Sem í Noregi 1939. Héraðsráðunautur í Dalasýslu 1957-1971. Kvæntist Sigurlaugu Indriðadóttur frá Dvergsstöðum í Eyjafirði.

            Bjarni Gíslason (1933-2012)
            S02089 · Person · 8. ágúst 1933 - 18. jan. 2012

            Bjarni Gíslason fæddist í Eyhildarholti í Skagafirði hinn 8. ágúst 1933. Foreldrar hans voru Gísli Magnússon bóndi í Eyhildarholti, og kona hans, Stefanía Guðrún Sveinsdóttir. ,,Bjarni bjó fyrstu ár ævi sinnar hjá foreldrum sínum í Eyhildarholti, en fór til náms í Héraðsskólann á Laugarvatni og síðar Bændaskólann á Hólum í Hjaltadal. Bjarni var farkennari í Viðvíkursveit á árunum 1956 til 1966 og kennari við Steinsstaðaskóla í Lýtingsstaðahreppi í þrjá vetur. Að því loknu var hann skólastjóri við Grunnskóla Rípurhrepps allt til starfsloka árið 1998. Bjarni var einnig bóndi í Eyhildarholti þar til hann fluttist til Sauðárkróks í ágúst 2000, þar sem hann bjó til æviloka." Bjarni kvæntist 8. ágúst 1966 Salbjörgu Márusdóttur, þau eignuðust fimm börn.

            S07606 · Person · 10.06.1937 - 16.10.2023

            Frá Hóli í Sæmundarhlíð. Bóndi á Hóli í Sæmundarhlíð, Skag.