Vélritað afrit af þinggjaldabókum úr Sauðárhrepp hinum forna frá árunum 1871-1899 ásamt einu bréfi frá Kristmundi sem varðar afhendingu skjalanna til safnsins. Upphaflegu gögnin virðist hafa verið frá 1871-1899 en ekki er vitað hvenær afritið var gert.
Ljóðabálkur eftir Gunnar Einarsson í Bergskála um stórbrunann mikla á Hellulandi árið 1928. Þrjár vélritaðar síður og ein handskrifuð nafnaskrá, óvíst um upprunann og hvenær það barst safninu en greinilega er skjalið búið til eftir daga Gunnar.
Frumrit bréfa frá fjölskyldinni Ljótsstöðum í Skagafirði til hjónanna Guttorms Vigfússonar og Sigríðar Guðbjörgar Önnu Sigmundsdóttur (1862-1922) er bjuggu á Geitagerði í Fljótsdal. Bréfin eru frá tímabilinu 1887-1918.
Persónuleg gögn Björns Jónssonar, Sauðárkróki. Ljósmyndir, ljósritaðar vísur eftir ýmsa höfunda og heillaóskaskeyti. Í safninu eru einnig skjöl foreldra hans, Jóns Björnssonar og Unnar Magnúsdóttur.
Gögn tengjast veru Haraldar Sigurðssonar í Möðruvallaskóla í kringum 1896, svo sem einkunnir, glósur og kennsluefni. 1 lítið glósuhefti inniheldur vísur og er með annarri rithönd, mögulega yngra efni.
Skjalasafnið inniheldur: Ljósmyndir, bréf, greinargerð, fréttabréf, ferðaþjónustu bækling og umslög. Myndirnar eru teknar í tíð Friðriks sem Félagsmálastjóri Sauðárkróksbæjar á árunum 1979-1982.
Þorvaldur Ari Arason (1848-1926) var kenndur við Flugumýri og Víðimýri. Í skjalasafni hans er að finna ýmis skjöl er viðkoma búrekstri og félagsstarfi Þorvaldar en einnig eldri gögn úr fórum föður hans Ara Arasonar (1813-1881) lækni og stórbónda á Flugumýri og afa, Ara Arasonar (1763-1840) héraðslæknis og stórbónda á Flugumýri.
Skjalagögn Félags fiskvinnslustöðva Austur og Norðurlands er ein askja sem inniheldur gögn félagsins frá 1960-1964. Gögnum er skipt eftir innihaldi í fimm hluta sem innihalda, fundargerðir, lög, bókhaldsgögn, erindi og skýslur. Fundargerðabók félagsins er undir fundargerðir.
Félag fiskvinnslustöðva á Austur og Norðurlandi F.A.N.
Tvær fundargerðarbækur, innbundnar og handskrifaðar og hafa varðveist mjög vel, sú elsta er síðan 1908. Tölvuútprentað söguágrip í þremur heftum í A4 stærð, gert 2008.
Lestrarfélagið er safn bóka og pappírsgagna sem eru í viðkvæmu, misjöfnu ástandi en elstu gögnin hafa varðveist vel með vel læsilegan texta og fallegt ritmál. Lestrarsafnið er skipt upp i deildir I - II - III, Útskagi, Niðurskagi, Laxárdalur. Gögnin komu lítið flokkuð og ákveðið var að setja safnið niður í eins mikinn uppruna eins og hægt en flokkað er eftir efni og ártali Pappírsgögnin eru prentuð og handskrifuð og eru í misjöfnu ástandi heilleg og rifin en eru hreinsuð af bréfaklemmum og heftum, stöku ryðblettir eftir það. Bækurnar eru vel læsilegar en viðkvæmar. Gott væri að mynda þær til varðveislu og fróðleiks.
Innbundin og handskrifuð bók, með fundagerðum félagsins. Bókin er mjög illa farin, binding bókarinnar er ónýt, blaðsíður eru lausar og blettóttar, kápan er einnig laus.
Heilleg harðspjalda bók um lög og fundargerðir félagsins. Bóki í góðu ástandi og lítið skrifað í hana. Inn í bók er ein laus opna af pappírgögnum um fundargerð, sett með bók.
Gögn úr fórum Péturs Jónassonar, sem lengst bjó í Minni-Brekku í Fljótum. Flest stílabækur sem hann hefur ritað í ýmsan fróðleik og kveðskap, ýmist hefðbundnar stílabækur eða innbundnar. Margt af því er skrifað upp úr bókum og útvarpsþáttum. Einnig er að finna fróðleik tengdan Fljótunum sem hann virðist hafa ritað sjálfur, en ljóst er af bréfaskiptum við Hannes Hannesson frá Melbreið að hann hefur oft haft annála hans til hliðsjónar. Safnið inniheldur mikið af kveðskap og er stór hluti hans eftir Guðmund Stefánsson í Minni-Brekku. Þá eru í safninu bréf og fjöldi dagbóka Péturs frá tímabilinu 1950-1970.
Aðallega gögn Samvinnufélags Fljótamanna, þ.á m. vörubækur (1922-1927), vörulisti frá 1926, skrá yfir félagsmenn 1927, gögn tengd sláturhúsinu 1974-1975 og bryggjunni/höfninni í Haganesvík 1962-1965.
1 handskrifuð fundagerðabók og 1 handskrifuð reikningabók. Einnig lausir reikningar. Með er fundargerð 27. aðalfundar Sambands skagfirskra kvenna 1969.
Gjörða -og reikningabók er í góðu ástandi. Bókin inniheldur mest reiknisviðskipti, inneignir og skuldir en ein fundargerð sem er frá 2. sept 1934. Önnur pappírsgögn, kvittanir og sendibréf voru inn í bók og eru sett hér með í arkir.
Askjan inniheldur fjórar innbundnar og handskrifaðar fundargerðarbækur, sú elsta er frá 1905, innihald þeirra eru fundargerðir, reikningshald, lög og félagatal. Bækurnar hafa allar varðveist mjög vel og eru í góðu ástandi.
Í safninu eru forprentuð pappírsgögn með tölvuútprentuðum skýrslum um hrúta, veturgamlar ær, hrútadóma og ásett hrútlömb í eigu félaga í Fjárræktarfélagi Akrahrepps, félagið skiptist í Fjárræktarfélögin Kára og Frosta - eftir staðsetningu bæja innan hreppsins. Skýrslurnar voru ekki sorteraðar eftir heiti félags en þau eru aðgreind sérstaklega á skýrslunum. Töluvert var af skýrslum sem voru prentaðar í tvíriti eða ljósritað. Afritin voru tekin úr safninu þar sem það átti við, skýrslunum var raðað eftir ártali og var það skipulag látið haldast nánast óbreytt, sumt þurfti að setja við rétt ártal. Safnið var geymt í möppu og voru millispjöld tekin úr og hefti hreinsuð úr.
Harðspjalda handskrifuð Gjörðabók segir frá stofnfundi félagsins og þeirri starfsemi er var í félaginu. Í bókina er lítið skrifað og hún er í góðu ásigkomulagi. Skýrslur um sauðfé og þá sem koma að þeirri starfsemi en gögnin eru persónugreinanleg og sett hér eins og þau komu í ártalaröð, en hafa verið hreinsuð af plastblöðum sem voru milli ártala.
Í safninu eru einugis ein innbundin og handskrifuð bók sem í eru línustrikaðar blaðsíður. Í bókina eru ritaðar fundagerðir og reikningar nautgriparæktunarfélagsins. Bókin er vel varðveitt og læsileg, það er ekki skrifað nema í hluta bókarinnar að öðru leyti eru blaðsíðurnar auðar. Ekki kemur fram hvenær félagið er stofnað né hvort búið sé að leggja það niður.
Gögn er varðar Barnaskólann á Sauðárkróki frá 1914 til 1951, flest með hendi Jóns Þ. Björnssonar skólastjóra. Einnig gögn er varðar "Ungmennaskóla Sauðárkróks".
Bréf Péturs Jónssonar til Hermanns Jónssonar á Ysta-Mói (tilgáta). Í bréfinu segir frá viðskiptum Péturs við Samvinnufélag Fljótamanna og segir jafnframt frá lífinu í Fljótum. Sérstaklega er gert grein fyrir haustferð um Siglufjarðarskarð sem átti sér stað einhvertíman á árunum 1924-1932.
Skjöl úr dánarbúi Péturs Guðmundssonar á Hraunum í Fljótum. Einkum kveðskapur, gögn viðvíkjandi Búnaðarsambandi Skagfirðinga og Ungmennafélagi Holtshrepps.